Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Page 10
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 20106
Arna Skúladóttir, Elísabet Konráðsdóttir og Auðna Ágústsdóttir, arnasku@landspitali.is
SPURNINGALISTI TIL AÐ META VIÐHORF FAGFÓLKS
TIL FJÖLSKYLDUHJÚKRUNAR
Í þessari grein verður fjallað um spurningalista sem er notaður til að kanna viðhorf
hjúkrunarfræðinga til fjölskylduhjúkrunar. Rakin verður þróun spurningalistans í
Svíþjóð, kynni íslenskra hjúkrunarfræðinga af listanum og reynsla þeirra við að
þýða, staðfæra og nota listann á Landspítala.
Sagan hófst 2005 þegar þrír hjúkrunarfræðingar af barnasviði Landspítalans fóru á
alþjóðlega ráðstefnu um fjölskylduhjúkrun. Á ráðstefnunni kynnti hópur hjúkrunarfræðinga
frá Svíþjóð vinnu sína við fjölskylduhjúkrun og heilluðust Íslendingarnir af því sem þeir höfðu
fram að færa. Sérlega aðlaðandi var túlkun þeirra á að heilbrigðiskerfið, ekki síður en barnið,
þurfi á fjölskyldu barnsins að halda.
Sænsku hjúkrunarfræðingarnir kynntu á ráðstefnunni niðurstöður úr rannsókn á spurningalista
til að meta viðhorf starfsmanna en viðhorf eru talin hafa mikil áhrif á það hvernig starfsmenn
sinna fjölskyldum skjólstæðinga sinna. Spurningalistinn var gerður af hjúkrunarfræðingunum
og nefndur „Families’ Importance in Nursing Care – Nurses Attitudes“ (hér eftir FINCNA).
Gerð spurningalistans í Svíþjóð var vönduð og spratt upp af þörf höfunda fyrir tæki til að
meta viðhorf til fjölskylduhjúkrunar óháð starfsvettvangi. Fyrri matstæki höfðu verið notuð til
að kanna viðhorf til fjölskylduhjúkrunar við tilteknar aðstæður, svo sem gjörgæslu, líknandi
meðferð eða á slysadeild. Höfundarnir byggðu spurningarnar fyrst á ýtarlegri lesefnisleit. Við
það varð til spurningalisti með yfir hundrað spurningum. Eftir yfirferð rannsakenda í tveimur
umræðuhópum og þremur mismunandi hópum hjúkrunarfræðinga í klíník, í doktorsnámi og
í hjúkrunarfræðideild háskóla fækkaði spurningum og svarmöguleikum var breytt. Einnig
bættust við spurningar um bakgrunn svarenda (Benzein o.fl., 2008a).
Eftir þessa vinnu við uppbyggingu og gerð spurningalistans var hann sendur til tæplega
þúsund hjúkrunarfræðinga í Svíþjóð sem könnun á viðhorfi til fjölskylduhjúkrunar. Nothæf svör
Fjöldi hjúkrunarfræðinga á Landspítala hefur verið spurður um viðhorf til fjölskylduhjúkrunar.
Dr. Auðna Ágústsdóttir er verkefna
stjóri á mennta og starfs þróunardeild
á Landspítala.
Elísabet Konráðsdóttir er verkefna stjóri
fyrir innleiðingu fjölskylduhjúkrunar
og hjúkrunar fræðingur á Barnaspítala
Hringsins.
Arna Skúladóttir er klínískur sér
fræðingur í hjúkrun á Barnaspítala
Hringsins á Landspítala.
Með hreinlæti er hægt að hafa mikil áhrif á það hvort sjúkdómar dreifist
milli fólks. DÚX hreinlætisvörurnar frá Mjöll Frigg eru áhrifaríkar en
mildar og fara vel með húð og hendur. DÚX hreinlætisvörurnar hafa
verið notaðar á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum árum saman og
reynst vel. DÚX vörulínan fæst einnig í minni einingum sem henta vel til
notkunar á heimilum. DÚX sótthreinsar, mýkir, verndar og græðir.
GÖNGUM
HREIN
TIL VERKS