Lifandi vísindi - 04.04.2016, Side 21

Lifandi vísindi - 04.04.2016, Side 21
1 2 3 4 VITVÉLAR Slys verður Vitvélin fer af stað á 25 metra hraða á sekúndu. Fótur fellur af og göngulagið skekkist. Gang- skekkja. Valin göngu- tegund Leiðrétt göngulag Nýjar gang- tegundir Fótur fellur af. Göngulag prófað Meðal 13.000 gangtegunda í gagnagrunni finnur tækið nokkrar sem má prófa. Göngulag valið Á aðeins 40 sek- úndum er fundin rétt aðferð til að ganga beint en fer aðeins hægar en fyrr. Vitvélin lærir Gervigreindar- algoriþminn að- lagar göngulagið í gagna- grunninum að þessari nýju reynslu. Vitvél reiknar nýtt göngulag án aðstoðar Köngulóartækið notar algoriþma til að prófa mis- munandi göngulag og velur það sem best hentar að- stæðum. LÍKAMSLENGD: 30 sentimetrar. ÞYNGD: 3 kg. VIÐFANG: Þróun algoriþma sem finnur rétta gang- tegund miðað við aðstæður. TILGANGUR: Björgunartæki sem geta starfað áfram þrátt fyrir áföll. Björgunartæki heldur áfram með brotinn fót Fótbrot stöðvar ekki köngulær náttúrunnar. Franskir vísinda- menn hafa nú líkt eftir þessu og smíðað tæki sem lætur fót- brot ekki stöðva sig. S jálfsagt þykir köngulóm betra að hafa alla fætur heila en þær lifa vandræðalítið af, þótt þær missi óvart einn fótinn. Vísindamenn hjá franska Pierre og Marie Curie-háskólanum hafa leikið þetta eftir með sex- fættri vitvél. Tækið notar gervigreindaralgoriþma og heldur áfram göngunni þótt einn fótur fari af eða jafnvel tveir. Glatist fótur, finnur tækið sér nýtt göngulag þannig að það t.d. hallast ekki, þegar ferðinni er heitið beint áfram. Vitvélin býr yfir gagnagrunni með nálægt 13.000 gönguaðferð- um sem hún hefur sjálf reiknað út í tölvuhermi. Sú hæfni að geta gengið áfram þrátt fyrir sköddun, er gulls ígildi, t.d. við björgunaraðgerðir eftir jarðskjálfta, þar eð eitt fótbrot breytir tækinu ekki sam- stundis í ónothæft rusl. Tölvan varðveitir gagna- grunn með um 13.000 gangtegundum. Sérstök myndavél leyfir tækinu að ákvarða bæði hraða og stefnu. Rafhlaða sér tölvu, rafeindatækjum, myndavél og aflvélum fyrir straumi. 18 aflvélar stýra fótunum sex, þrjár fyrir hvern fót. AN TOIN E CULLY/PIERRE AN D M ARIE CURIE UN IVERSITY, CLAUS LUN AU KÖNGULÓ Innblástur:

x

Lifandi vísindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lifandi vísindi
https://timarit.is/publication/1174

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.