Jón á Bægisá - 01.02.2007, Blaðsíða 61

Jón á Bægisá - 01.02.2007, Blaðsíða 61
Islandsfór ogfleiri kvœði Svo ef einn þeirra ratar í ógæfu, skiljum vér gjörla hvað að honum gengur: að gerast portkvenna-dólgur eða gína yfir fölsuðu skarti, að ónýta ágætan tenór með ógætnu gauli, getur víst hent oss alla, utan þá bestu og verstu... Þess vegna, hygg eg, þeir verstu og bestu hafi einatt horfið héðan í hóflausari staði, þar sem fegurðin var ekki eins úthverf, sólskinið ekki jafn tært og tilgangur lífsins ekki tómur barningur. „Komið!“ æptu granít-auðnir, „O, hversu hvikult er skap yðar, kaldur yðar kærasti koss, ó hve alger er dauðinn.“ (komandi dýrlingar gengu á dyr.) „Komið!“ mæltu moldroknir melar, „Hér mættuð þér tefla fram herjum, hér bíða yðar ár að brúa og þrælar að vinna yður veglegan minnis- varða; mjúkt eins og jörðin er fólkið og báðu má breyta.“ (komandi keisarar hurfu á braut með hurðaskellum.) En þeir gálausu lögðu hlustir við hrjúfari röddu og eldri, við andblæ hafsins: „Eg er einsemd, sem lofa yður engu og spyr yður einskis: svo mun eg gera yður frjálsa. Ast er hér engin; einungis margvísleg öfund, sem ávallt er döpur.“ Þeim mæltist rétt þessum röddum, minn kæri, og enn er það rétt; þetta land er ei griðstaður sá, sem það virðist, og friður þess ekki sú margreynda ró þeirrar moldar, þar sem mál eru útkljáð að fullu og öllu: niðurnítt, hrörlegt og afturdrægt útkjálkahérað, sem tengist hinum öra og stóra heimi um göng, með ákveðið aðdráttarafl, er það allt og sumt? Ekki alveg: Það ber veraldlega skyldu, sem það vanrækir ekki, þrátt um þarfir þess sjálfs, en ber þess utan brigður á birtingarform frumaflanna; það truflar rétt vorn. Skáldið, sem elskað er fyrir þann einlæga sið að kalla sólina sólu, og hugskot sitt gátu, er hreinlega hugsjúkt útaf marmarastyttunum, sem stendur svo ljóslega á sama um þess guðlausu goðsögn; þessir piltar, sem plaga vísindamanninn á steinlagðri leið hans með líflegum boðum, fordæma ást hans á afkimum náttúrunnar. Einnig eg er átalinn fyrir það, sem þú þekkir. Að missa engan tíma, ekkert forskot d - Hann gat ekki hætt að ríma 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Jón á Bægisá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.