Lifandi vísindi - 04.04.2016, Síða 35

Lifandi vísindi - 04.04.2016, Síða 35
LÍFEÐLISFRÆÐI Blóðflokkur 0 sigrar M Ó T E F N I S VA K A R Á R A U Ð U M B L Ó Ð K O R N U M B L Ó Ð F L O K K A R M Ó T E F N I Í B L Ó Ð V Ö K VA E I N K E N N I B L Ó Ð F L O K K A 0 er ofurgjafi Blóðflokkur 0 hefur fengið nafn sitt þar sem rauðu blóðkorn hans bera enga mótefnisvaka sem er að finna í AB0-kerfinu. Því eru gjafarar með blóðflokk 0 gulls ígildi fyrir blóð- banka sem geta gefið rauð blóðkorn þeirra öllum sjúklingum. AB tekur við öllu Ef þú ert með blóðflokk AB hefur þú ekkert að óttast þurfir þú einhvern tíma á blóði að halda. Á rauðu blóð- kornunum er að finna bæði mótefnisvaka A og B og því myndar blóðið ekki mótefni gegn öðrum blóðflokkum. A og B passa ekki saman Rauðu blóðkornin þín hafa meira í farangrinum en súrefni. Á yfirborði þessara skífulaga frumna sitja mótefnisvakarnir – prótín og sykrur – sem ráða blóðflokkinum. Segja má að rauðu blóðkornin séu þakin fjórum mögulegum gerðum af sykrum sem mynda blóðflokkana A, B, 0 eða AB. Ónæmiskerfi líkamans myndar mótefni gegn öllum sykrum sem það þekkir ekki sjálft frá eigin rauðu blóðkornum. Því getur verið lífshættulegt að fá blóð frá gjafara með framandi sykrur. Flokkur A hefur mótefnis- vaka A á sínum frumum og myndar mótefni gegn blóðflokki B. Mótefnisvaki B Mótefnisvaki B Mótefnisvaki A Mótefnisvaki A Engir mótefnisvakar Manneskjur með blóðflokk AB mynda ekki mótefni gegn hinum þremur afbrigðunum og geta því tekið við blóði frá bæði A, B og 0. Mótefni gegn blóðflokki B Mótefni gegn blóðflokki B Mótefni gegn blóðflokki A Mótefni gegn blóðflokki A A B AB 0 | Lifandi vísindi | 4 · 2016 SHUTTERSTOCK SH UT TE RS TO CK K rabbamein, minnistap og hjartasjúk-dómar er nokkuð sem getur hrjáð menn eftir því sem þeir eldast. En ef blóðflokkur þinn er 0 getur þú varpað öndinni léttar. Vísindamenn hafa nefnilega útnefnt blóðflokk 0 þann öflugasta af blóð- flokkunum. Skiptingin í AB0-kerfið byggir á því að rauðu blóðkornin eru með yfirborð þakið af mismunandi sykrum. Læknarnir greina á milli þeirra þegar þeir velja blóð til blóðgjafar. Nú hafa byltingarkenndar rann- sóknir leitt í ljós að fólki með blóðflokk A, B og AB er 15% hættara við að deyja úr hjarta- og æðasjúkdómum heldur en þeim sem eru með flokk 0. Og sá virðist einnig veita nokkra vörn gegn krabba. Önnur athyglisverð rann- sókn sýnir að fólki með blóðflokk AB er allt að 82% hættara við að fá minnisglöp en fólki með aðra blóðflokka. Skýring vísindamanna er sú að blóðflokkurinn ákvarði hvernig blóðið storknar og myndar blóðtappa og að sumir blóðflokkar setji ónæmiskerfið í yfir- vinnu þannig að líkaminn myndar smám saman krabba. Blóðflokkarnir hafa verið nokkur ráðgáta allt frá því að þeir uppgötvuðust árið 1901. Nú sýn- ir rannsókn nokkur að blóðflokkur manna skiptir máli varðandi hvort viðkomandi sé hætt við tilteknum sjúkdómum. Og einn blóðflokkur er magnaðri en allir aðrir. 34

x

Lifandi vísindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lifandi vísindi
https://timarit.is/publication/1174

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.