Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Síða 42
Helgarblað 21.–24. nóvember 201442
Ferskt
íslenskt
Ekkert lát er á íslensku grósk-
unni. Þetta er með því ferskara að
þessu sinni.
Ragga Gröndal sendi nýlega frá
sér plötuna Svefnljóð. Á plöt-
unni kveður við framandi tón
hjá söngkonunni
og draumkennd-
an, líkt og titillinn
gefur sterklega
til kynna. Titillag
plötunnar hefur
fengið að hljóma
stuttlega á öldum ljósvakans. Við
mælum þó einnig með lögunum
Litla Barn og Haustlauf.
Sunna Björk sendi frá sér plötu
á dögunum. Sú ber nafnið Biðu-
kolla og er hún einnig fyrsta plata
söngkonunnar. Á
plötunni tekur
hún fyrir gamlar
íslenskar perlur í
djass- og blúsút-
setningum. Söng-
konan Sunna Björk er
lítt þekkt hér á landi enda nýflutt
heim eftir langa dvöl erlendis þar
sem hún nam tónlist og söng.
Einar Þorgríms sendi frá sér
plötuna Dýr merkurinnar með
tólf glænýjum barnalögum. Á
plötunni sem er töfrandi saga um
söng dýranna má heyra allt um
ferðir Einars heimshorna á milli
með töfratæki sem breytir röddum
dýra í mannamál. Það er tónlistar-
maðurinn og þjóðlagasmiðurinn
Gímaldin sem útsetur tónana.
Væntaleg er þriðja sólóplata Gísla
Þórs Ólafssonar, Ýlfur. Hugmynd
plötunnar má rekja til heima-
gerðrar kassettu sem höfundur
gaf út í örfáum eintökum fyrir 16
árum. Ýlfur er safn tíu laga og eru
fimm textar eftir höfund, fjórir eft-
ir Geirlaug Magnússon og einn
eftir Gyrði Elíasson.
L
istamaðurinn sem stundum
kallar sig Prince er nú að gefa
út sína 19 plötu á 20 árum, en
erfitt er að nefna eitt einasta
lag frá þessu tímabili.
Öllu er til tjaldað á nýrri plötu
hans, gullnir hippar, viðtöl við sál-
fræðing og jafnvel stutt kynning á
dönsku. Kynlífsálfurinn (sem eitt
sinn var kosinn kynþokkafyllsta
grænmetisæta í heimi) er nú að
nálgast sextugt og er hér frekar í
hlutverki kynlífsráðgjafa. Hann
mælir með því að konur séu kysstar
á hálsinn, morgunmaturinn get-
ur beðið, en maður þarf að gera
sér grein fyrir valdi brjóstanna vilji
maður sigrast á þessu.
Í Affirmation-syrpunni kemur
hann fram undir raunverulegu
eftir nafni sem Mr. Nelson og leit-
ar á náðir miðils sem segir hon-
um að ekkert „ég“
sé til, aðeins „við.“
Ekki er ljóst hvort
niðurstaðan hér
er kynferðisleg
eða trúarleg eða
beggja blands,
en platan öll hefði þurft að vera
mun fókuseraðri til að verða góð
„konsept“-plata. Það eru góðar lín-
ur sem sameina bæði á borð við:
„You used to treat me like David/
Now I feel like Saul,“ en líklega er
niðurstaðan þessi hér: „Sex with
me ain't enough/ That's why we
gotta do it metaphysically.”
Lagið Gold Standard
situr örlítið í manni,
hér er ef til vill komið
popp fyrir erfiða tíma,
með undarlegum línum
á borð við „Let me see
you go Ebola/ I love the
way you shut your body
down.“
Fátt annað er jafn
eftirminnilegt. Prince
er sem fyrr fyrsta flokks
söngvari og hljóð-
færaleikari, en það vantar smellina
sem hann eitt sinn hristi svo auð-
veldlega fram úr erminni. n
Kynlífsálfur vex úr grasi
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Dómur
Art Official Age
Flytjandi: Prince
Útgáfurár: 2014
Geldof stærsti
vandi Afríku
Bob Geldof gaf í vikunni út enn
eitt neyðarsöfnunarjólalagið fyr-
ir Afríku, þrátt fyrir að hafa verið
margbeðinn um að hætta og þá
ekki aðeins af fólki með snefil af
tóneyra, heldur líka af íbúum allra
fimmtíu og sex landa álfunnar.
Lagið Do they know it's
Cristmas hefur verið endurút-
gefið þrjátíu árum eftir að það
kom fyrst út. Í ár safnast velmein-
andi einvalalið saman og syngur
kunnulegt stef, nú gegn ebólu.
Lagið hefur nú þegar verið harð-
lega gagnrýnt af íbúum álfunnar,
sem og hjálparsamtökum ytra þar
sem textinn þykir fara langt yfir
strikið og beinlínis draga upp ranga
mynd af lífinu í Afríku. – Haldið
ykkur fast, það eru nefnilega ekki
allir veikir og sveltandi þar.
Búið er að laga textann að-
eins til svo hann passi betur við
viðfangsefnið, hér eru tvær full-
yrðingar sem hafa farið sérstak-
lega fyrir brjóstið á Afríkubúum á
Twitter: „Where a kiss of love can
kill you and there’s death in every
tear“ og „There is no peace and
joy in west Africa this Christmas.“
Svona fyrir utan titil lags-
ins sem gefur til kynna að hið
óheppna Afríkufólk sé svo fjarri
hinum „heilaga Vesturheimi“
að það viti ekki einu sinni hvað
klukkan slær. Lagið er því ekki
aðeins niðurlægjandi fyrir íbúa
Afríku, heldur einnig brjálæðis-
lega rasískt og gefur frá sér ein-
hver skilaboð um að svart fólk
þurfi hvíta hetju. Það er fjarri lagi.
I
ngibjörg Elsa Turchi ólst upp
í Þingholtunum og byrjaði
snemma að læra á hljóðfæri,
eða um sex ára aldurinn. Hún,
eins og flestir, byrjaði á blokk-
flautu og vann sig síðan áfram í
píanó leik, harmóniku og á gítar.
Það var svo í menntaskóla sem hún
ákvað að leggja tónlistina fyrir sig.
Hún er á meðal fremstu bassa-
leikara landins og spilar með þrem-
ur hljómsveitum en sinnir auk þess
undirleik fyrir fjölda annarra lista-
manna. Hún einn stofnmeðlima
Stelpur rokka sumarbúðanna á Ís-
landi og kennir forngrísku í MR.
„Það var eiginlega bara tilviljun
að ég tók upp bassann. Mér fannst
það allt í einu eitthvað heillandi
hljóðfæri og ég fór svo í kjölfarið að
fylgjast með bassaleikkonum. Það
var þannig ekki einhver fyrirmynd
sem kom mér af stað, heldur leit-
aði ég þeirra eftir á. Það eru ekki
svo margar áberandi fyrirmyndir
fyrir stelpur þarna úti, og þá á ég
við hljóðfæraleikara þar sem þær
eru margar í söng.“
Verkefnastýra Stelpur rokka
Ingibjörg er einn stofnenda sum-
arbúðana Stelpur rokka hér á
landi. Með verkefninu vilja að-
standendur hvetja stelpur af öllum
gerðum til þess að sleppa fram af
sér beislinu og læra á hljóðfæri án
sjálfsefa.
„Ég held að þetta muni skila
sér [inn í tónlistasenuna, innsk.
blm.] innan fimm ára. Það er ótrú-
lega magnað að fylgjast með þeim.
Ég held að þetta sé það mest gef-
andi sem ég hef nokkurn tímann
gert. Þú fylgist með þínum stúlkum
allan tímann. Ég kenni þeim á gít-
ar og bassa. Svo endar námskeiðið
alltaf á að maður er hágrátandi á
lokatónleikum. Þær eru svo flottar.“
Yfir standa viðræður við Reykja-
víkurborg um að innleiða styttri
námskeið á vegum Stelpur rokka í
frístundastarf grunnskólannna eft-
ir áramót.
„Það er draumurinn, að geta
starfað við þetta allan ársins hring
og þá ekki bara í sjálfboðaliða-
starfi. Ég væri til í að strákar gætu
líka komið, og þá er ég að tala
um stráka sem skilgreina sig sem
stráka. Því að það er svo mikilvægt
að þeir fái líka að sjá kvenfyrir-
myndir í hljóðfæraleik. Þar sem
starf okkar gengur fyrst og fremst
út á námskeið fyrir stelpur og öll
þau sem skynja sig sem stelpur, þá
er þetta flókin umræða,“ segir Ingi-
björg hugsi.
„Það má samt gjarnan velta
þessu fyrir sér. Ef við bjóðum öllum
nema cis-strákum, þá finnst manni
það líka svo ósanngjarnt eitthvað,“
bætir hún við.
Læs á fornar tungur
Líkt og áður kom fram er Ingibjörg
í þremur hljómsveitum; Boogie
Trouble og Ylju ásamt því að spila
undir hjá Soffíu Björgu. Hún leggur
einnig stund á nám í FÍH og sinn-
ir jafnframt kennslu í Menntaskól-
anum í Reykjavík. „Ég er að kenna
grísku í MR. Ég er með BA í latínu
og forngrísku,“ útskýrir hún.
„Ég var í MR og fannst fornmál-
in mjög áhugaverð. Eftir menntó
fór ég því beint í háskólann og lauk
þar tungumálaprófi. Tungumál-
in eru einhvernvegin svo fullkom-
ið mótvægi við hljóðfæraleikinn,"
segir hún að lokum. n
María Lilja Þrastardóttir
maria@dv.is
Kennari
á daginn
og „bassa
leikkona“
á kvöldin
„Svo endar nám-
skeiðið alltaf á að
maður er hágrátandi á
lokatónleikum. Þær eru
svo flottar.
Ingibjörg Elsa er einn stofnmeðlima Stelpur
rokka sumarbúðanna og kennir forngrísku í MR
Tók upp bassan fyrir tilviljun
Ingibjörg er á meðal fremstu
bassaleikara á Íslandi um þessar
mundir. Mynd SIGTryGGur arI