Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Síða 54
Helgarblað 21.–24. nóvember 201454 Fólk
G
rínistarnir Saga Garðarsdóttir
og Steindi Jr. hafa undanfarið
tekið saman höndum og
„snappað“ saman á Snapchat
undir nafninu Ostadúettinn.
Saga segir að henni hafi ekki
dottið í hug að gera þetta án hjálp-
ar Steinda. „Mér fannst fáránlegt
að fara að standa í nokkru gríni án
þess að fá Steinda, minn kærasta
grínvin, með mér,“ segir Saga. „Við
vorum búin að plana að gera fullt
af sketsum saman en ég er að fara
til New York-borgar, svo við verðum
meira að snappa hvort í sínu lagi.“
Þau ákváðu að gera allt sem
þeim datt í hug og reyna að hafa
snöppin eins „spontant“ og þau
gátu. „Við ætluðum að gera nokkra
útpælda en annars bara leika okk-
ur og snappa allt það skemmtilega
fólk sem við hittum í dagsins önn.
Skemmtilegast fannst mér þegar
við fórum og gerðum dyraat en
vorum ekki búin að ákveða hvern-
ig það átti að fara fram. Ég klúðraði
því algjörlega, það var alveg ótrú-
lega lúðalegt.“
Saga er að fara í stutt frí til New
York og verða því ekki mjög mörg
snöpp með þeim saman. „Ég ætla
að leika mér og fara í sleik og borða
vel þroskaðan ananas og tómata
með bragði. Mín snöpp verða
kannski bara í rómantískara lagi. En
Steindi heldur uppi gríninu.“
Hægt er að fylgjast með þeim
undir nafninu novaisland á
Snapchat og hvetur Saga alla sem
hafa áhuga á Steinda-gríni og henn-
ar lúðalega lífi til að fylgjast með. n
helgadis@dv.is
Saga og Steindi snappa saman
Ostadúettinn gerir stutta grínsketsa á Snapchat
Saga Garðarsdóttir Útskrifaðist úr
leiklistardeild LHÍ 2012, en er einnig uppi-
standari. Mynd SiGtryGGur Ari
Steindi Jr. Er einna þekktastur fyrir hlut-
verk sitt í þáttunum Steindinn okkar.
Andri Freyr
orðinn pabbi
Útvarps- og sjónvarpsmaðurinn
Andri Freyr Viðarsson varð pabbi
þann 18. nóvember síðastliðinn,
en hann eignaðist dóttur með
unnustu sinni, Hjördísi Ernu Þor-
geirsdóttur. Það var samstarfs-
félagi hans, Guðrún Dís Emils-
dóttir, sem tilkynnti hlustendum
Virkra morgna á Rás 2 tíðindin í
upphafi þáttarins þennan sama
dag. Leikarinn Gunnar Hansson
var þar mættur í settið í stað
Andra og hvatti hann Gunnu Dís
til að útskýra af hverju Andri væri
ekki á svæðinu. Hún var hálf-
feimin við það í fyrstu og sagðist
vona að nánustu aðstandendur
væru búnir að frétta þetta, svo
hún væri ekki að tilkynna þeim
fjölgunina í útvarpinu. Gunna
sagði að það fyrsta sem hún hafi
gert þegar hún frétti að barnið
væri fætt, hafi verið að tékka á
dagsetningunni, til að sjá hvernig
kennitalan liti út.
Fetar í fótspor pabba
n Birgir Steinn er sonur Stefáns Hilmarssonar n Syngja saman á nýrri jólaplötu
Þ
etta er í fyrsta skiptið sem
við syngum saman. Hann
bara spurði mig hvort ég
vildi syngja lag á plötuna og
þar sem ég hef sjálfur gert
„cover“ á þessu lagi sló ég til,“ segir
Birgir Steinn Stefánsson, sonur tón-
listarmannsins Stefáns Hilmarsson-
ar. Birgir Steinn syngur eitt lag á nýrri
jólapötu Stefáns en lagið er íslensk
útgáfa af hinu vinsæla All I Want for
Christmas.
Hljómsveitin September
Birgir, sem er 22 ára nemi á fyrsta ári
í tómstunda- og félagsmálafræði við
Háskóla Íslands, hefur lítið unnið að
tónlist hingað til. „Ég hef samt að-
eins verið að dunda mér síðustu árin,
sett lög inn á Youtube og svona en
það hefur ekki verið neitt alvarlegt.
Þetta er í fyrsta skiptið sem ég syng
inn á plötu,“ segir hann og neitar því
að hafa verið í mörgum hljómsveit-
um. „En ég og vinur minn stofnuðum
hljómsveitina eða dúettinn Septem-
ber núna í september og höfum þegar
gefið út eitt lag sem er komið í spilun
á nokkrum útvarpsstöðvum. Við spil-
um svona „feel good“-popptónlist.
Ætli það lýsi því ekki best.“
Mikilvægast að hafa gaman
Hann segir að það væri gaman að feta
í fótspor föður síns og hella sér út í
tónlist. „Það væri samt ansi erfitt að
ætla að fylgja pabba eftir og Sálinni
hans Jóns míns sem að mínu mati er
með betri hljómsveitum sem Ísland
hefur upp á að bjóða. En maður leikur
sér að þessu og svo verður algjör bón-
us ef fólk fílar það sem maður er að
gera.“ Birgir Steinn mun koma fram
á tónleikum Stefáns sem fram fara í
Salnum í Kópavogi þann 5., 7., 11. og
12. desember. „Ég fæ að syngja eitt-
hvað með honum, ég veit ekki hvað
en ég fæ allavega að stíga eitthvað
upp á svið. Ég hef aldrei sungið með
honum opinberlega áður svo það
verður mjög skemmtilegt,“ segir hann
en neitar því að finna fyrir kvíða. „Ég
er aðallega bara spenntur en auðvitað
verður maður alltaf pínu kvíðinn. Það
fylgir. Mín reynsla er sú að um leið og
fyrsta línan er komin út þá gleymir
maður stressinu algjörlega. Þá kikkar
andrenalínið inn. Þetta er svo gaman
og það er það mikilvægasta; að hafa
gaman af þessu.“
Líf samið um hann
Líklega kannast flestir Íslendingar
við lagið Líf en textann samdi Stefán
til Birgis þegar hann var lítill. „Já, það
er rétt, Líf er samið um mig. Mér þyk-
ir ofsalega vænt um þetta lag. Þetta
er flott lag og ég er ótrúlega ánægð-
ur með þessi hlýju orð frá pabba mín-
um,“ segir hann brosandi og bætir við
að það sé erfitt að velja sitt uppáhalds
Stebba Hilmars-lag. „Ég fíla þessi vin-
sælu lög eins og Sódóma og Hvar er
draumurinn? Undir þínum áhrifum
með Sálinni er gífurlega fallegt. Það
lag var samið um litla bróðir minn.
Ætli það sé ekki mitt uppáhalds Sál-
ar-lag. Svo er ég líka rosalega hrifinn
af síðustu jólaplötu pabba og er ekki
frá því að nýja jólaplatan sé enn betri.“
Frægðin truflar ekki
Birgir Steinn segir þá feðga mikla fé-
laga. „Að sjálfsögðu. Við höfum alltaf
verið góðir vinir,“ segir hann og neit-
ar því að hafa einhvern tímann fund-
ist skrítið að eiga svo frægan föður.
„Ég held að ég hafi aldrei montað mig
neitt á því. Það hefur aldrei truflað
mig. Þetta er það eina sem ég þekki
og að mínu mati er alveg eins að eiga
pabba sem er söngvari eins og pabba
sem er smiður eða eitthvað,“ segir
hann hlæjandi að lokum. n
indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Mér þykir ofsalega
vænt um þetta
lag. Þetta er flott lag og
ég er ótrúlega ánægður
með þessi hlýju orð frá
pabba mínum.
Feðgar Birgir
Steinn, Stefán
og Steingrím-
ur Dagur.
Birgir Steinn Birgir
Steinn er elsta barn
Stebba Hilmars.
Mynd SnOrri BJörnSSOn
Alma með
fjólublátt hár
Alma í The Charlies birti mynd
nýlega á Instagram sínu þar sem
hún er með fjólublátt hár. Eins
birti hún mynd þar sem hún var
að semja tónlist með CLMD.
Þær stöllur í The Charlies
virðast hafa það nokkuð gam-
an í Kalíforníu en á hrekkjavöku
klæddu þær sig upp bæði sem
Crayon-vaxlitir og sem meðlimir
Spice Girls. Þess á milli eru þær
að semja tónlist og sólbaða sig.
Lítið hefur heyrst frá hljóm-
sveitinni að undanförnu en fyrr
á þessu ári gáfu þær út lagið
Hello Luv.
Aníta í fötum
eftir Svölu
Leikkonan Aníta Briem fór nýver-
ið á frumsýninguna á myndinni
Beyond the Lights íklædd fatnaði
hönnuðum af
Svölu Björg-
vins. Söng-
konan kallar
sig Svala Kali
og var Aníta í
jakka og sam-
festingi úr
fatalínu henn-
ar.
Snemma á þessu ári eign-
aðist Aníta sitt fyrsta barn
með eiginmanni sínum Dean
Paraskevopoulos. Hún útskrif-
aðist úr RADA árið 2004 og náði
ágætum vinsældum eftir að hún
lék eitt aðalhlutverkið í kvik-
myndinni Journey to the Center
of the Earth með Brendan Fraser.
Eins lék hún Jane Seymor í írsk-
kanadísku þáttunum The Tudors.