Lifandi vísindi - 04.04.2016, Side 29

Lifandi vísindi - 04.04.2016, Side 29
| Lifandi vísindi | 4 · 2016 Blóðsýni er hin nýja kristalkúla læknisins. Í æðum manns fljóta milljarðar af sameindum sem ekki aðeins afhjúpa hvort maður sé veikur, heldur einnig hvort að maður muni síðar verða það. Ef út- litið er svart felst meðferðin kannski í skammti af ungu blóði. TÖFRAR BLÓÐSINS B lóðsugur hafa verið notaðar í áranna rás, á milljónum sjúk-linga, enda trúðu læknar þá að sjúkdómar og aðrir kvillar syntu um í líkamanum. Lækn- ar á 19. öld töppuðu því blóði af sjúklingn- um og notuðu ýmis konar verkfæri, allt frá blóðsugum til sogskála. Um þessar mundir hafa læknavísindin tekið stefnuna í gagnstæða átt. Þau vilja lækna sjúklinga með því að fylla æðar þeirra með blóði annarra. Á liðnu ári var helsjúkt ebólu-fórnarlamb læknað með blóði úr manni sem hafði þegar barist við þessa skæðu veiru. Aðrar byltingarkenndar til- raunir sýna að blóð sumra hefur að geyma efni sem geta læknað marga af skeinuhætt- ustu sjúkdómum sögunnar. Af þessum sök- um rannsaka vísindamenn nú blóðið í auknum mæli þar sem aragrúi af sameind- um fljóta um – sumar þeirra til varnar lík- amanum meðan önnur geta skaðað hann. Í blóðinu hafa vísindamenn á síðustu árum ekki aðeins fundið innblástur að nýjum gerðum lyfja, heldur einnig uppgötvað byltingarkennda nýja greiningartækni og kannski sjálfan brunninn að eilífri æsku. Einn stakur blóðdropi hefur að geyma millj- ónir af prótínum, fitum og frumuleifum og helsta áskorun sérfræðinga felst nú í að finna þau lykilefni sem kunna að geta leyst helstu heilbrigðisvandamál samtímans. Í leit þessari er augunum helst beint að óslíp- uðum demöntum í blóðsýnum, svonefnd- um lífvísum. Blóð læknar minnistap Bandarískur læknir uppgötvaði nýverið að- ferð sem bætir minnið hjá fólki með elli- glöp. Elliglöp eru jú einn helsti heilbrigðis- vandi samtímans um heim allan og þar með talið alzheimer sem tærir heilann smám saman innan frá. Meðferðin, sam- kvæmt bandaríska lækninum, felst í ungu og fersku blóði. Hann vill tappa blóði úr ungum og frískum mönnum og sprauta því inn í æðarnar hjá eldra fólki sem er með elliglöp. Læknirinn hefur góða ástæðu til að ætla að blóð úr ungu fólki geti virkað eins og fljótandi minnispillur. Á síðasta ári greindi hann blóðsameindina B2N en magn hennar eykst hratt hjá bæði músum og mönnum með hækkandi aldri. Þegar B2N er sprautað í æðar ungra músa hrakar heilastarfsemi SHUTTERSTOCK LÆKNAVÍSINDI | LÍFEÐLISFRÆÐI 28

x

Lifandi vísindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lifandi vísindi
https://timarit.is/publication/1174

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.