Lifandi vísindi - 04.04.2016, Side 42
!
rauður kassi eða hringur á korti sem gæti til
dæmis rammað af íbúðahverfi sem er 200 x
200 metrar. Ef kerfið uppgötvar að undanfar-
in ár í júlí á milli klukkan 22 og 4 hafi átt sér
stað nauðgun á svæðinu er útbúin skýrsla
þar sem lögregluþjónum er bent á að vakta
viðkomandi svæði á þessum sama tíma á
næsta ári, þar sem nokkur líkindi eru á því að
sams konar glæpur verði framinn á ný. Bún-
aðurinn getur ekki enn bent á afbrotamann-
inn þannig að hann geti verið gripinn glóð-
volgur en forritin veita haldgóða vörn þar
sem nærvera lögreglunnar gæti hindrað
glæpamenn í að leggja til atlögu á ný.
Glæpamennska er smitandi
Kerfin horfa þó ekki aðeins aftur í tímann til
að segja fyrir um glæpi framtíðar. Þau nýta
sér einnig að manneskjur eru í grunninn
ákaflega mikið eins. Við kaupum sem dæmi
hús í sama hverfi og þær manneskjur sem
hafa nokkurn veginn sama efnahagslega
bakgrunn og félagslega stöðu og við sjálf.
Rannsóknir sýna að þessi líkindi fá glæpa-
hneigðina til að „smita“. Ef þjófur nokkur
brýst sem dæmi inn í hús í miðstéttarhverfi
aukast líkurnar á því að þjófur þessi muni
skömmu síðar brjótast aftur inn á sömu slóð-
um, enda þekkir hann húsin og áhættuna.
Líkurnar á því að brotist verði inn hjá ná-
grönnunum aukast einnig þar sem þjófurinn
getur réttilega ætlað að eigur nágrannanna
séu álíka verðmætar og í fyrra innbroti. Í
bandaríska kerfinu PredPol er þessi þekking
nýtt til þess að meta hættuna á innbrotum
meðal nágranna fyrri brotaþola.
Innrás algrímanna inn á lögreglustöðvar
hefur reynst gera sitt gagn á mörgum stöð-
um. Sem dæmi segist lögreglan í borginni
Lancaster í Kaliforníu, BNA, hafa minnkað
lögbrot um 35% á fimm árum eftir að hafa
stuðst við forvirkt lögreglueftirlit. Þrátt fyrir
að búnaðurinn geti ekki einn hlotið allan
heiður af þessari fækkun glæpa telja lög-
regluyfirvöld í borginni hann hafa gert sitt
gagn. Einnig hjá lögreglunni í Los Angeles
hafa 14 af 21 lögreglustöð borgarinnar nýtt
sér forrit sem á 21 mánuði sögðu fyrir um eða
hindruðu helmingi fleiri glæpi en þjálfaðir
sérfræðingar innan lögreglunnar. Sér-
fræðingarnir og forritin áttu að velja einn
stað þar sem afbrot yrði framið innan næstu
12 stunda. Sérfræðingarnir höfðu rétt fyrir
sér í 2,1% atvika en forritið í 4,7% þeirra á
svæði sem var um 100 metrar sinn-
um 100 metrar.
Kennsl borin á mynstur
Forritin geta einungis sagt fyrir um
hættuna á því að afbrot eigi sér aftur
stað eftir tilteknu mynstri. Tilfallandi
glæpi eins og ástríðumorð er ekki enn
hægt að segja fyrir um þar sem al-
grímin hafa ekki nægjanlegt magn
gagna til að styðjast við. Auk þess er
ekki hægt að handtaka glæpamenn
heima fyrir áður en þeir hafa framið
glæpinn. Á þessu kann þó að verða
breyting í framtíðinni.
Sérfræðingar við m.a. MIT í BNA
vinna nú að nýrri gerð algríma sem er
ætlað að finna sjálfan afbrotamanninn.
Þessi nýju algrím fara í gegnum gagna-
banka yfir afbrot og þjálfa sig í að finna
einkennandi vana afbrotamannsins, t.d.
að tiltekinn innbrotsþjófur leiti uppi skart-
gripi í einhverju húsi. Í einni greiningu á
innbrotum í borginni Cambridge,
Massachussetts í BNA tókst algrími frá sér-
fræðingum við MIT að finna mynstur út frá
röð vana eins og val á innbrotsstað – aðaldyr,
bakdyr eða gluggar – vikudegi innbrotsins,
íbúðargerð og fjarlægðir til annarra innbrota.
Algrímið reyndist betra en sérfræðingar lög-
reglunnar í að tengja saman mynstur við af-
brotamenn og þannig að finna líklegan inn-
brotsþjóf. Það var einnig fært um að útiloka
menn sem sérfræðingarnir höfðu ranglega
bent á sem mögulega innbrotsþjófa. Núna
stendur til að betrumbæta algrímið með öflugri
tölvu og stafrænum ummerkjum frá t.d. sam-
félagsmiðlum þannig að til lengri tíma litið
verði kannski hægt að stöðva afbrotamanninn
áður en hann fremur nýtt lögbrot.
Algrímið aðlagar sig sjálft
Búnaðurinn getur aðlagað sig nýjum
gögnum og orðið þannig nákvæmari. Það
gerir hann með því að taka mið af
breytingum sem eiga sér stað í borginni, t.d. ný-
byggingum og flutningum. Svokallað tækjanám (e.
machine learning) gerir tölvuforritum kleift að
„læra“ án þess að það þurfi að forrita þau upp á nýtt.
Lögregla send á staðinn
Búnaðurinn sendir frá sér afbrotaspá og
lögreglan sendir út bíl og vaktar viðkom-
andi staði. Forritin geta enn sem komið er
ekki sagt fyrir um afbrot með tilteknum fórnarlömb-
um eða afbrotarmönnum – einungis stað og tíma
þar sem hættan á að tiltekið afbrot er yfirvofandi.
Forritið tekur nú mið af opnun
nýrrar verslunar í Aðalstræti.
Samþykkir þú þessa breytingu?
JáNei
Það eru ekki bara t
ölvur sem geta ben
t á
glæpamenn framtí
ðar. Minnstu byggi
ngar-
steinar líkama þíns
afhjúpa einnig glæ
p-
samlegar tilhneigin
gar samkvæmt ran
n-
sókn frá Karólínska
Institutet.
Vísinda mennirnir g
reindu erfðamassa
hjá
895 finnskum föng
um sem samanlag
t
höfðu framið 1.154
afbrot; morð, líkam
s-
árásir eða morðtilr
aunir. Þeir uppgötv
uðu
að erfðamassi þeir
ra sýndi frávik þann
ig að
ýmist ensímið mon
oaminoxidasea eð
a
genið cadherin 13
voru vitlaust tengd
sem
ekki fannst hjá lögh
lýðnum viðmiðun-
arhópum. Gallinn b
endir til að líkamin
n
bregðist verr við bo
ðefninu dópamíni s
em
m.a. tengist sæluti
lfinningu. Ensímið
virkaði
verst hjá þeim mön
num sem höfðu fra
mið
verstu afbrotin.
6 7
DE
AN
J.
K
OE
PF
LE
R/
AP
/P
OL
FO
TO
SHUTTERSTOCK
Gen þín af-
hjúpa hvort
þú verðir
glæpamaður