Tímarit UNIFEM - 01.01.2008, Qupperneq 5
5
Hvers vegna að vekja athygli á stöðu kvenna í
Afganistan, Líberíu eða Austur-Kongó? Það má
færa fyrir því ótal rök að okkur varðar öll um
stöðu kvenna í fjarlægum löndum. Nú þegar
heimurinn þarfnast nýrra hugmynda og tæki-
færa til uppbyggingar er ekki úr vegi að kynna
sér aðstæður og hlutskipti kvenna víða um
heim. Ef okkur tækist að leysa úr læðingi þá
orku, útsjónarsemi og það frumkvæði sem býr
í helmingi mannkyns, konum sem að óbreyttu
munu aldrei ganga í skóla, aldrei fá greidd laun
fyrir vinnu sína og eru fórnarlömb ofbeldis og
átaka, þá værum við örugglega einu skrefi
framar en við erum í dag. Bestu rökin hljóta
hins vegar að vera þau að okkur sem búum í
hnattvæddum heimi ber skylda til að láta
okkur óréttlæti varða, hvar sem það viðgengst,
sérstaklega ef óréttlætinu er kerfisbundið beint
að ákveðnum þjóðfélagshópum og mannrétt-
indi þeirra fótum troðin. Við eigum að leggja
þeim lið. Við sem búum á Íslandi erum það
lánsöm að hafa aldrei upplifað stríð í okkar
eigin landi. Við búum í lýðræðis- og friðarríki
og vitum sem frjálsir einstaklingar hverju við
getum áorkað. „Vertu breytingin sem þú vilt
sjá í heiminum,“ sagði Gandhi. Það er ekki úr
vegi að byrja smátt með því að ljá þeim rödd
sem ekki ná athygli heimsins.
Orð eru til alls fyrst en verkin sem fylgja í
kjölfarið skipta öllu máli. Til þess að félags-
legar, efnahagslegar og pólitískar aðgerðir
leiði til bættrar stöðu kvenna, hvar svo sem
þær búa í heiminum, þurfa konur að geta
treyst því að stjórnvöld virði skuldbindingar
sínar gagnvart þeim og hrindi í framkvæmd
lögum og reglugerðum um afnám alls misrétt-
is gegn konum. Það er ekki til of mikils ætlast.
Þvert á móti. Jafnrétti hefur verið á dagskrá
Sameinuðu þjóðanna síðan þær voru stofn-
aðar árið 1945. Skylda alþjóðasamfélagsins er
ekki minni um þessar mundir. UNIFEM hefur
svarað kallinu í 30 ár og starfar ötullega að
málefnum kvenna á vettvangi SÞ. Nú er tími til
að styrkja enn frekar þá vinnu.
Tímarit UNIFEM á Íslandi er enn á ný fullt af
áhugaverðu efni sem vekur okkur til umhugs-
unar um ábyrgðarskyldu okkar gagnvart því
óréttlæti sem stúlkur og konur víða um heim
þurfa að líða. UNIFEM spyr sérstaklega að því
í ár í hver ber ábyrgð á réttindum kvenna?
Greinar um ábyrgðarskylduna og virðingu
fyrir réttindum kvenna í starfi UNIFEM víða
um heim, frá Úganda til Afganistan, reyna að
svara því.
Í fyrri hluta blaðsins er kraftmikil starfsemi
UNIFEM á Íslandi í fyrirrúmi. Þar ber hæst fjár-
öflun Fiðrildaátaksins sem haldið var í mars á
þessu ári. Þar lögðu Íslendingar af miklu örlæti
sitt lóð á vogaskálarnar og söfnuðu fé í þágu
baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi. Sér-
umfjöllun blaðsins þetta árið er helguð því
átaki og ofbeldi gegn konum í Líberíu, Austur-
Kongó og Suður-Súdan, löndum sem voru
valin til að njóta hluta íslenska fjármagnsins
sem safnaðist í átakinu. Að lokum er fjallað
um þátttöku kvenna í uppbyggingu samfélaga
eftir stríð. Lýðræðisleg þátttaka þegna í upp-
byggingarstarfi á ekki síður við á Íslandi í dag
og reynslan og þekkingin í ýmsum þróun-
arlöndum getur einnig kennt okkur margt.
Það er von mín að tímarit UNIFEM á Íslandi í ár
sé verðugur málsvari stúlkna og kvenna víða
um heim og liður í að vekja athygli á stöðu
þeirra. Af góðum hug koma góð verk og því
vona ég að lesturinn veki löngun lesenda til
að leggja sitt af mörkum til að breyta heim-
inum til betri vegar með eftirbreytni, heima
fyrir og annars staðar.
Fyrir hönd ritnefndar og UNIFEM á Íslandi vil
ég þakka öllum sem lögðu okkur lið við
útgáfu blaðsins. Sérstakar þakkir fá greinahöf-
undar, Vilborg Anna Björnsdóttir hönnuður,
Hildur Finnsdóttir prófarkalesari, Útgáfa ehf.
og ljósmyndarar sem gáfu vinnu sína og fal-
legar myndir.
Njótið vel.
Kristjana Þ. Sigurbjörnsdóttir
Þróun í þágu
kvenna
Frá ritstjóra
46 Hjálpaðu konu og
byggðu upp samfélag
Svanborg Sigmarsdóttir tók hús á
Þórhildi Þorleifsdóttur og ræddi við
hana um aðkomu kvenna að upp-
byggingu samfélaga sinna, jafnt í
stríði sem friði.
48 Að koma jafnrétti
í framkvæmd
– reynsla íslenskrar konu
á Balkanskaga
Auður H. Ingólfsdóttir starfaði sem
jafnréttisráðgjafi hjá UNIFEM í
Makedóníu. Kristjana Sigurbjörns-
dóttir settist niður með henni.
50 Svipmyndir af
félögum í UNIFEM
á Íslandi
Félagar í UNIFEM á Íslandi eru í dag
714 talsins. Tímarit UNIFEM á Íslandi
tók þrjá þeirra tali og spurði meðal
annars af hverju þeir styddu við
bakið á félaginu og hvort þeim
fyndist ríkja jafnrétti milli kynjanna
á Íslandi.