Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Page 38
Helgarblað 21.–24. nóvember 201438 Sport
Gátu valið sér landslið
n Eusebio hefði getað spilað fyrir Mósambík og Marcel Desailly fyrir Gana
P
atrick Viera, Marcel Des-
ailly og Eusebio eru dæmi
um frábæra leikmenn sem
gátu valið að leika með öðru
landsliði en þeir völdu. Því
fer fjarri að þremenningarnir séu
þeir einu sem höfðu þetta val.
Vefritið Bleacher Report tók á
dögunum saman lista yfir leikmenn
í sömu sporum. Diego Costa, Adnan
Januzaj og Raheem Sterling eru ekki
sérstaklega tíundaðir í úttektinni en
sem kunnugt er leikur Costa fyrir
spænska landsliðið þrátt fyrir að hafa
fæðst í Brasilíu. Januzaj leikur með
Belgum en hann hefði einnig getað
valið Albaníu, Tyrkland, Kosovo og
England. Þá leikur Raheem Sterling
með enska landsliðinu en hann
fæddist á Jamaíku. n
John Barnes
Lék með: England
Hefði getað valið: Jamaíka, Skotland
n Barnes fæddist á Jamaíku en fluttist til
Englands þegar hann var tólf ára. Barnes
var frábær leikmaður sem lengst af lék með
Liverpool en fyrst vakti hann þó athygli
hjá Watford. Eftir að Barnes fékk breskt
vegabréf var hann valinn í enska landsliðið
þar sem hann lék 79 landsleiki í það heila.
Barnes sagði í viðtali árið 2008 að hann
hefði getað spilað fyrir Skotland og
Wales, auk Jamaíku og Englands.
Sagði hann að ef Skotar
hefðu beðið hann
um að spila fyrir þá
hefði hann líklega
ekki sagt nei. Þar
sem Englendingar
föluð- ust fyrstir eftir
kröftum hans valdi hann
að spila fyrir þá.
Patrick Vieira
Lék með: Frakkland
Hefði getað valið: Senegal
n Patrick Vieira er einn besti miðjumaður-
inn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Um það
eru líklega allir sammála. Vieira fæddist
í Senegal en fluttist til Frakklands með
fjölskyldu sinni þegar hann var átta ára.
Hann sneri ekki aftur til fæðingarlands síns
fyrr en árið 2003, en fimm árum áður hafði
hann orðið heimsmeistari með Frökkum.
Það er spurning hvort þeir hefðu hrósað
sigri á HM '98 ef ekki hefði verið fyrir
krafta hans.
Miroslav Klose
Lék með: Þýskaland
Hefði getað valið: Pólland
n Miroslav Klose er markahæsti leikmaður HM frá upphafi en þessi magnaði leikmaður
lagði landsliðsskóna á hilluna eftir HM í sumar. Klose fæddist í Opole í Póllandi en fluttist til
Þýskalands árið 1986 er hann var átta ára. Það var ekki fyrr en árið 2001, þegar Klose var far-
inn að raða inn mörkunum fyrir Kaiserslautern, að pólska knattspyrnusambandið falaðist
eftir kröftum hans. Hann hafnaði boði þeirra um að spila fyrir landsliðið þar sem hann vissi
að hann ætti möguleika á að ná árangri með því þýska. Sú varð raunin og var Klose valinn í
þýska landsliðshópinn síðar þetta ár. Söguna eftir það þekkja allir. Klose lék á ferli sínum 137
landsleiki fyrir Þjóðverja og skoraði hann 71 mark í þeim, þar af 16 í lokakeppni HM.
Marcel Desailly
Lék með: Frakkland
Hefði getað valið: Gana
n Desailly var í franska hópnum sem varð
heimsmeistari árið 1998. Þetta varnartröll
lék lengst af með Milan og Chelsea og
átti að nær öllu leyti afar farsælan feril.
Foreldrar Desailly – og Desailly sjálfur –
fæddust í Gana og þess vegna var ekkert því
til fyrirstöðu að hann léki með Afríkuliðinu.
Desailly hefur sjálfur látið hafa eftir sér að
það hafi aldrei hvarflað að honum að spila
fyrir annað landslið en það franska. Hann
lék 116 landsleiki í það heila fyrir Frakka.
Deco
Lék með: Portúgal
Hefði getað valið: Brasilíu
n Deco var í hópi öflugustu miðjumanna
Evrópu fyrir ekki svo mörgum árum en þessi
sókndjarfi miðjumaður lék meðal annars
með Porto, Barcelona og Chelsea áður en
hann lagði skóna á hilluna á síðasta ári.
Deco fæddist í Brasilíu og lék með stórliði
Corinthians þar sem hann vakti mikla
athygli. Margir bjuggust við því að hann
yrði valinn í brasilíska hópinn fyrir HM
2002 en þar sem Ronaldo, Ronaldinho og
Rivaldo voru í hópnum var ekki talin þörf
fyrir Deco. Ári síðar fékk hann portúgalskan
ríkisborgararétt og hikaði hann ekki við að
samþykkja boð portúgalska knattspyrnu-
sambandsins um að leika fyrir Portúgal.
Hann mætti Brasilíumönnum í sínum fyrsta
landsleik og að sjálfsögðu setti hann mark í
andlitið á þeim.
Lukas
Podolski
Leikur með: Þýskaland
Hefði getað valið: Pólland
n Lukas Podolski var að mörgu leyti í sömu
sporum og Miroslav Klose þegar kom að því að
velja landslið. Líkt og Klose fæddist Podolski
í Póllandi og því hefði hann auðveldlega getað
spilað fyrir pólska landsliðið. Podolski fluttist til
Þýskalands þegar hann var tveggja ára og fékk hann
strax ríkisborgararétt þar sem afi hans og amma voru
Þjóðverjar. Podolski, sem hefur skorað 47 mörk fyrir
þýska landsliðið, sagði síðar að pólska knattspyrnu-
sambandið hafi fyrst sýnt honum áhuga þegar hann
var fenginn til að leika með U21 árs liði Þjóðverja. Þá
þegar hafði hann hins vegar ákveðið að spila fyrir þýska
landsliðið.
Pepe
Leikur með: Portúgal
Hefði getað valið: Brasilíu
n Þessi öflugi varnarmaður fæddist í Brasilíu. Það var ekki fyrr en hann fór í
atvinnumennsku til Portúgal að hann vakti fyrst athygli. Hann var til dæmis
aldrei valinn í yngri landslið Brasilíu. Árið 2007, eftir að hafa leikið í sex ár
með Maritimo og Porto, fékk hann portúgalskan ríkisborgararétt og
sama ár lék hann sinn fyrsta landsleik fyrir Portúgal. Síðan þá hefur
Pepe verið í hópi öflugustu varnarmanna heims.
Marcos Senna
Lék með: Spánn
Hefði getað valið: Brasilíu
n Marcos Senna átti farsælan feril í
spænska boltanum þar sem hann
lék með Villareal árin 2002 til 2013.
Fyrri hluta ferils síns lék hann í
fæðingarlandi sínu, Brasilíu,
með hinum ýmsu liðum. Árið
2006 fékk hann spænskan
ríkisborgararétt og var um-
svifalaust valinn í spænska
landsliðið. Hann var einn af
lykilmönnum spænska liðsins
sem varð Evrópumeistari árið
2008. Í heildina lék hann 28
landsleiki.
Eduardo Da Silva
Lék með: Króatía
Hefði getað valið: Brasilíu
n Eduardo fór tiltölulega ungur að árum
til Króatíu eftir að vökulir njósnarar
Dynamo Zagreb fengu veður af hæfileik-
um hans. Þetta var árið 1999 þegar
Eduardo var 16 ára. Þremur árum síðar
fékk hann króatískan ríkisborgararétt
og árið 2004 var hann valinn í landslið
Króata. Meiðsli settu strik í reikninginn
á ferli Eduardos en í heildina lék hann
64 landsleiki fyrir Króata og skoraði
29 mörk. Hann lagði landsliðsskóna á
hilluna fyrr á þessu ári.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is