Lifandi vísindi - 04.04.2016, Blaðsíða 54
4 · 2016 | Lifandi vísindi |
Fall á reiðhjóli, fastur bolti í höfuðið eða árekstur við lágan dyrakarm. Högg þessi hrista heilann og geta leitt til skorts á einbeitingu og minnkaðri andlegri getu í nokkra
daga eða jafnvel vikur. En þrátt fyrir að mað-
ur finni vel fyrir slíkum einkennum á eigin
líkama verður heilinn fyrir mun langvinnari
áhrifum. Um áraraðir geta afleiðingarnar af
jafnvel minniháttar heilahristingi magnast
upp og verði maður svo óheppinn að fá enn
eitt höfuðhögg geta afleiðingarnar verið
skelfilegar.
Þúsundir af bandarískum fótboltaleik-
mönnum hafa eftir langan feril greinilega
fundið fyrir hvernig þessi ofbeldisfulla íþrótt
setur greinilegt mark sitt á frammistöðu heil-
ans. Niðurstöður úr bandarískri rannsókn frá
árinu 2015 sýna að því fyrr sem leikmenn
hefja æfingar á þessari íþróttagrein, þess
alvarlegri geta afleiðingarnar verið: Tauga-
læknirinn Robert Stern við Boston University
komst að því að sá sem byrjar æfingar við 12
ára aldur má eiga von á 8% lægra skori
í greindarvísitöluprófi hvað varðar
mál og stærðfræði en hjá þeim sem
byrja mun seinna. Getan til að gera
flóknar áætlanir og bara yfirleitt að einbeita
sér að tilteknu viðfangsefni getur orðið allt að
13% minni.
Heilastöðvar rýrna
En fótboltamenn eru hreint ekki þeir einu
sem eiga á hættu að fá alvarlegan krónískan
skaða af völdum heilahristings. Hvers konar
íþróttaiðkun leiðir til um einungis 20% af öll-
um heilahristingum meðan fall og bílaá-
rekstrar hafa mun fleiri tilvik á samviskunni.
Börn og unglingar er síðan sérstakur áhættu-
hópur, þar sem þau lifa almennt hættulegra
lífi vegna uppátækja sinna.
Mesta hættan felst þó í að verða endurtek-
ið fyrir höfuðhöggum, óháð því hvort þau eru
svo léttvæg að maður taki nánast ekki eftir
neinum einkennum í kjölfar þeirra. Þegar
málum er svo háttað fer heilavefurinn nefni-
lega að hrörna. Einn af öðrum deyja taug-
ungarnir í m.a. ennisblöðunum, þar sem æðri
hugsun fer fram, og einnig í drekanum þar
sem geymsla minninga fer fram. Fyrirbæri
þetta er nefnt Chronic Traumatic
Encephalopati eða einfaldlega CTE. Með því að
vega heilann hjá látnum sjúklingum hefur
Robert Stern reiknað út að þyngd hans getur
fallið niður undir 1 kg meðan eðlilegur heili
vegur jafnan um 1,5 kg. Í annarri rannsókn frá
árinu 2015 mældi taugasálfræðingurinn C.
Munro Cullum við University of Texas
Gorm Palmgren
Króníski sjúk-
dómurinn CTE leiðir
til stöðugt fækkandi
taugunga í heilanum. Heilastúka og mandla
rýrna sem dregur úr greind sjúklings.
Heilahristingur skaðar tvisvar sinnum
Höfuðhögg veldur oft tvöföldum skaða þar sem hann hristir heilann
þannig að hann skellur á höfuðkúpunni á tveimur stöðum.
Heilinn liggur í verndandi vökvahjúp. Við höfuð-
högg skellur hann fyrst á innanverðri höfuðkúp-
unni við árekstrarstað.
Eftir þetta skellur heilinn fram á við á
gagnstæðum stað.
Við bæði höggin gegn höfuðkúpunni
rifna í sundur smáæðar meðan við-
kvæmir taugaþræðir inni í heilanum
togna og snúast með tilheyrandi skaða.
Meiðslin breyta jafnvægi jóna,
boðsameinda og næringarefna í
heilanum. Þetta leiðir til eins konar
orkuskorts sem að hluta til lamar efna-
skipti heilans og drepur taugunga.
1 2
4
3
Í amerískum fótbolta
eru höfuðhögg mjög
algeng og geta leitt til
sjúkdómsins CTE.
Verndandi
vökvi Höfuðkúpan
Heilinn
Æð
ANN C. MCKEE/UNI OF BOSTON
CLAUS LUN
AU
BILL FRAKES/
SP. ILLUS./GETTY IMAGES
Fyrsti
höggstaður
Annað
höfuðhögg
Print: m
ea Status: 750 - Sprog godkendt Layout:M
EA Red.sek:M
KP
EÐLILEGUR HEILI
SJÚKUR HEILI
53