Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Blaðsíða 18
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 201014
skipta yfir í dagvinnu og reyna eitthvað
nýtt. Núna vinn ég á hjartaþræðingunni
á Hringbraut. Það er öðruvísi starf en
eigi að síður mjög skemmtileg. Frábærir
vinnufélagarnir þar hafa svo sannarlega
komið til móts við mig þegar mikið álag
hefur verið í skólanum. Í augnablikinu er
ég í námsleyfi til vors enda þótti mér sem
börnin mín þyrftu meira á mér að halda
en ég gat gefið með því að vera í námi,
vinnu og öllu sem því fylgir.“
Sigríður Bryndís segist hafa skoðað ýmsa
möguleika þegar hún ákvað að hella
sér út í frekara nám. Rauði þráðurinn
var samt sá að auka eigin víðsýni og
skapa sér aukna möguleika. „Í grunninn
snérist þetta einfaldlega um það að mig
langaði að læra meira. Tímasetningin
núna hentaði líka mér og fjölskyldu minni
mjög vel,“ segir Sigríður Bryndís sem hóf
námið á haustdögum 2008 og útskrifast
nú í vor.
Skemmtilegur og líflegur hópur
„Þegar ég var að velta fyrir mér náms
möguleikum kannaði ég fyrst meistara
nám við hjúkrunarfræðideild Háskóla
Íslands. En þegar á reyndi langaði mig
að reyna eitthvað nýtt og skapa mér
ný tækifæri. Ég fór því að skoða fleiri
kosti, eins og verkefnastjórnun (MPM)
við HÍ og MBAnám. Ég vissi af nokkrum
hjúkrunarfræðingum sem höfðu tekið
MBA og maðurinn minn útskrifaðist árið
2007 með slíka gráðu. Hann var kannski
helsti hvatamaður þess að ég sótti um
MBA og það er aðdáunarvert þar sem
hann vissi hve námið er stíft og hvað biði
hans næstu tvö árin! Þegar að því kom
sótti ég bæði um MPM og MBAnám og
komst inn á báðum stöðum en eftir mikið
sálarstríð valdi ég síðarnefnda kostinn og
hef ekki séð eftir þeirri ákvörðun,“ segir
Sigríður Bryndís sem þykir námið hagnýtt.
„Námið fer allt fram á ensku, bæði
umræður í tímum sem og öll verkefni
sem maður skilar. Það er mikið lagt
upp úr hópastarfi og valið í hópa eftir
ákveðinni mannlýsingu sem er búin til
fyrir hvern og einn í upphafi náms. Við
lærum að vinna með fólki sem kemur úr
mismunandi áttum og hefur mismunandi
grunn og lífssýn. Í nemendahópnum eru
viðskiptafræðingar, hjúkrunarfræðingar,
læknir, verkfræðingar, tölvunarfræðingar
og svo framvegis þannig að fólk kemur
víða að. Mikið er um verkefnaskil og
álagið oft mikið. Við erum alls 53 á mínu
ári og þetta er mjög skemmtilegur og
líflegur hópur. Það er mikið lagt upp
úr umræðum í tímum og oft er hluti
einkunna byggður á framlagi í þessum
umræðum.“
Samkeppnin mun aukast
Viðskiptagreinar eru rauði þráðurinn í
MBAnáminu. „Viðskipti varða okkur öll
og það á ekki síst við nú á tímum
þegar niðurskurður er mikill, sérstaklega
í heilbrigðiskerfinu. Þá frekar en nokkru
sinni fyrr er mikilvægt að hafa grunn til
að meta hvort sparnaðaraðgerðir bera
tilætlaðan árangur þegar allt er tekið
til greina og hvaða þættir það eru sem
skipta máli,“ segir Sigríður Bryndís sem
finnst námið hafa gert sér gott, sama á
hvern veg litið er á málið.
„Almennt sagt er mín skoðun að allt nám
sé til góðs og gerir manni kleift að vaxa
sem starfsmaður og manneskja, óháð
stöðu þjóðfélagsmála á hverjum tíma. Ég
lauk diplómanámi í gjörgæsluhjúkrun á
sínum tíma en það skilaði sér ekki nema
að litlu leyti í launastiganum. Hins vegar
á samkeppnin um störfin eftir að aukast í
framtíðinni, sérstaklega í ljósi kreppunnar,
og margir munu keppa um sömu störfin,
til dæmis innan Landspítalans. Það er
því mikilvægt að hjúkrunarfræðingar séu
samkeppnisfærir og aukin menntun er
ein leið til þess.“
„Mikilvægt að hjúkrunarfræðingar séu samkeppnis
færir og aukin menntun er ein leið til þess.“
UMSÓKNIR Í BHLUTA VÍSINDASJÓÐS
FÉLAGS ÍSLENSKRA HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Umsóknarfrestur til að
sækja um styrk í Bhluta
vísindasjóðs Félags
íslenskra hjúkr unarfræðinga
er til 15. mars 2010.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja sjóðsfélaga sem vinna að rannsóknum og
fræðiskrifum sem gildi hafa fyrir hjúkrun. Sjóðsfélagar, sem eru í námi, geta
sótt um styrk til að vinna rannsóknarverkefni til meistaragráðu (30 einingar
ECTS hið minnsta) eða doktorsgráðu.
Hægt er að sækja um styrk vegna rannsóknarverkefnis til meistaragráðu sem
lokið var eftir 16. mars 2009.
Aðild að sjóðnum eiga allir hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn FÍH og
launagreiðendur hafa greitt fyrir í vísindasjóð á árinu 2009.
Nánari upplýsingar um B-hluta vísindasjóð er að finna á vef félagsins.
Xtra personell Care er í fremstu röð ráðningar-
stofa í Noregi á sviði heilbrigðis- og
umönnunarstétta.Við leggjum mikla áherslu á
góða eftirfylgni við okkar starfsfólk, bæði í starfi
og á milli verkefna.
Það er mikil þörf fyrir hjúkrunarfræðinga til
afleysinga á sjúkrahúsunum í Noregi. Viltu vinna í
fullu starfi, hlutastarfi, næturvaktir eða taka
aukavaktir öðru hverju? Hafðu samband við okkur.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist til indridi@xtracare.is www.xtracare.is
www.xtracare.is
personell
Care
xtra
Við gerum kröfu um:
• Norskt hjúkrunarleyfi
• Viðeigandi starfsreynslu
• Sveigjanleika
• Þjónustulund
• Áreiðanleika
• Ábyrgðartilfinningu
Við bjóðum:
• Mjög samkeppnishæf laun
• Ókeypis ferðir og húsnæði
• Góða og persónulega eftirfylgni ráðgjafa
• Vinnu á sama stað yfir lengra tímabil
• Spennandi og fjölbreytt verkefni