Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Síða 50
50 Menning Sjónvarp Helgarblað 21.–24. nóvember 2014
Ég kenndi syni
mínum að ljúga
U
ppeldi barna er líklega
vandasamasta hlutverk
sem ég hef tekið að mér.
Stundum finnst mér ég
hafa brugðist í því hlut
verki. Nýlega átti sér stað á heim
ilinu atvik sem ýtti undir þá kenn
ingu mína. Það gerðist þar sem
ég sat við kvöldverðarborðið með
fjögurra ára saklausum syni mín
um. Vel lá á okkur feðgum og ég
ákvað, eftir enga umhugsun, að
leggja fyrir hann þroskapróf.
Ég ákvað að sjá hvað gerðist ef
ég segði honum ósatt, eitthvað sem
stangaðist á við vitneskju hans.
Þannig vildi til að móðir hans hafði
varið stórum hluta dagsins í eld
húsinu við að undirbúa metnaðar
fulla máltíð. Það hafði ekki farið
fram hjá þeim stutta – enda hafði
móðir hans lagt blátt bann við
hvers kyns snarli fyrir kvöldmat. Ég
hafði á sama tíma verið að heiman
og ekki komið nálægt matar
gerð. Ég lét til skarar skríða. „Emil
Daði. Finnst þér maturinn góður?“
spurði ég. „Já,“ svaraði hann með
fullan munninn. Svo sagði ég: „Ég
eldaði matinn. Og mamma var ekki
heima.“
Sá stutti leit á sposkan pabba
sinn á meðan hann tuggði og
kyngdi. Þögnin varði í fimm sek
úndur. Að þeim liðnum rak hann
upp rokna hlátur. Hann hló svo
mikið að máltíðinni var sjálfkrafa
lokið. Honum var svo skemmt að
hann kom eiginlega ekki upp orði í
nokkrar mínútur.
Þegar hann hafði náð áttum
fór hann að endurtaka lygina.
Það þótti honum brjálæðislega
fyndið. Hann gekk um allt hús og
laug; jafnt að bangsanum sínum,
nýfæddum litla bróður og mömmu
sinni. Við hlógum með. Það var
ekki fyrr en nokkrum dögum síð
ar sem það rann upp fyrir mér að
ég hefði gert mikil mistök. Dreng
urinn hefur nefnilega á skömmum
tíma náð tökum á þessu formi frá
sagnar, eins og raunar allmargir Ís
lendingar aðrir.
Nú er svo komið að þegar sá
gállinn er á honum ratar drengn
um ekki satt orð á munn. Engin leið
er að veiða upp úr barninu hvað
það aðhafðist á leikskólanum eða
fékk þar að borða. Hann segir það
sem honum dettur í hug – eða þykir
fyndið. „Prump“ er algengt svar við
spurningum sem hann áður svar
aði af hreinskilni.
Á einni kvöldstund tókst mér
sem sagt að eyðileggja þá barnslegu
einlægni sem við foreldrarnir bjugg
um að í barni okkar. Drengurinn
verður líklega aldrei samur því hann
lýgur við hvert tækifæri – án þess að
svo mikið sem depla auga. Hann
hefur alla á heimilinu í vasanum.
Annað tveggja er í stöðunni.
Hann þroskast og lærir að hætta
að ljúga. Þá hef ég engar áhyggjur.
Hin leiðin er að lygar verði hluti af
persónuleikanum – og ég verð að
lifa með því að hafa kennt honum
ósannsögli. Það væri auðvitað af
leitt, þó nýleg dæmi sanni að þeir
sem ljúga geti komist til metorða
í samfélaginu – þar til upp um þá
kemst. n
„Á einni kvöld-
stund tókst mér
sem sagt að eyðileggja
þá barnslegu einlægni
sem við foreldrarnir
bjuggum að í barni okkar.
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport
L
eikstjórinn Bryan Singer
hefur hafið leit að leikurum
til að leika hlutverk í næstu X
Menkvikmynd. Staðfest hef
ur verið að Michael Fassbender og
James McAvoy taki við hlutverkum
Magneto og Xavier á ný. Eins mun
Jennifer Lawrence leika Mystique.
Hins vegar vantar leikara í hlut
verk Jean Grey og Cyclops. Sú sem
þykir líklegust til að leika Jean Grey
er Chloë Moretz, sem þekktust er
fyrir hlutverk sitt í Kick Asskvik
myndunum. Elle Fanning, systir
Dakota Fanning, hefur einnig verið
nefnd en óvíst er að hún hafi áhuga
á því. Ben Hardy, Charlie Rowe og
Timothee Chalamet eru hugsanleg
ir í hlutverk Cyclops.
Næsta mynd mun heita XMen:
Apocalypse og gerist á 9. áratugn
um. Sögusagnir eru á kreiki um að
hún muni að stórum hluta fjalla
um ástarsamband milli Magneto
og Mystique á milli þess sem þau
reyna að ráða að niðurlögum hins
sterka Apocalypse. n
helgadis@dv.is
Bryan Singer leitar að leikurum í næstu X-Men-mynd
Tom Cruise gæti fetað í fótspor Seans Connery
Moretz hugsanlega næsta Jean Grey
Sunnudagur 23. nóvember
Stöð 2 Sport 2
Bíóstöðin
Gullstöðin
Stöð 3
07.00 Morgunstundin okkar
07.01 Smælki (11:26)
07.04 Sara og önd (3:40)
07.11 Tillý og vinir (39:52)
07.22 Kioka (4:78)
07.29 Pósturinn Páll (2:14)
07.44 Ólivía (41:52)
07.55 Ævintýri Berta og Árna
07.59 Vinabær Danna tígurs
08.10 Kúlugúbbarnir (12:26)
08.34 Tré-Fú Tom (3:13)
08.56 Um hvað snýst þetta
allt? (42:52)
09.00 Disneystundin (46:52)
09.01 Finnbogi og Felix (3:10)
09.24 Sígildar teiknimyndir
09.30 Herkúles (3:10)
09.53 Millý spyr (67:78)
10.00 Chaplin (15:50)
10.06 Undraveröld Gúnda
10.20 Fisk í dag e (6:8)
10.30 Óskalög þjóðarinnar e
11.25 Hraðfréttir e
11.50 Djöflaeyjan 888 e (8:27)
12.20 Studíó A 888 e
13.10 Stephen Fry fær
borgarlyklana e (Fry on
the Wall - The City)
14.00 Bergbrot - Nýja orku-
æðið e (Fracking: The
New Energy Rush)
14.50 Vert að vita e (2:3)
(Things you need to know)
15.35 Ævintýri Merlíns e (2:13)
(The Adventures of Merlin)
16.20 Best í Brooklyn e (3:22)
(Brooklyn Nine-Nine)
16.45 Saga af strák e (3:13)
(About a Boy)
17.10 Táknmálsfréttir (84)
17.20 Stella og Steinn (22:42)
17.32 Sebbi (7:40)
17.44 Ævintýri Berta og Árna
17.49 Hrúturinn Hreinn (6:10)
17.56 Skrípin (28:52)
18.00 Stundin okkar 888
18.25 Basl er búskapur (5:10)
19.00 Fréttir
19.20 Íþróttir
19.35 Veðurfréttir
19.40 Landinn 888 (10)
20.10 Óskalögin
1994 - 2003 (1:5)
20.15 Orðbragð (3:6)
20.50 Downton Abbey 8,8 (6:8)
Breskur myndaflokkur
sem gerist upp úr fyrri
heimsstyrjöld og segir frá
Crawley-fjölskyldunni og
þjónustufólki hennar.
21.40 Bangsi 7,2 (Teddy Bear)
Áhrifamikil dönsk mynd sem
vann til verðlauna á Sund-
ance kvikmyndahátíðinni
árið 2012. Vaxtarræktarmað-
ur heldur til Taílands í leit að
ást og hamingju. Heimurinn
sem mætir honum er hrár og
blygðunarlaus, þar til hann
kynnist Toi. Aðalhlutverk:
Kim Kold, David Winters og
Elsebeth Steentoft. Atriði í
myndinni eru ekki við hæfi
ungra barna.
23.15 Afturgöngurnar e (8:8)
(Les revenants) Atriði í
þáttunum eru ekki við hæfi
barna.
00.10 Útvarpsfréttir
10:20 Þýsku mörkin
10:50 Spænski boltinn
12:30 Formula 1 2014
15:30 NBA
15:55 Spænski boltinn
17:35 Spænski boltinn
19:15 Meistaradeild Evrópu
19:45 Formula 1 2014
22:05 UFC Live Events
23:55 Undankeppni EM 2016
(Þýskaland - Gíbraltar)
08:20 Premier League
10:00 Premier League
11:40 Premier League
(Man. City - Swansea)
13:20 Premier League
(Crystal Palace - Liverpool)
15:50 Premier League
(Hull - Tottenham)
18:00 Premier League
(Chelsea - WBA)
19:40 Premier League
(Crystal Palace - Liverpool)
21:20 Premier League
(Hull - Tottenham)
23:00 Premier League
(Leicester - Sunderland)
07:20 Multiplicity
09:15 Africa United
10:45 Hyde Park On Hudson
12:20 Hook
14:40 Multiplicity
16:35 Africa United
18:05 Hyde Park On Hudson
19:40 Hook
22:00 The Pursuit of Happyness
23:55 Brake
01:35 Afterwards
03:25 The Pursuit of Happyness
07:15 Tónlistarmyndbönd
16:40 The Carrie Diaries
17:25 The Amazing Race (2:12)
18:10 Are You There,
Chelsea? (3:12)
18:35 Last Man Standing (16:18)
19:00 Man vs. Wild (7:13)
19:45 Bob's Burgers (19:23)
20:10 The Cleveland Show (21:22)
20:35 American Dad (8:20)
21:00 Allen Gregory (4:7)
21:20 The League (13:13)
21:45 Almost Human (13:13)
22:30 Friends With Benefits (13:13)
22:55 Graceland (12:13)
23:35 The Vampire Diaries (19:23)
00:15 Man vs. Wild (7:13)
01:00 Bob's Burgers (19:23)
01:25 The Cleveland Show (21:22)
01:50 American Dad (8:20)
02:10 Allen Gregory (4:7)
02:35 The League (13:13)
03:00 Almost Human (13:13)
17:10 Strákarnir
17:40 Friends (15:24)
18:05 Arrested Development (9:15)
18:40 Modern Family (19:24)
19:05 Two and a Half Men (17:22)
19:30 Viltu vinna milljón? (9:19)
20:15 Suits (11:12)
21:00 The Mentalist (7:22)
21:40 The Tunnel (6:10)
22:30 Sisters (4:24)
23:20 The Tudors (2:10)
00:15 Viltu vinna milljón? (9:19)
01:00 Suits (11:12)
01:45 The Mentalist (7:22)
02:25 The Tunnel (6:10)
07:00 Barnatími Stöðvar 2
07:01 Strumparnir
07:25 Könnuðurinn Dóra
07:50 Algjör Sveppi
07:55 Doddi litli og Eyrnastór
08:05 Ben 10
08:30 Latibær
08:40 Grallararnir
09:00 Elías
09:10 Lukku láki
09:35 iCarly (25:25)
10:00 Kalli kanína og félagar
10:10 Ævintýraferðin
10:20 Tommi og Jenni
10:40 Scooby-Doo!
11:00 Villingarnir
11:25 Ozzy & Drix
11:45 Töfrahetjurnar (9:10)
12:00 Nágrannar
12:20 Nágrannar
12:40 Nágrannar
13:00 Nágrannar
13:20 Nágrannar
13:45 Stelpurnar (9:12)
14:10 A to Z (6:13)
14:40 The Big Bang Theory (5:24)
15:10 Heilsugengið (7:8)
15:35 Á fullu gazi (2:6)
16:10 Um land allt (5:12)
16:45 60 mínútur (8:53)
17:30 Eyjan (13:20)
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Sportpakkinn (65:100)
19:10 Ástríður (3:10)
19:40 Sjálfstætt fólk (9:20)
20:15 Rizzoli & Isles (2:18)
Fimmta þáttaröðin um
rannsóknarlögreglukonuna
Jane Rizzoli og lækninnn
Mauru Isles sem eru afar
ólíkar en góðar vinkonur
sem leysa glæpi Boston-
mafíunnar saman.
21:00 Homeland 8,5 (8:12)
Fjórða þáttaröð þessarra
mögnuðu spennuþátta
þar sem við höldum áfram
að fylgjast Með Carrie
Mathieson, starfsmanni
bandarísku leyniþjón-
ustunnar. Líf hennar er
alltaf jafn stormasamt og
flókið, föðurlandssvikarar
halda áfram að ógna öryggi
bandarískra þegna og hún
og Sal takast á við erfiðasta
verkefni þeirra til þessa.
21:50 Shameless 8,7 (5:12)
Fjórða þáttaröðin af
þessum bráðskemmtulegu
þáttum um skrautlega
fjölskyldu. Fjölskyldufaðir-
inn er forfallinn alkóhólisti,
mamman löngu flúin að
heiman og uppátækjasamir
krakkarnir sjá um sig sjálfir.
22:45 60 mínútur (9:53)
23:35 Eyjan (13:20)
00:25 Brestir (5:8)
00:55 Daily Show: Global
Edition
01:20 Outlander (6:16)
02:15 Legends (10:10)
03:00 The Newsroom (2:6)
03:50 My Cousin Vinny
05:45 Fréttir
06:00 Pepsi MAX tónlist
10:40 The Talk
11:25 The Talk
12:10 Dr.Phil
12:50 Dr.Phil
13:30 Dr.Phil
14:10 Skrekkur 2014
16:05 Survivor (7:15)
16:50 Growing Up Fisher (10:13)
17:10 The Royal Family (10:10)
17:35 Welcome to Sweden (10:10)
18:00 The Biggest Loser
- Ísland (3:11)
18:50 Minute To Win It Ísland
(10:10)
19:50 Solsidan (1:10) Endursýn-
ingar á þessum frábæru
sænsku gamanþáttum
sem slógu í gegn meðal
áskrifenda SkjásEins. Hin
snobbuðu Freddie og Mickan
eru við sama heygarðshornið
ásamt nískupúkanum og
einum mest fráhrindandi
karakter norrænnar sjón-
varpssögu, Ove.
20:15 Red Band Society (7:13)
Allir ungu sjúklingarnir í Red
Band Society hafa sögu að
segja og persónuleg vanda-
mál að yfirstíga. Vandaðir
og hugljúfir þættir fyrir alla
fjölskylduna.
21:00 Law & Order: SVU (15:24)
21:45 Fargo 9,1 (9:10) Fargo eru
bandarískir sjónvarps-
þættir sem eru skrifaðir
af Noah Hawlay og eru
undir áhrifum samnefndrar
kvikmyndar Coen bræðra
frá árinu 1996 en þeir eru
jafnframt framleiðendur
þáttanna. Þetta er svört
kómedía eins og þær gerast
bestar.
22:35 Hannibal 8,6 (9:13)
Önnur þáttaröðin um lífs-
nautnasegginn Hannibal
Lecter. Rithöfundurinn
Thomas Harris gerði hann
ódauðlegan í bókum
sínum og kvikmyndir sem
gerðar hafa verið, hafa
almennt fengið frábærar
viðtökur. Þótt erfitt sé að
feta í fótspor Anthony
Hopkins eru áhorfendur
og gagnrýnendu á einu
máli um að stórleikarinn
Mads Mikkelsen farist það
einstaklega vel úr hendi.
Heimili fjöldamorðingins,
mannætunnar og
geðlæknirisins Hannibals
Lecter er á SkjáEinum. Lög-
reglan skoðar mál þar sem
lík vörubílstjóra virðist hafa
verið rifið í tvennt af tveim-
ur ólíkum dýrategundum.
23:20 Reckless (12:13)
00:10 CSI (3:20)
00:55 The Tonight Show
01:40 Law & Order: SVU (15:24)
02:25 Fargo (9:10)
03:15 Hannibal (9:13)
04:00 Pepsi MAX tónlist
Chloe Moretz Hún hefur leikið síðan
hún var sjö ára og leikið í fjölda kvik-
mynda og sjónvarpsþátta. MYND REUTERS
Emil í Ævin-
týragarðinum
Hann réð sér
ekki fyrir kæti,
þegar hann lærði
listina að ljúga.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Helgarpistill
Vilja Cruise í Highlander
K
vikmyndafyrirtækið Summit
hefur reynt í nokkur ár að
endurgera High lander.
Handrit hafa verið endur
skrifuð og nokkrir leikstjórar
komið og farið. Kvikmyndaverið
bindur nú vonir við að koma
myndinni í framleiðslu ef það
fær Tom Cruise til að leika hlut
verkið sem áður var leikið af Sean
Connery.
Cedric NicolasTroyan hefur
verið ráðinn sem leikstjóri en
hann er aðallega þekktur fyrir að
vinna með tæknibrellur í mynd
um eins og Snow White and the
Huntsmen og The Ring.
Tom hins vegar er á fullu þessa
dagana að undirbúa Mission
Impossible 5 og því óvíst hvenær
tökur gætu hafist ef hann tekur
að sér hlutverkið. n
helgadis@dv.is
Tom Cruise Leikarinn er enn vinsæll
hasarmyndaleikari, þrátt fyrir að vera
kominná sextugsaldurinn.