Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 80

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 80
íslenskir höfundar og þýöendur Baldur Óskarsson (Maðurinn, tígurinn, máninn bls. 55), fæddur 1932, skáld og þýðandi, hefur til skamms tíma unnið hjá Ríkisútvarpinu, hefur þýtt úr ensku, spænsku og Norðurlandamálum. Nýjasta ljóðabók hans, Tímaland / Zeitland kom út hjá þýska forlaginu Kleinheinrich á íslensku og þýsku árið 2000. Franz Gíslason [Klapp bls. 41, Sjö ljóð bls. 64) fæddist 1935, kennari á eftirlaunum. Hann hefur þýtt úr ensku og þýsku; einnig úr íslensku á þýsku í samvinnu við Wolfgang Schiffer og fleiri. Friðrik Þórðarson (Steinn Satans bls. 15) fæddist 1928, málfræðingur og háskólakennari í Osló. Hann hefur lagt mikla stund á írönsk mál og Kákasusmál og hefur meðal annars þýtt úr grísku og georgísku. Grigol Matsjavariani (/gálganum bls. 27, Óskatréð bls. 38) fæddist árið 1962 í Tbilisi, höfuðborg Georgíu, dáinn í mars 1993. Árið 1990 lauk hann MA-prófi í lögfræði við Háskóla Georgíu. Auk þýðinga sinna úr ge- orgísku - í samvinnu við Pjetur Hafstein Lárusson - þýddi hann allmörg íslensk rit á georgísku. - Sjá nánar hér að framan í Ritnefnd hefur orðið. Hrafh Andrés Harðarson [Ekki líta við! bls. 47) fæddist 1948. Hann er bókasafnsfræðingur og forstöðumaður Bókasafns Kópavogs og hefur gef- ið út nokkrar ljóðabækur og tvær bækur með þýðingum á ljóðum lett- neskra skálda. Magnús Ásmundsson (Strange Fruit bls. 59) fæddist 1927 að Eiðum í S- Múlasýslu en ólst upp í Reykjavík; tók stúdentspróf 1946 og las síðan læknisfræði. Hann var tvö ár héraðslæknir og sjö ár við framhaldsnám í Svíþjóð og eftir það sjúkrahúslæknir á Norðfirði og Akureyri. Hann er áhugamaður um bókmenntir og hefur þýtt fimm bækur úr sænsku. Þrjár hafa komið út á prenti. 78 ffi/l á .93œy/-já - Tímarit þýðenda nr. 6 / 2001

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.