Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Blaðsíða 41
Lífsstíll 41Helgarblað 21.–24. nóvember 2014
Allar vörur DGJ orGanics
eru án Parabena og SLS
Þú velur
náttúrulega
É
g legg mikið upp úr því að
lifa í jafnvægi og til þess að
það takist þá þarf matar-
æðið að vera gott. Mér finnst
skipta miklu máli að elda allt
frá grunni, borða lítið af aukaefn-
um og reyna að borða eins lítið af
sykri og kostur er. Í öllum hraðan-
um sem er í gangi í nútímaþjóðfé-
lagi skiptir máli að eldamennsk-
an taki skamman tíma. Ég er ekki
hætt að borða sykur en það skipt-
ir máli að borða hann bara „blá-
spari“. Það er nefnilega ekkert að
því að hafa hversdagsleikann svo-
lítið einfaldan og leyfa sér meira
þegar mikið stendur til. Þá verð-
ur líka meira varið í sætindi ef þau
eru sjaldan í boði,“ segir fjölmiðla-
konan og ritstýra Smartlands,
Marta María Jónasdóttir, en MMM
Matreiðslubók Mörtu Maríu kom í
verslanir í gær.
Velur sætindin vel
Um þykka og veglega bók er að
ræða með 116 uppskriftum. „Þetta
er vönduð bók með fjölbreytt-
um fjölskylduuppskriftum,“ segir
Marta María brosandi og bætir við
að líklega séu 90% uppskriftanna
í hollari kantinum. „Í bókinni er
veglegur morgunverðarkafli, mik-
ið af heilsusamlegu meðlæti, sósur
sem gerðar eru frá grunni og súp-
ur. Svo er það kaflinn Guilty Plea-
sures, en í honum er að finna það
allra besta sem hægt er að mat-
reiða þegar eitthvað stendur til.
Mér finnst mjög mikilvægt að velja
sætindin vel og borða þau sjald-
an.“
Í þjálfun hjá kærastanum
Marta María hefur breytt um lífs-
stíl. Eftir 33 hreyfingarlaus ár er
hún komin á fullt í ræktina þar
sem hún æfir kraftlyfingar undir
dyggri leiðsögn kærastans, einka-
þjálfarans Ingimundar Björgvins-
sonar. Hún segir að mataræðið
hafi ósjálfrátt orðið betra eftir að
hún byrjaði að æfa. „Ég legg mikla
áherslu á að borða bara mat en
ekki duft,“ segir hún en neitar því
að kærastinn hafi kennt henni
mörg ný handtök í eldhúsinu.
„Hann veit að sjálfsögðu hvaða
matur gerir okkur gott og hverju
er best að sleppa. Við lesum mik-
ið utan á umbúðir á matvælum og
því meira sem ég geri af því verð
ég alltaf sannfærðari um að það sé
langhollast að matbúa allt sjálfur.
Í vor gerði ég tilraun á sjálfri mér
og fór í gegnum sykurlaust sumar.
Ég hætti að borða allan viðbættan
sykur, sælgæti, gos og slíkt. Það er
ótrúlegt hvað sykurinn hefur mik-
il áhrif. Sykur kallar á meiri sykur
og ég áttaði mig ekki á fyrr en ég
sleppti honum hvað sykurneysla
hefur margþætt áhrif á líkamann.
Ég fann hvernig húðin varð betri,
svefninn varð betri og lífið komst
almennt í betra jafnvægi. Ég mæli
eindregið með þessu.“
Erfitt til að byrja með
Hún viðurkennir að það hafi verið
erfitt til að byrja með að sneiða
fram hjá sykri. „Í eðli mínu er ég
mikill sælgætisgrís. Þótt ég borði
hollan mat þá hef ég oft dottið í
nammiát af og til og sérstaklega
þegar ég er þreytt. Að hluta til er
auðveldara að borða engan sykur
en bara smávegis. Þegar ég var
komin yfir versta kaflann hætti
ég að hugsa um sykur og verð ég
að játa að það er góður staður að
vera á. Þegar þráin í sætindi kom
fékk ég mér epli eða ber. Eftir þetta
sumar hef ég tamið mér að borða
bara sykur ef ég er boðin í boð eða
eitthvað slíkt.“
60 kíló í bekk
Marta María hefur fundið sig í
kraftlyftingum. „Þetta er besta
hreyfing sem ég hef prófað. Kraft-
lyftingar kalla á mikla einbeitingu
sem gerir að verkum að það er ekki
hægt að hugsa um neitt annað á
meðan. Fólk sem vinnur mikið
þarf nauðsynlega á því að halda að
hvíla hugann reglulega og í kraft-
lyftingunum næ ég því. Ég er bara
í mínu „zone“-i þegar ég lyfti,“ seg-
ir Marta María sem er farin að taka
60 kíló í bekk. „Sko á kjötinu, það
er að segja án búnaðar,“ skýtur hún
hlæjandi inn í. Aðspurð segist hún
aldrei hafa trúað því að hún myndi
falla fyrir kraftlyftingaíþróttinni.
„Í rauninni vantar allt íþróttagen
í mig, ég var alltaf lélegust í leik-
fimi og veit ekkert um boltaíþrótt-
ir, svo þetta kemur dálítið á óvart.
Það sem er samt aðalmálið í þessu
er að þetta er skemmtilegt. Það að
æfa reglulega losar um streitu og
gerir manni ekkert nema gott.“ n
„Sykur kallar
á meiri sykur“
n Marta María gefur út matreiðslubók n Búin að breyta um lífsstíl
Marta María Nýja bókin hennar Mörtu
Maríu heitir MMM Matreiðslubók Mörtu
Maríu.
„Þótt ég borði
hollan mat þá hef
ég oft dottið í nammi-
át af og til og sérstaklega
þegar ég er þreytt.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Taílenskar sesamkjötbollur
Eitt af því besta sem ég veit er að velta
kjötbollum upp úr sesamfræjum áður en
þær fara á pönnuna. Þetta litla trix gerir
alveg gæfumuninn.
500 gr svína- eða lambahakk
1 egg
1 salatlaukur, smátt skorinn
4 hvítlauksrif, smátt skorin
2 dl sesamfræ
1 ferskur, rauður chili-pipar, smátt
skorinn
2 tsk. lífrænn grænmetiskraftur
2 msk. kartöflumjöl, spelt eða möndlumjöl
olía til steikingar
salt og pipar eftir smekk
Settu hakkið í skál og gerðu holu í miðjuna.
Settu eggið í hana ásamt kartöflumjöli og
hrærðu saman. Bættu salatlauk, hvítlauk
og chili út í ásamt grænmetiskrafti og
blandaðu vel saman. Búðu til litlar bollur
og veltu þeim upp úr sesamfræjunum.
Steiktu bollurnar á pönnu á öllum hlið-
um. Gott er að hafa lok á pönnunni þegar
ekki er verið að velta þeim. Þetta tekur um
það bil 15 mínútur.
Settu bollurnar í eldfast mót þegar þær
hafa brúnast á öllum hliðum og stingdu
þeim inn í ofn á meðan sósan er búin til. Þá
taka þær sig og verða mjög góðar. Stilltu
ofninn á 175°C.
Taílensk tómatsósa
800 gr lífrænir tómatar í dós
1 msk. lífrænn grænmetiskraftur
1 msk. karríduft
1 límónulauf
1 stöngull sítrónugras
salt og pipar eftir smekk
1 msk. hnetusmjör
Settu tómatana á pönnuna og bættu
hinu hráefninu út í, nema hnetusmjörinu.
Láttu suðuna koma upp og hrærðu þá
hnetusmjörinu saman við. Láttu malla við
meðalhita í 5 mínútur.
Taktu svo bollurnar úr ofninum og settu
þær út í sósuna á pönnunni.
Nýr lífsstíll, ný bók
Marta María hefur
gjörbreytt um lífsstíl og
er meðal annars komin
á fullt í kraftlyftingar
eftir rúmlega 30 ára
hreyfingarleysi.
Kjötbollur Marta
María reynir að búa til
sinn mat frá grunni.