Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Page 39
Helgarblað 21.–24. nóvember 2014 Sport 39
Gátu valið sér landslið
Arsenal ósigrað í
23 heimaleikjum
Eusebio
Lék með: Portúgal
Hefði getað valið: Mósambík
n Eusebio er einn besti knattspyrnu
maður sögunnar en hann fæddist í
Afríkuríkinu Mósambík. Á unglingsárum
flutti hann til Portúgal og var valinn í
portúgalska landsliðið. Í heildina lék
þessi magnaði framherji 64 landsleiki
og skoraði hann 41 mark í þeim. Það
hefur væntanlega ekki verið erfitt fyrir
Eusebio að velja portúgalska landsliðið
fram yfir landslið Mósambík sem aldrei
hefur verið hátt skrifað í knattspyrnu
heiminum.
Mauro Camoranesi
Lék með: Ítalía
Hefði getað valið: Argentínu
n Mauro Camoranesi varð heimsmeist
ari með Ítölum árið 2006 en hann
hefði allt eins getað leikið fyrir landslið
Argentínu þar sem hann var með tvöfalt
ríkisfang. Hann fæddist í Argentínu en
var keyptur til Verona á Ítalíu árið 2000.
Árið 2002 var hann seldur til Juventus
og ári síðar var hann valinn í ítalska
landsliðið. Í heildina lék Camoranesi 55
landsleiki á sjö ára tímabili.
Simone Perrotta
Lék með: Ítalía
Hefði getað valið: England
n Simone Perrotta varð heimsmeistari
með Ítölum árið 2006 eins og Camora
nesi. Þessi sterki miðjumaður fæddist
á Englandi árið 1977. Þegar Perrotta
var fjögurra ára flutti fjölskylda hans til
Ítalíu og virðist aldrei hafa staðið til hjá
Perrotta að leika fyrir enska landsliðið.
Hann var fyrst valinn í ítalska U21
árs landsliðið árið 1998. Í heildina lék
hann 48 landsleiki fyrir Ítali og byrjaði
hann alla sjö leiki Ítala þegar þeir urðu
heimsmeistarar árið 2006.
n Manchester United heimsækir Emirates n 17 leikmenn á meiðslalistanum
S
tórleikur helgarinnar í
enska boltanum um helgina
er viðureign Arsenal og
Manchester United á Em-
irates-vellinum í London.
Leikurinn fer fram síðdegis á
laugardag. Bæði lið hafa verið í tals-
verðu basli upp á síðkastið. Arsenal
er í 6. sæti deildarinnar með 17 stig
eftir að hafa fengið aðeins 8 stig af
24 mögulegum í síðustu sex leikj-
um. United er hins vegar í 7. sæti
með 16 stig en liðið hefur fengið 11
stig af 24 mögulegum í síðustu sex
leikjum.
Öflugir á heimavelli
Þó að gengi Arsenal hafi valdið
stuðningsmönnum nokkrum von-
brigðum hefur árangur liðsins á
heimavelli verið góður undan-
farið. Arsenal er ósigrað í síð-
ustu 23 heimaleikjum sínum í úr-
valsdeildinni. Þá má geta þess að
Manchester United hefur ekki enn
unnið útileik á tímabilinu. Liðið hef-
ur gert þrjú jafntefli og tapað tveim-
ur leikjum.
Margir meiddir
Meiðsli hafa plagað leikmannahóp
beggja liða en samtals eru sautján
leikmenn úr liðunum á meiðsla-
listanum eða tæpir fyrir leikinn um
helgina. Hjá Arsenal ber helst að
nefna Olivier Giroud, Mikel Arteta,
Mesut Özil, Mathieu Debuchy og
Laurent Koscielny en hjá Man-
chester United Daley Blind, Mic hael
Carrick, David De Gea, Marcos Rojo
og Ashley Young. Þá hefur Falcao
glímt við meiðsli en vonast er til að
hann verði klár í slaginn á sunnu-
dag. Þá er ekki útséð hvort David De
Gea og Michael Carrick verði fjarver-
andi. Sömu sögu er að segja af Mikel
Arteta, Olivier Giroud og Laurent
Koscielny sem gætu náð leiknum.
Fátt stöðvar Chelsea
Chelsea, sem situr í toppsætinu,
tekur á móti WBA á laugardag.
Chelsea er í raun langefst með 29
stig, fjórum stigum meira en Sout-
hampton og átta stigum meira en
Manchester City sem er í 3. sæti.
Fátt virðist geta stöðvað Chelsea-
liðið sem virkar skrefi framar en öll
önnur lið í deildinni. WBA er í 13.
sæti deildarinnar.
Englandsmeistarar Manche-
ster City mæta Swansea á laugar-
dag í leik sem væntanlega verður
athyglisverður. Swansea er í 5. sæti
deildarinnar með 18 stig en City
sem fyrr segir í 3. sæti með 21 stig.
Liverpool heimsækir Crys-
tal Palace á sunnudag. Liverpool-
liðið vill væntanlega hefna fyr-
ir ófarirnar á Selhurst Park í fyrra
þegar liðin skyldu jöfn, 3–3, í ótrú-
legum fótboltaleik. Liverpool var
3–0 yfir þegar 12 mínútur voru eft-
ir en Palace tókst á ótrúlegan hátt
að jafna leikinn. Með því fóru tit-
ilvonir Liverpool svo gott sem út
um gluggann og komst Manchest-
er City í bílstjórasætið um enska tit-
ilinn. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Hart barist Arsenal og
Manchester United hafa
oft verið ofar á töflunni
þegar þau hafa mæst
á undanförnum árum.
Það er ljóst að leikmenn
munu leggja allt í sölurn
ar á laugardag.
Skora loksins með vinstri
Stefán Pálsson, sagnfræðingur og stuðn
ingsmaður Luton, spáir í leiki helgarinnar
í enska boltanum. Stefán býst við að
óvæntir hlutir gerist á Stamford Bridge
og að Liverpool fari sneypuför á Selhurst
Park.
Laugardagur
Chelsea - WBA 0–1
„Ég sá heillandi tölfræði um WBAliðið, að
það er eina liðið þar sem leikmenn hafa
enn ekki skorað mark með vinstri fæti á
tímabilinu. Ég hef trú á að það breytist um
helgina. Þeir munu vinna 1–0 með marki
sem verður skorað með vinstri.“
Everton - West Ham 2–1
„Ég þekki svo mikið af West Hammönn
um. Það verður aðeins lækkaður í þeim
rostinn og þeir tapa þessum leik, 2–1.“
Leicester - Sunderland 3–1
„Draumur hins hlutlausa áhorfenda. Þetta
er voðalega erfitt hjá Sunderland um
þessar mundir og góður tími fyrir Leicester
að mæta þeim. Þeir vinna þetta 3–1.“
Manchester City - Swansea 3–2
„Þetta verður markaleikur, 32 fyrir
heimamenn.“
Newcastle - QPR 2–2
„Það er jafnteflisþefur af þessum leik. QPR
má ekki fara niður því þá bíður liðsins sekt
argreiðsla og jafnvel gjaldþrot. Það verður
einhver dramatík í lokin. QPR er þekkt fyrir
að nota allan uppbótartímann.“
Stoke - Burnley 2–0
„Burnley er ekki að fara taka marga sigra
í vetur, því miður. Þetta verður leiðinlegur
og fyrirsjáanlegur 1–0 eða 2–0 sigur hjá
Stoke með skallamörkum.“
Arsenal - Man. United 2–1
„Ég hef smá „soft spot“ fyrir Arsenal, ég
verð nú að viðurkenna það. Ég hallast
frekar að því að þeir hafi þetta en það
verður naumt. Ég segi 2–1 fyrir Arsenal.
Hvorugt lið er gott í að halda hreinu.“
Sunnudagur
Crystal Palace - Liverpool 1–0
„Þetta er leikur sem mun væntanlega
vekja neikvæð hugrenningatengsl hjá
Liverpoolmönnum. Ég held að við séum
að horfa þarna á sigur Crystal Palace. Ég
held að sigurmarkið komi með fádæma
slysalegu marki.“
Hull - Tottenham 0–2
„Tvö lið í smá basli en Tottenham er aðeins
að skríða saman held ég. Ég á alltaf dálítið
erfitt með Hull. Fyrir ekki svo mörgum
árum voru mínir menn í Luton í blóðugri
baráttu um sigur í sinni deild og Luton og
Hull fóru saman upp. Svo breyttust örlögin
á mjög ólíkan veg fyrir þessi tvö lið. Það er
alltaf pínulítið sárt að sjá Hull þarna uppi
þannig að ég vil þeim allt það versta.“
Mánudagur
Aston Villa - Southampton 1–0
„Southampton er á miklu flugi en mér
þykir vænt um Aston Villa. Þeir voru
náttúrlega besta lið Evrópu þegar maður
var að byrja fylgjast með fótboltanum
í gamla daga. Það er ekkert hægt að
taka þetta Southamptonlið alvarlega
endalaust. Sú blaðra hlýtur að fara að
springa og það er ágætt að Aston Villa
sjái um það.“
Illa við Hull Stefán Pálsson er stuðnings
maður Luton sem leikur í fjórðu efstu deild
Englands. Honum er illa við Hull en liðin
voru á svipuðum slóðum fyrir örfáum árum.