Lifandi vísindi - 04.04.2016, Page 40

Lifandi vísindi - 04.04.2016, Page 40
Mikkel Meister Jón Karlsson ... Forrit sjá fyrir árásir og innbrot Með háþróuðum tölvuforritum getur lögreglan nú séð fyrir hvar næsta innbrot eða líkamsárás muni líklega eiga sér stað. Lögreglan í Los Angeles og New York nýtir nú þegar slík forrit og nýjustu gerðir þeirra geta jafnvel bent á mögulegan sökudólg. K lukkan er að ganga þrjú um nótt í evrópskri stórborg. Kona geng-ur einsömul í gegnum garð. Handtaska hennar sveiflast lítillega þegar hún hraðar sér eftir myrkvuðum stíg í garðinum. Skyndilega ræðst hettuklæddur maður á hana. Hann grípur til töskunnar en áður en hann nær henni hrópa tveir lögregluþjónar nokkrum metrum í burtu á hann. Lögregluþjónarnir voru sendir til að vakta þennan stað á ná- kvæmlega þessum tíma vegna þess að tölva hafði verið forrituð til að segja fyrir um m.a. líklegar líkamsárásir og þjófnaði. Fyrirbæri þetta mætti kalla löggæsluspá (e. predictive policing) og það hljómar eins og hreinasti vísindaskáldskapur. En nú þegar eru lögregluþjónar í stórborgum eins og New York, Miami og München sendar af stað til að vakta borgarsvæði með hliðsjón af niðurstöð- um tölvuforrita. Þessi þróuðu forrit skapa nákvæm stafræn kort yfir borgina og draga fram þá staði og tíma þar sem tölfræðilega séð megi vænta að afbrot verði framið – rétt eins og veðurspá segir fyrir um úrkomu. Gagnabylting knýr þróunina Með þetta kort í farteskinu getur lögreglan gætt þess að vera til staðar nákvæmlega þar sem búist er við að afbrot verði framið. Fyrir einungis nokkrum árum síðan var ógjörningur að safna saman og greina öll þau gögn sem varða öll afbrot í tilteknum borg- arhluta. Á síðustu árum hafa fyrirbæri eins og gagnagnótt (e. Big data) og gagnagröftur (e. data mining) gert mönnum kleift að útbúa spár um framtíðina sem grundvallast á tölvuútreikningum á gríðarlegu magni af hráum upplýsingum úr fortíðinni. Tölvur verða sífellt öflugri og tengja má þær saman þvers og kruss yfir netið þannig að samanlögð reiknigeta þeirra er ótrúleg. Þau stærfræðilegu líkön sem forritin reiða sig á nefnast algrím. Þau má efla með innbyggðri gervigreind svo þau verði stöðugt betri við að draga fram ýmiss konar mynstur. Bæði gervi- greind og náskylt fyrirbæri, svokallað tækja- nám (e. machine learning) fara um þessar mundir í gegnum gríðarlega hraða þróun. Með tækjanámi verður tölvan fær um að læra eða betrumbæta sig sjálf út frá gögnunum sem hún greinir. Þetta er þekkt t.d. frá streymisveitunum Netflix og Spotify og net- versluninni Amazon þar sem sífellt er Sótt í önnur gögn Nýjasti búnaðurinn horfir ekki einungis til afbrotamanna fortíðar heldur leitast til að draga ályktanir út frá nútíðinni. Búnaðurinn sækir m.a. í útköll frá neyðarlínum og tilkynningar á samfélagsmiðlum. Sem dæmi getur tilkynning á Messenger eða Facebook afhjúpað skotárás, slags- mál eða innbrot í tilteknum borgarhluta. Kortið búið til Staðsetning afbrotsins og gerð er merkt inn á stafrænt kort. Það samsvarar því að setja títuprjónshaus með mismunandi litum inn á landakort. Lögreglan hefur nú sett fram aragrúa af mismunandi afbrotum fyrri tíðar. Næsta skref er að fá tölvuna til að flokka afbrotin eftir gerð, t.d. innbrotum og nauðgunum. Gögnum safnað saman Gögnum úr skrám yfir þúsundir af afbrotum er safnað saman svo algrímið geti unnið úr þeim. Gögnin ná m.a. til gerðar afbrotsins, tíma, staðar, kyns og aldurs ger- andans. Mikilvægt er að gögnin séu skráð kerfis- bundið með sama hætti – annars verður árangurinn afar óviss. SKJALAVARSLA Hæ Stjáni. Ert þú á leiðinni? Það eru slagsmál hérna á barnum svo við skulum fara eitthvert annað! 30. MARS 22.30 1 2 3 SH UT TE RS TO CK DAM IAN DOVARGAN ES/AP/POLFOTO Print: stkp Status: 5 - InDesign Tem plate Layout: Red.sek:

x

Lifandi vísindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lifandi vísindi
https://timarit.is/publication/1174

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.