Tímarit UNIFEM - 01.01.2008, Qupperneq 45
45
Utanríkisráðherra Íslands, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, hefur margsinnis vísað í jafn-
réttisstarf sem eina af grunnstoðunum í
íslenskri þróunarsamvinnu, og jafnvel rætt
um „virkjun kvenorkunnar“ í þessu sam-
hengi. En hefur Ísland eitthvað fram að
færa þegar kemur að jafnréttismálum?
Miðað við metnaðarfull áform þeirra sem
standa að stofnun nýs alþjóðlegs jafnrétt-
isskóla er svarið: Já.
Stefnan að verða
Sameinuðu þjóða háskóli
Jafnréttisskólinn verður stofnaður 5. des-
ember næstkomandi. Skólinn er samstarfs-
verkefni HÍ og utanríkisráðuneytisins og er
starfsemin þróuð að fyrirmynd Jarðhita-
skóla og Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) og Landgræðsluskóla Landbún-
aðarháskóla Íslands, en utanríkisráðuneytið
styður við þessa þrjá skóla. Stuðningur ráðu-
neytisins er hluti af opinberri þróunarsam-
vinnu Íslands. Utanríkisráðuneytið og HÍ
munu óska eftir við Háskóla SÞ í Tókýó að
Jafnréttisskólinn verði hluti af háskólaneti
SÞ líkt og Jarðhitaskólinn og Sjávarútvegs-
skólinn eru nú og stefnt er á að Land-
græðsluskólinn verði frá með árinu 2010.
Á sama tíma og skólinn verður formlega
settur á laggirnar, mun HÍ einnig kynna nýtt
alþjóðlegt rannsóknarsetur í jafnréttis- og
margbreytileikafræðum. Hið nýja rann-
sóknarsetur tekur við hlutverki Rannsókna-
stofu HÍ í kvenna- og kynjafræðum (RIKK)
en markmið þess verður að
efla kynja-, margbreytileika-
og jafnréttisrannsóknir við
Háskólann auk þess að styðja
við starfsemi Jafnréttisskól-
ans. Það er óhætt að fullyrða
að stofnun Jafnréttisskólans
og rannsóknarsetursins fellur
vel að þeirri þörf og þeim
tækifærum sem hafa skapast
á síðustu misserum með
áherslubreytingum íslenskra stjórnvalda og
aukinni þátttöku þeirra í þróunarsamvinnu
á sviði jafnréttismála.
uppbygging
sérfræðiþekkingar
Markmið Jafnréttisskólans er að bjóða upp
á hagnýtt nám sem miðast við að auka
færni sérfræðinga og stofnana sem koma
að uppbyggingu og framkvæmd jafnrétt-
isstarfs í þróunarlöndum og á fyrrum átaka-
svæðum, auk þess að vera vettvangur fyrir
yfirfærslu þekkingar og reynslu af jafnrétt-
isstarfi á Íslandi. Kjarni skólastarfsins verður
20 vikna námsbraut þar sem kennd verða
helstu atriði varðandi stefnumótun, fram-
kvæmd og eftirfylgni við uppbyggingu
jafnréttisstarfs og aðgerða gegn kynjamis-
rétti. Markhópurinn fyrir námið er sérfræð-
ingar hjá ráðuneytum, opinberum stofn-
unum, félagasamtökum og fyrirtækjum í
þróunarlöndum og ríkjum sem eru í upp-
byggingarferli eftir stríðsátök. Stefnt er á
að fyrstu nemendurnir hefji nám í ágúst á
næsta ári/2009. Enn fremur hefur Jafnrétt-
isskólinn í hyggju að bjóða upp á stutt nám-
skeið fyrir íslenska og erlenda sérfræðinga
sem koma að uppbyggingu jafnréttisstarfs í
þróunarsamvinnu og friðargæslu en skipu-
lag og staðsetning námskeiðanna mun taka
mið að þörfum hvers hóps. Einnig má nefna
að Jafnréttisskólinn hefur þróað námskeið í
samstarfi við kynjafræðinám HÍ um þróun
kynjajafnréttis í alþjóðlegu samhengi. Nám-
skeiðið verður kennt í Hagnýtum jafnrétt-
isfræðum á vorönn 2009 og er opið öllum
sem hafa lokið BA- eða BS-námi.
litið til Íslands
Jafnréttisskólinn kemur til með að eiga
samtarf við Landgræðsluskólann, Jarðhita-
skólann og Sjávarútvegsskólann en sam-
starfið býður upp á einstakt tækifæri til að
þróa aðferðir til samþættingar jafnrétt-
issjónarmiða við auðlindanýtingu. Slíkt
samtarf mun einnig fela í sér samþættingu
kynjasjónarmiða í meginstoðirnar í þróun-
arsamvinnu Íslands. Það kemur til móts við
nýlegar yfirlýsingar utanríkisráðherra um
að kynjasjónarmið verði nú samþætt með
markvissari hætti í allri þróunaraðstoð á
vegum ráðuneytisins.
Jafnréttisskólinn mun ekki einvörðungu
leggja áherslu á þekkingarmiðlun í jafnrétt-
ismálum á sviðum þróunarsamvinnu og
friðaruppbyggingar því Evrópa hefur einnig
sýnt áhuga. Mörg Evrópuríki eru nú að end-
urskoða áherslur, úrræði og aðgerðir sínar í
jafnréttis-, velferðar- og fjölskyldumálum til
að bregðast við lækkandi fæðingartíðni og
þörfinni fyrir aukna atvinnuþátttöku
kvenna. Stjórnvöld í þessum ríkjum horfa
nú til Íslands og eru jafnvel farin að tala um
„íslenska módelið“ þar sem vísað er til
árangurs Íslands við að viðhalda hárri fæð-
ingartíðni á sama tíma og atvinnuþátttaka
kvenna er sú mesta sem þekkist í aðild-
arríkjum OECD. Jafnréttisskólinn og Rann-
sóknarsetrið í jafnréttis- og margbreyti-
leikafræðum hafa því hug á að bregðast við
áhuga Evrópuríkja með því að standa fyrir
alþjóðlegum námstefnum og ráðstefnum
um jafnréttisstarf á Íslandi.
Höfundur er verkefnisstjóri hjá Rannsóknastofu
HÍ í kvenna- og kynjafræðum (RIKK)
Nánari upplýsingar um Jafnréttisskólann má finna á
heimasíðu skólans www.get.hi.is og á heimasíðu RIKK
www.rikk.hi.is
jafnréttisskóli við háskóla íslands
Til móts við
tækifærin
EFtir sjöFn VilhElMsdóttur
Lj
ó
sm
yn
d
:
C
h
ri
st
o
p
h
er
H
er
w
ig