Lifandi vísindi - 04.04.2016, Síða 9

Lifandi vísindi - 04.04.2016, Síða 9
| Lifandi vísindi | 4 · 2016 Vísindamenn læra pöndumál DÝRAFRÆÐI Þegar panda- björn í kynlífshug nálgast birnu, rym- ur hann svipað og hrútur á fengitíma „baaah“. Svangur húnn, sem kallar á mömmu, segir hins vegar „gí-gí“. Þetta sýna rannsóknir kín- verskra dýrafræðinga sem í fimm ár hafa fylgst með og hlustað á panda- birni í friðlandi í Sichuanhéraði í Suð- ur-Kína. Í þeim tilgangi að skilja betur tjáskipti dýranna tóku vísinda- mennirnir upp hljóð sem þau gáfu frá sér við hinar fjölbreyttustu athafnir, svo sem át, mökun, eða umönnun húnanna. Alls hafa vísindamennirnir greint merkingu 13 mismunandi hljóða og vinna nú að gerð eins konar pöndu- orðabókar sem einnig byggist á einstaklingsbundnum raddkennsl- um. Þetta er ekki bara til gamans gert, heldur er nauðsynlegt að skilja betur þessi dýr sem eru í alvarlegri útrýmingarhættu. MINNI ÍS GREIÐIR FÖR SJÁVARDÝRA Hafísinn kringum norður- pólinn hefur skilið Atlants- hafið og Kyrrahafið að en minni ís- þekja opnar ýmsum dýrum nú ferðaleiðir milli hafanna. Vísinda- menn í Flórída telja tilflutning tegunda mögulegan. T.d. hafa hvalir þegar sést í „röngu“ hafi. AMERÍSKUR VÍSUNDUR LIFÐI ELDINGU AF „Sparky er á lífi og hefur það ágætt.“ Þessi frétt barst frá friðlandinu þar sem þessi vísundur var svo ólánsamur að verða fyrir eldingu 2013. Hann fékk mikil brunasár í kjölfarið. Dýr verða fyrir eldingum ekkert síður en menn. Það er bara svo örsjaldan skrásett. Síðast sást það gerast þegar verið var að telja sæljón við Ástralíu 2014. ÁHRIF FÆÐUNNAR AFAR MISMUNANDI Það sem er hollt fyrir einn er ekki þar með hollt fyrir annan. Ísraelskir vísindamenn mældu blóðsykur 800 einstak- linga í viku, eftir að allir höfðu fengið nákvæmlega sama morgunmat. Áhrifin reyndust æði misjöfn. Banani skilaði einum þátttakanda gríðarmiklum blóð- sykri en hjá öðrum einstaklingi mældust engin áhrif. – Júpíter 75 km uppi yfir jörðu sneri Falcon 9-eldflaugin við og lenti örskömmu síðar heilu og höldnu. Þessi eldflaug frá Space-X er endurnýtanleg og markar þannig mikil tímamót. Aðeins 2.000 pöndur lifa villtar, allar í Kína. 300 eru í umsjá manna, helmingur þeirra í Sichuan-friðlandinu. PÖNDUORÐABÓK Baah: Mig langar í þig. Gi-gi: Mamma, gefðu mér að sjúga. Wow-wow: Mér líður illa. Ku-ku: Mikið líður mér vel núna.SHU TT ER ST OC K N AS A/ ES A SH UT TE RS TO CK ÚT Í GEIM Rauði bletturinn á Júpíter fer minnkandi Í samtals tíu klukkustundir tók Hubble-sjónaukinn gleiðlinsumyndir af gasrisanum Júpíter. Myndirnar sýna að rauði bletturinn á Júpíter hefur dregist gríðarmikið saman og er nú að verða appelsínugulur að lit. Bletturinn sýnir í raun feiknarlegt óveður og þetta er því til marks um að þessum ofboðslega fellibyl sé að slota. 8 NÝ ÞEKKING Ótrúle gt en sat t!

x

Lifandi vísindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lifandi vísindi
https://timarit.is/publication/1174

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.