Jón á Bægisá - 01.12.2001, Blaðsíða 30

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Blaðsíða 30
Ilja Tsjavtsjavadze og þó ekki. Útlit þeirra var svipað, en hann bauð af sér betri þokka. Svört og djúp augu hans voru flöktandi. Hann yggldi brýnnar. Það var líkt og með honum bærðist geðshræring, sem hann stillti sig um að láta í ljós. „Sælir séuð þið,“ sagði eldri drengurinn. „Komið þið sælir,“ svaraði sá sem fyrir vagneklunum fór. „Þið virðist vera á leið til borgarinnar." „Þú átt kollgátuna,“ var hrópað glettnislega af einum vagninum. Eldri sveinninn tók spauginu brosandi, en sá yngri yggldi brýnnar sýnu meir en fýrr. Reiðin blossaði sem leiftur í andliti hans. Þó hamdi hann skap sitt. „Ó, Guð formæli öllu ómenni!“ hrópaði sá eldri. „Við vorum í aðals- mannaskólanum, enda erum við bræður göfugrar ættar.“ „Bedjan!“ hrópaði nú yngri bróðirinn og þaggaði niður í hinum með augnaráðinu. Fljótlega tók Bedjan þó upp þráðinn þar sem frá var horfið: „Já, við bræður erum fyrirmenn. Faðir okkar sendi okkur peninga svo við gætum leigt rússneskan hestvagn til að flytja okkur heim í sumar- leyfi. Guð formæli öllu ómenni! Við sömdum við Rússa einn um að hann færi með okkur til borgarinnar. En á leiðinni varð hann drukkinn, sparkaði okkur úr hestvagninum og hélt leiðar sinnar. Við sátum eftir með sárt enni. Fúlmennið hvarf okkur sjónum með allan okkar farangur í vagninum og átta rúblur að auki, sem hann hafði haft af okkur.“ Nú var sem æði rynni á yngri bróðurinn. Hann sneri baki í bróður sinn og vagneklana og einblíndi á hina hnígandi sól. „Hann tók með sér frakka, sem kostaði fimmtíu rúblur,“ sagði Bedjan, eldri bróðirinn. „En fjandinn hirði frakkann, hann er ekkert til að drúpa höfði yfir, enda er faðir okkar stöndugur maður." Sá yngri sneri sér að bróður sínum, öllu reiðari en fyrr. „Nei, nú er mér nóg boðið, Bedjan," hvæsti hann í bræði sinni. Bedjan lét orð hans sem vind um eyru þjóta og hélt áfram talinu. „Við höfum soltið í tvo daga,“ sagði hann, „og vitum ekki hvað til bragðs á að taka á þessum ókunnugu slóðum.“ „Guð sé oss næstur," svaraði gamall ekill, sem sat á einum vagninum. „Þekkið þið ekkert til í þessu héraði? Það mætti halda að þið væruð í Tataralandi en ekki hinni kristnu Georgíu. Við skulum gera ykkur góða veislu með gnægð matar og víns. Svei þeim sem gert hafa á ykkar hlut! Og til borgarinnar skulum við koma ykkur. Hvorki skulu regn né storm- ar eða sólbrenndir sandar hefta för ykkar.“ Yngri bróðirinn lyfti brúnum. Svipur hans lýsti sýnilegri velþóknun. Gleði skein úr yfirbragði hans, líkt og hann fyndi nú í fyrsta sinn fyrir mannlegri gæsku og fagnaði henni um leið. 28 á .ý9œytíá — Tímarit þýðenda nr. 6 / 2001
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Jón á Bægisá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.