Jón á Bægisá - 01.12.2001, Side 12

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Side 12
Irma Matsjavaríani Árið 1914 kom út fyrsta ljóðabók hans en aðallega skrifaði hann sögu- legar skáldsögur og auk þess smásögur og ljóð. Öll verk hans vitna um hve heitt hann elskaði föðurland sitt og frelsi. Skáldverk hans hafa ver- ið þýdd á margar tungur. Eftir að Georgía fékk sjálfstæði árið 1991 hafa þar komið fram mis- munandi bókmenntastefnur sem byggjast á: • Að gera sér grein fýrir og lýsa nýjum, lýðræðislegum, félagslegum veruleika. • Að greina hugmyndir Georgíumanna um sig sjálfa. • Að endurnýja persónusköpun í georgískum bók- menntum. • Að reyna að færast nær menningu nútímans í upp- hafi 21. aldar. • Að nálgast þá strauma sem tíðkast í nútímabók- menntum Vesturlanda. Þessi þemu koma fram af meiri eða minni styrk hjá höfundum sem skrifuðu sín verk á fimmta, sjötta og sjöunda áratug 20. aldar: Önnu Kalandadze, Múrman Lebanidze, Óttari Chiladze, Revaz Mishveladze, Besik Karanahsvili, Nairu Gelashvili, Liu Stúrúa og fleiri. Nýir straumar í bókmenntum eftir Sovéttímann hafa einkurn komið fram hjá ungum leikskáldum. Fulltrúar þessarar kynslóðar eru meðal annars: Aka Morchiladze, Dato Túrashvili, Zúrab Karúmidze, Dato Bar- bakadze, Zvíad Ratiani og Rati Amaglobeli. Skáldverk Aka Morchiladze, Hundar Paliashvilisgötu, er mjög vin- sælt og fyrir tveim árum var gert eftir því leikrit sem er enn vinsælla. Afskaplega vinsælt er leikritið Gallabuxnakynslóð eða síðborið rekvíem eftir Dato Túrashvili sem leikstjórinn Dato Doiashvili setti upp í Frjálsa leikhúsinu í Tbilisi. 10 á- .jOœýkjá — TÍMARIT ÞÝÐENDA NR. 6 / 2001

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.