Tímarit UNIFEM - 01.01.2008, Page 13
13
farið að snúast æ meira um vitundarvakn-
ingu og aðkomu stjórnvalda að jafnréttis-
og þróunarmálum.“
Hvert telur þú vera helsta hlutverk félaga-
samtaka eins og UNIFEM á Íslandi?
„Það þarf að vekja fólk til vitundar um
stöðu kvenna í öðrum heimshlutum, við
finnum ekki lausnir á vandamálum sem
enginn veit að eru til. Ástandið í mörgum
þriðjaheimsríkjum er bara svo fáránlegt að
maður getur ekki einu sinni ímyndað sér
það. Hjá UNIFEM er unnið mjög merkilegt
starf við að auka rétt kvenna, starf sem
byggist á því að víkka út svið kvenna og búa
til umgjörð um líf þeirra til að þær geti
athafnað sig. Það er ekki hægt að styrkja
eina konu til atvinnureksturs ef samfélag
hennar afneitar því að kona geti rekið fyr-
irtæki; þess vegna þarf að vinna í stóru
myndinni. Það er erfitt starf, oft og tíðum
óskiljanlegt og óþægilega óáþreifanlegt en
alveg rosalega mikilvægt.“
Hver eru helstu forgangsatriðin í starfi
UNIFEM á Íslandi að þínu mati?
„UNIFEM á Íslandi getur verið góð fyr-
irmynd fyrir aðrar landsnefndir UNIFEM og
við höfum þegar stigið skref á þessu sviði.
Fiðrildavikan er best heppnaða fjáröflun
sem nokkur UNIFEM-landsnefnd hefur stað-
ið fyrir og í kjölfarið útbjuggum við skýrslu
fyrir aðrar landsnefndir til að fara eftir ef
áhugi væri á því. Við gætum vel verið fyr-
irmynd á fleiri sviðum; t.d. gætum við fund-
ið nýjar og spennandi leiðir til vitund-
arvakningar. Það krefst þess þó að margir
leggi hönd á plóg og séu tilbúnir að gefa
tíma sinn í öll þau aðkallandi verkefni sem
UNIFEM vinnur um allan heim.
Íslendingar hafa margt fram að færa í jafn-
réttismálum. Við erum framarlega á sviði
rannsókna í jafnréttismálum – ekki síst þegar
alþjóðlega jafnréttissetrið og -skólinn verða
stofnsett hér á landi. Við ættum að halda
áfram því starfi og taka að okkur að vera
brautryðjendur. Ég held að það myndi gera
ímynd landsins gott, sem og okkar eigin
samfélagi,“ segir Steinunn að lokum.
Jólasveinar bregða á leik og reyna að
krækja sér í bita og dansa síðan í
kringum jólatréð með börnunum.
Verð fyrir fullorðna: kr. 2800
Börn 6 - 14 ára kr. 1500
- frítt fyrir börn yngri en 6 ára
Pönnukakan hennar Grýlu
– brúðuleiksýning eftir Bernd Ogrodnik
Verð kr. 1500 – kr. 1000 fyrir
matargesti
Jólaveislan 2008
Margir spennandi forréttir,
tveir gómsætir aðalréttir,
einn ómótstæðilegur eftirréttur
Snilldarkokkarnir Þórir Bergsson og Steinn Óskar Sigurðsson, matreiðslumeistari árins 2006, töfra fram krásirnar.
Verð kr. 5.500 –
Sjá matseðla og nánari tímasetningar á landnamssetur.is
Borðapantanir í síma 437 1600
Öðruvísi jólafagnaðir í Landnámssetri
Uppáhald jólasveinanna og Pönnukakan hennar Grýlu
Hádegishlaðborð með þjóðlegu góðgæti fyrir alla fjölskylduna. Ódýrt og gott.
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi.
Lj
ó
sm
yn
d
:
R
ó
sa
J
ó
h
an
n
sd
ó
tt
ir