Lifandi vísindi - 04.04.2016, Blaðsíða 7
4
1
LÍK SLÆR FRÁ SÉR
Í sérkennilegri tilraun not-
uðu vísindamenn við Utah-
háskóla hendur líks til að
slá. Þær mældu slagkraft
bæði með krepptan hnefa
og lófann opinn. Að sögn
þeirra sýndi tilraunin að
höndin hefur ekki aðeins
þróast til fínhreyfinga,
heldur einnig sem vopn í
bardaga. Aðrir vísinda-
menn hafa látið í ljós efa-
semdir bæði varðandi að-
ferðina og niðurstöðurnar.
Handskanni finnur krabba
Verkfræðingar smíða krabbaleitartæki,
sem minnir mjög á vísindaskáldskap.
LÆKNISFRÆÐI Þegar læknirinn í Star Trek,
Leonard „Bones“ McCoy, hyggst rannsaka ein-
hvern í áhöfn Enterprise, bendir hann bara á sjúk-
linginn með tæki sem kallast „tricorder“ og fær
sjúdómsgreininguna samstundis.
Nú hafa verkfræðingar hjá bandaríska Stan-
fordháskólanum fundið upp ámóta stórt tæki
með – næstum – sömu eiginleika. Þeir hafa
smíðað skynjara sem halda má í hendi sér og not-
ar örbylgjur og hátíðnihljóð til að leita uppi
krabbamein á byrjunarstigi eða plastsprengjur,
faldar í jörðu.
Með þennan nýja „tricorder“ í höndunum þarf
ekki lengur að nota málmleitartæki til að finna
jarðsprengjur með tilheyrandi hættu á að sprengj-
an springi af völdum snertingar.
Handskanni Stanford-vísindamannanna
grundvallast á örbylgjum og hann gagnast bæði
hermönnum og læknum. Þegar örbylgjur hitta
SH
UTTERSTOCK
fyrir efni, valda þær sameindatitringi sem hitar
efnið en hitaþróunin fer eftir því hvert efnið er.
T.d. er plastið í plastsprengjum mun lengur að
hitna en jarðvegur, þar sem fjöldi vatnssameinda
fer strax á mikla hreyfingu. Titringur sameinda
veldur mjög einkennandi hátíðnibylgjum sem
strax má umbreyta í mynd, rétt eins og við
venjulega ómskoðun.
ÖRBYLGJUSENDIR
HANDSKANNI
HLJÓÐNEMI
Hinn svonefndi
„tricorder“ í Star
Trek varð inn-
blástur að raun-
verulegum
handskanna
fyrir lækna.
N
ý
þe
kk
in
g
NÝ
JU
ST
U
RA
NN
SÓ
KN
IR
O
G
UP
PG
ÖT
VA
NI
R