Jón á Bægisá - 01.12.2001, Síða 14

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Síða 14
Sigurður A. Magnússon Armenar, Tyrkir, Ossetar, Abkhazar, Gyðingar, Kúrdar, Persar og Grikkir. Georgíumenn eru þróttmiklir og langlífir, ná ósjaldan 100 ára aldri. Þeir eru dökkir á brún og brá, fráneygir og einatt nefstórir. Þeir skara frammúr í íþróttum, veiðum og dansi, hafa mikið dálæti á tónlist og kveðskap. Gestrisni þeirra og veislugleði eru annálaðar; sömuleiðis eru þeir ham- hleypur til vinnu. Hinsvegar verður þeim einlægt minna úr ríkulegum auðlindum landsins en efni standa til, kannski vegna þess að auðsöfnun hefur aldrei verið þeim sérstakt keppikefli. Áðuren Georgíumenn snerust til kristni kringum 330 skrifuðu þeir á grísku eða persnesku (með aramísku letri). Um aldamótin 400 samdi heilagur Mesrop stafróf handa bæði Georgíumönnum og Armenum, og eru stafrófin af sama toga spunnin. Georgíska stafrófið er til í tveimur meginmyndum: chútsúrí eða bjúgt prestaletur og mchedrúlí eða skáletr- uð riddaraskrift sem notuð er í ritum nútímans. Elsti varðeitti texti á ge- orgísku máli er leturtafla sem fannst skammt frá Betlehem og mun vera skrifuð kringum 430. Önnur tafla er til í kirkju í Bolnísí, bæ í austan- verðri Georgíu, og er frá 480, elsta ritað mál á georgísku sem fundist hef- ur í landinu sjálfu. Báðar eru töflurnar skráðar prestaletri. Georgíumenn eiga sér sjálfstæða orþódoxa kirkju með eigin patríarka, en hún er í nánu sambandi við patríarkana í Moskvu og Istanbul. Armenskir íbúar landsins hafa hinsvegar sína eigin kirkjudeild. Armenska kirkjan er reyndar elsta kristna þjóðkirkja veraldar. Eiginlegar georgískar bókmenntir hófust á 5tu öld með annálum, heilagra manna sögum og þýðingum á ritum Biblíunnar. Einsog annar- staðar í kristnum löndum voru klaustur og klausturskólar helstu mið- stöðvar bóklegra mennta frammeftir öldum. Meðal kunnustu fræðasetra voru klaustrin Gelatí í vestanverðu landinu, skammt frá Kútaísí, ætt- borg Medeu, og Ikalto í landinu austanverðu. Bæði voru þau stofnuð af Davíð konungi Agmosenebelí (smíðameistara) sem ríkti á árunum 1089-1125. Hann var skáldmæltur og svo mikill bókaormur, að hann reiddi jafnan með sér bókakistur á ösnum og úlföldum þegar hann hélt í hernað, og segja höfundar að hann hafi lagt frá sér bókina síðasta alls áðuren hann gekk til orustu og heimtað hana strax og hann kom aftur í tjald sitt að orrahríð lokinni. Georgíumenn áttu líka fræg klaustur og fræðasetur í öðrum löndum, á Ólympsfjalli í Bíþýníu í Litlu-Asíu, á Svartafjalli hjá Anþekju á Sýrlandi, í Jerúsalem, á Sínaískaga, og loks það allrafrægasta, íberaklaustur (Ívíron) í munkríkinu Aþos eða Agíon Óros (Helgafelli) í norðanverðu Grikklandi. Það var stofnað kringum 980, skömmu eftirað munklífi hófst á skaganum, af heilögum Jóhannesi Varazvatje, auðugum öldurmanni. Seint á miðöldum höfðu grískir 12 d JBagúiá - Tímarit þýðenda nr. 6 / 2001
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Jón á Bægisá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.