Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Blaðsíða 37
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 2010 33
mögnunarbúnaður á stöðum þar
sem almenningur sækir sér þjónustu,
upplýsingar, skemmtun eða fræðslu.
Þarna er stórt hlutverk innan heilsugæslu
og sjúkrahúsa sem ekki hefur verið sinnt
sem skyldi.
Landspítaliháskólasjúkrahús er okkar
stærsta sjúkrastofnun og afar stór
vinnu staður. Legu rúm árið 2008 voru
tæplega 800 og auk þess eru göngu
deildir og dag deildir sem saman lagt
taka á móti rúmlega 2000 sjúklingum
dag lega. Á þessari fjölmennu sjúkra
stofnum má því gera ráð fyrir um eða
yfir 300 verulega heyrnarskertum
einstaklingum á degi hverjum. Mikilvægt
Þegar þú talar við heyrnarskerta skaltu nota eðlilega rödd en muna
að vera skýrmæltur. Alls ekki hrópa inn í eyrað og allra síst inn í
heyrnartækið.
Gættu þess alltaf að munnur þinn sjáist þegar þú talar við
heyrnarskertan einstakling. Talaðu aldrei með „blaðið fyrir munninum“.
er að heilbrigðisstarfsfólk verði betur
meðvitað um þau úrræði sem til eru fyrir
heyrnarskerta og aðstoði sjúklinga við að
nýta þau.
Þegar heyrnarskertir eru lagðir inn á
sjúkrahús fylgir því tvöfalt álag. Veikindin,
sem eru orsök innlagnar, eru aðeins
hluti vandans, við bætist kvíði fyrir
samskiptunum enda er ýmislegt sem gerir
þau erfið. Má þar nefna álagið við að hafa
samskipti við margt ókunnugt fólk sem
hefur varahreyfingar og raddstyrk sem
er viðkomandi framandi. Þegar stuðst
er við varalestur skiptir góð lýsing máli
og ekkert má hylja varir. Við ákveðnar
aðstæður á sjúkrahúsum verður þó ekki
hjá því komist að setja sótthreinsigrímur
fyrir munn og nef og þarf starfsfólk að
vera meðvitað um samskiptavandamálin
sem það getur skapað. Bakgrunnshávaði
þarf að vera í lágmarki og heyrnarskertum
reynist erfitt eða ógerlegt að taka á móti
skilaboðum eða upplýsingum sem gefnar
eru á hlaupum. Augnsamband, svipbrigði
og látbragð auðvelda samskiptin. Ótti
við að misskilja fyrirmæli eða skilja ekki
útskýringar hefur mikil áhrif á sjúklinginn.
Sameiginlegt átak þarf að gera til að
auðvelda þeim heyrnarskertu dvöl
á sjúkrastofnunum og um leið gera
starfsfólki auðveldara að sinna störfum
sínum vel. Grundvallaratriði er að gerð sé
Heilræði
Vertu í augnsambandi og talaðu skýrt.
Hækkaðu röddina í hófi og ekki hrópa.
Láttu birtuna falla á andlit þitt.
Dragðu úr umhverfishljóðum.
Hafðu setningar stuttar. Endurtaktu
með nýjum orðum ef þú skilst ekki.
Ekki vera með neitt í eða fyrir munni
þegar þú talar.
Notaðu látbragð og svipbrigði í
samskiptum.
Bentu eða horfðu á þá hluti og fólk
sem þú ert að tala um.
Skrifaðu og vertu hugmyndaríkur í
samskiptum.
Búnaður sem hver deild
ætti að hafa
Leiðbeiningabæklingur fyrir
starfsfólk um samskipti við
heyrnar skerta.
„Ég heyri illa“ – skilti til að
setja á eða við rúm.
Plastbox fyrir heyrnartæki
sem auðvelt er að merkja.
Tónmöskvar í móttöku,
viðtalsherbergi og við
sjónvarp.
Skilti sem segja til um hvar
tónmöskvar eru.
Heyrnarmerki