Lifandi vísindi - 04.04.2016, Side 55

Lifandi vísindi - 04.04.2016, Side 55
HEILINN Lausrifin prótín tæra heilann Jafnvel smávægilegt högg á höfuðið getur skaðað heilann. Við endurtekin högg safnast skaðarnir upp og geta þeir haldið áfram að magnast upp mörgum árum eftir síðasta heilahristing. Með tímanum deyr heilavefurinn og skilur eftir sig stór göt sem minna á alzheim er. Afleiðingarnar geta m.a. falist í þunglyndi, skertri greind og mikilli vanlíðan. 3 Í frumuvegg taugungsins er að finna sameind sem nefnist APP en hún inniheldur prótínið beta–amyloid. 1 Langir taugaþræðir í taugungum heilans eru styrktir af innri grind sem nefnast frymispíplur. Þetta eru langir prótínþræðir sem samanstanda af litlum byggingareiningum en þeim er haldið saman af svo- nefndum tauprótínum. Styrkjandi tauprótín Frymispípla APP–sameind Taugungur Southwestern, með skönnun rúmmálið á drekanum hjá hópi aldraðra sem voru allir fyrrum íþróttamenn. Þá kom í ljós að drekinn var fjórðungi minni hjá þeim sem höfðu lent í alvarlegum heilahristingi. Minnistap og náms- hæfni þeirra hafði einnig minnkað um 27%. Líkindi með CTE og alzheimer CTE minnir um margt á alzheimer. Auk stórra holrýma þar sem heilavefurinn hefur einfald- lega horfið er að finna einkennandi uppsöfn- un á próteini sem nefnist tau. Prótein þetta er að jafnaði einn byggingarsteina í löngum frymispíplum taugunganna. En endurtekin höfuðhögg slíta taugungunum svo mikið að tauprótínin losna sem verður til að mikilvægir hlutar taugunganna losna einnig í sundur. Taugungarnir deyja, meðan þessi lausu tau- prótín virka nánast eins og eitur sem eykur mjög á vandann. Þau klístrast saman í klumpa og festast í heilavefinum þar sem þau tæra umlykjandi taugunga svo mikið að þeir taka einnig að deyja. Afleiðingin er því sami sjálfstyrkjandi vítahringur eins og sést við alzheimer og dregur verulega úr andlegri getu sjúklinga. Ný rannsókn hefur sýnt að CTE og alzheim er eiga einnig annað eitrað prótín sameiginlegt, nefnilega beta–amyloid. En pró- tínin safnast saman með einkennandi mynstri hjá sjúklingum með þessa tvo sjúkdóma. Tauprótínið greinist í blóðsýnum Einn helsti vandinn við CTE var að örugg grein- ing var ekki fáanleg án þess að skera heilann í þunnar skífur og skoða þær undir smásjá. Það var því fyrst mögulegt að slá því föstu að manneskja væri veik eftir að hún var dáin. Þess vegna vissu vísindamenn harla lítið um hvern- ig sjúkdómurinn myndast og eins hvernig frekari þróun á sér stað. En árið 2014 uppgötv- aði Bashtun Shahin við Sahlgrenska háskóla- spítalann í sænsku borginni Mölndal að næstu daga eftir heilahristing losnar um svo mikið tauprótín hjá taugungunum að sum þeirra fara út í blóðið. Þess öflugri sem heilahristingurinn Heilahristingur knýr íþróttamenn til sjálfsmorðs Amerískur fótbolti er svo ofbeldisfullur að allt að 96% íþróttamanna í efstu deildinni NLF hafa samkvæmt rannsókn frá árinu 2015 fengið króníska heilaskaðann CTE eftir endurtekinn heilahristing. Meiðslin hafa m.a. leitt til þunglyndis sem hefur knúið marga til sjálfsmorðs. Í apríl 2015 þurfti NLF að reiða fram einn milljarð dala í bætur til 5.000 leikmanna sem höfðu kært deildina fyrir að vernda ekki heilbrigði sitt í nægjanlegum mæli. EÐLILEGT ÁSTAND EÐLILEGT ÁSTAND CL AU S LU N AU

x

Lifandi vísindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lifandi vísindi
https://timarit.is/publication/1174

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.