Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Síða 40
Helgarblað 21.–24. nóvember 201440 Lífsstíll
Færðu það
of snemma?
Fimm ráð til að ná stjórn á sáðláti
Samkvæmt Harry Fisch, höfundi
The New Naked: The Ultimate
Sex Education for Grown-Ups,
þjást 45% karla af ótímabæru
sáðláti, þ.e. fá það innan tveggja
mínútna. Ekki örvænta. Það eru
til leiðir til að bæta úthaldið:
n Stærri magi
Stærðin skiptir
víst máli! Sam-
kvæmt rann-
sókn frá 2010 í
The Journal of
Sexual Medi-
cine halda of
þungir karlar mun
lengur út í rúminu en grannir
kynbræður þeirra. Meiri magafita
þýðir meira estradiol, kvenhorm-
ón sem hjálpar til við að hindra
fullnægingu.
n Umskurn
Í rannsókn sem birtist í Adult
Urology árið 2004 kom í ljós að
karlar héldu lengur út eftir að þeir
voru umskornir á fullorðinsaldri.
n Grindarbotnsæfingar
Grindarbotnsæfingar eru ekki
aðeins fyrir konur og þá sem
þjást af þvagblöðruvandamál-
um. Æfingarnar hjálpa mönnum
að ná stjórn á sáðláti. Í sænskri
rannsókn kom í ljós að frammi-
staða karla jókst til muna eftir tólf
vikna æfingar.
n Grænmetisfæði
Samkvæmt rannsókn sem birtist
í Yale Medical Journal hafa græn-
metisætur helmingi meira úthald
en kjötætur.
n Viagra
Litla bláa
taflan er ekki
aðeins góð
við risvanda-
málum því
hún getur einnig
hjálpað körlum í baráttunni við
of brátt sáðlát. Í rannsókn frá
2012 sem birtist í Journal of Sexu-
al Medicine kom fram að taflan
seinki sáðláti umtalsvert.
A
ugun geta sagt heilmikið um
persónur, hvað þær eru að
hugsa, hvernig þeim líður og
hvort þær sér séu að skrökva
eða segja satt. Og þótt einhver kunni
að halda að augnliturinn sé aðeins
útlitseinkenni þá getur hann einnig
sagt heilmikið um eigandann.
Árið 2008 komust vísinda-
menn að því að allir bláeygð-
ir eru erfðafræðilega tengdir sama
forföðurnum sem var uppi einhvern
tímann fyrir 6.000–10.000 árum.
Áður en hann kom til sögunnar
voru allir menn brúneygðir.
Sumir vísindamenn segja augn-
litinn tengjast sársaukaþröskuldi
okkar en í rannsókn kom fram að
konur með ljósari augu finna minna
til sársauka við fæðingu barna en
konur með dökk augu. Þær blá-
eygðu fundu einnig minna fyrir
kvíða, þunglyndi og neikvæðum
hugsunum í kjölfar fæðingar.
Aðrar rannsóknir gefa til kynna
að augnliturinn geti sagt til um það
hversu vel þú þolir áfengi. Þar kem-
ur fram að bláeygðir eru líklegri til
að misnota áfengi þar sem hinir
brúneygðu þoli meira magn.
Í ástralskri rannsókn kom svo
fram að einstaklingar með ljósari
augu hafi meira keppnisskap og
séu síður viðmótsþýðir (e. agree-
able) sem svo tengist hluttekningu,
vingjarnleika, örlæti og meðaumkun.
Svo er það rannsóknin þar sem
í ljós kom að þátttakendur sögðu
brúneygða mun áreiðanlegri en
bláeygða.
Enn aðrar rannsóknir tengja
augnlit við ákveðna sjúkdóma
eins og sykursýki, sortuæxli og
skjallbletti (e. vitiligo). Hægt er að
lesa meira um augnlit, heilsu og
persónuleika á nettímaritinu Medi-
cal Daily. n
indiana@dv.is
Bláeygðir frekar alkóhólistar
Hægt er að lesa ýmislegt úr augnlit okkar
Blá augu
Litur auganna
er ekki aðeins
útlitseinkenni.
É
g fékk hugmyndina að spilinu
Hver stal kökunni úr krúsinni?
frá klappleiknum sem mað-
ur lék sér í sem krakki,“ seg-
ir Embla Vigfúsdóttir leikja-
hönnuður, en hún er að senda frá
sér sitt fyrsta spil nú fyrir jólin. „Mig
langaði að vinna með þennan leik
því mér finnst hann ekkert afskap-
lega skemmtilegur. Hann er ein-
hvern veginn þannig að það veit
enginn nákvæmlega af hverju hann
er skemmtilegur. En setningin er
flott, hver er kökuþjófurinn?“
Byrjaði óvart að búa til spil
Embla útskrifaðist úr Danmarks
Design School í febrúar á þessu ári
og fór fljótlega að dunda sér við gerð
spilsins. „Ég byrjaði eiginlega alveg
óvart á spilinu, ég var bara allt í einu
komin með prótótýpuna.“
Fékk hjálp í gegnum
Karolina Fund
Að sögn Emblu var erfiðast að koma
spilinu í framleiðslu. Það er kostn-
aðarsamt og ekki á allra færi. „Ég
var eiginlega búin að fresta verkefn-
inu en þá mundi ég allt í einu eftir
Karolina Fund. Ég náði að safna fyr-
ir prentkostnaðinum þar og er það í
prentun núna. Það kemur svo í búð-
ir í byrjun desember. Ég valdi að
láta prenta það erlendis vegna þess
að það munaði svo miklu á kostn-
aðinum. Prentfyrirtækið sem ég
valdi sérhæfir sig í prentun spila svo
menn þar vita vonandi hvað þeir
eru að gera. Eina sem ég hef áhyggj-
ur af er að þetta komist ekki til skila
á réttum tíma. Það væri leiðinlegt ef
þetta týndist í tollinum eða eitthvað.
En ef það gerist þá fer það bara í sölu
næstu jól.“
Tengir saman áhugamálin
„Ég tók eftir því um daginn að spilið
tengdi saman öll mín helstu áhuga-
mál. Mér finnst afskaplega gaman
að baka og hvert spil er með mynd
af bakkelsi. Svo finnst mér rosa-
lega gaman að teikna og ég dundaði
mér við að teikna myndirnar á hvert
spil. Svo elska ég spil. Ég á 80 borð-
spil sem við vinirnir erum alltaf að
spila.“
Einfalt í spilun
Spilið er einfalt í spilun og allir ættu
að geta lært það, líka fólk sem spil-
ar sjaldan. „Leikreglurnar eru ekki
eins og þær sem fylgdu Lord of the
Rings-spilinu sem gefið var út fyrir
nokkrum árum. Það var heil bók.
Reglurnar fyrir spilið mitt rúmast á
einu A4-blaði. Það ættu allir að geta
lært þetta. Ég prófaði spilið með
fjölskyldunni og vinum mínum. Ég
held að þar sem mamma gat lært
spilið, þá geti allir lært það,“ segir
Embla og hlær.
„Tóm krús“
Leikmenn geta verið 3–7 og eru
alltaf með eitt spil á hendi. Hver
umferð er yfirleitt búin á innan við
10 mínútum. „Þegar þú átt að gera,
dregur þú annað spil. Þú velur svo
annað þeirra tveggja og leggur það
út. Hvert spil gerir mismunandi
hluti. Til dæmis ef þú færð kleinu,
máttu giska á hvaða spil einhver
annar heldur á. Ef þú giskar rétt er
hann úr leik. Hvert spil segir þér
hvað það gerir svo það þarf ekki að
leggja á minnið hæfileika hverar
köku. Hins vegar ef þú færð heitar
lummur, þá verður þú að setja þær
strax niður. Það eru nokkrar gerðir af
lummum og ef þú færð viðbrennda
lummu, þá missir þú úr umferð. Ef
þú færð grautarlummuna þá verða
allir að setja spilin sín í bunka og
rugla þeim, sem eru svo gefin á út
aftur. Eitt spilið er svo „tóm krús“.
Það varð óvart að brandara, við fött-
uðum allt í einu að það hljómar eins
og Tom Cruise. Það er ekki gott að
vera með það spil á hendi, því ef það
kemst upp um þig sem kökuþjóf þá
tapar þú. Hins vegar ef þér tekst að
halda í spilið út leikinn þá vinnur
þú. Það eru 35 spil í spilinu og það
spilast einhvern veginn aldrei eins,
það gerist alltaf eitthvað nýtt.“
Selt í skemmtilegum búðum
Emblu hlakkar til að heyra hvað
fólki finnst um spilið á Íslandi. „Ég
vil vita hvort fólk muni frekar taka
þetta spil upp en Ludo,“ segir hún
og hlær. „Annars verður spilið selt
í skemmtilegum búðum eins og
spilabúðum og hönnunarbúðum
víðsvegar um höfuðborgarsvæðið,
sem og Sjoppunni á Akureyri,“ segir
hún að lokum. n
Hver stal
kökunni
úr krúsinni?
n Lærði leikjahönnun í Danmörku n Segir alla geta lært spilið
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
„Leikreglurnar eru
ekki eins og þær
sem fylgdu Lord of the
Rings-spilinu sem gef-
ið var út fyrir nokkrum
árum. Það var heil bók.
Reglurnar fyrir spilið mitt
rúmast á einu A4-blaði.
Embla
Vigfúsdóttir
Henni og vinum
hennar finnst
fátt skemmti-
legra að en spila
spil. Hópurinn
hefur tvisvar
farið á stærstu
borðspilaráð-
stefnu í heimi í
Þýskalandi.
Tóm krús Það er ekki gott að enda á að
vera nappaður með þetta spil á hendi.
Grátt hár í tísku
Grár virðist vera heitasti hár-
liturinn í dag ef marka má hárlit
stjarnanna. Rihanna, Kylie Jenn-
er, Pink og Dascha Polanco hafa
allar sést með grátt hár.
Kylie Jenner eyddi 12 klukku-
stundum á hárgreiðslustofu ný-
lega til að lita svarta hárið sitt
grátt með grænum blæ. Rihanna
sagði að grár væri hinn nýi svarti
þegar hún birti myndir af sér.
Kelly Osbourne sagði hins
vegar þegar hún sást með grátt
hár árið 2012 að eftir þrítugt væri
orðið of seint að vera með litríkt
hár. Virðast því aðeins ungar kon-
ur milli tvítugs og þrítugs komast
upp með að lita hárið á sér grátt.