Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Blaðsíða 21

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Blaðsíða 21
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 2010 17 Á vef landlæknis er að finna fjölmargar leiðbeiningar um varnir við veirusmiti. og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra stýrðu þessari vinnu en margir aðilar tóku þátt í verkinu sem lauk formlega 28. mars 2008. Eftir það hófst vinna við svæðisbundnar viðbragðsáætlanir fyrir hvert sóttvarnasvæði og taka þær til aðstæðna og mannafla á hverjum stað og voru unnar af heimamönnum. Í framhaldi þessarar vinnu eru stofnanir og fyrirtæki hvött til að búa til sínar eigin viðbragðsáætlanir og er sniðmát til að gera slíkar áætlanir og handhægan gátlista um órofinn rekstur í inflúensufaraldri að finna á vefslóðinni influensa.is. Svínainflúensa á Íslandi 27. apríl 2009 hækkaði Alþjóðaheil­ brigðismálastofnunin viðbúnaðarstig sitt því nýja svínaflensuveiran hafði þá greinst í fimm löndum. Í kjölfarið var viðbúnaðarstig hér á landi aukið frá óvissustigi yfir á hættustig en viðbúnaðarstig almannavarna hér á landi er þriggja stiga: óvissustig, hættustig og neyðarstig. Mikið fjölmiðlafár fylgdi í kjölfarið sem olli áhyggjum og ótta hjá almenningi. Samhliða hófst skipulögð upplýsingagjöf sóttvarnalæknis um smitvarnir í fjölmiðlum og á vefsíðu landlæknis um inflúensu, bæði á íslensku og ensku. Hlífðarbúnaði, eins og andlitsgrímum, sloppum, svuntum, hönskum og hlífðargleraugum, var dreift á öll sóttvarnasvæði landsins handa heilbrigðisstarfsfólki á heilsugæslustöðvum, starfsfólki í heimahjúkrun og öðrum öryggishópum. Fyrsta tilfelli svínaflensu greindist hér á landi 23. maí 2009 en sá sjúklingur smitaðist í Bandaríkjunum. Yfir sumarið og fram í september hélt staðfestum tilfellum áfram að fjölga jafnt og þétt og voru 19 til 30 ára einstaklingar stærsti aldurshópurinn sem greindist með veiruna. Um miðjan október færðist faraldurinn mjög í aukana og náði fjöldi greindra tilfella hámarki um mánaðamót október og nóvember en á þeim tíma voru börn undir tíu ára stærsti aldurshópur þeirra sem greindust með veiruna. Um 180 einstaklingar voru lagðir á sjúkrahús vegna svínainflúensunnar og þurftu 20 þeirra öndunarvélameðferð á gjörgæslu vegna alvarlegrar lungnabólgu. Í alvarlegustu tilfellunum voru sjúklingarnir í hjarta­ og lungnavélum svo vikum skipti. Í janúar 2010 höfðu samtals 9898 einstaklingar verið skráðir með inflúensulík einkenni frá upphafi faraldursins en veiran hefur greinst í 709 einstaklingum. Sóttvarnalæknir áætlar hins vegar að 50 til 60 þúsund Íslendingar hafi sýkst. Tvö dauðsföll urðu vegna svínainflúensunnar en báðir sem létust voru með alvarlega sjúkdóma fyrir. Bólusetning Framleiðsla bóluefnis gegn svínainflúensu hófst um leið og tekist hafði að greina veiruna en framleiðslan er seinlegt ferli og efnið var því ekki tilbúið fyrr en líða tók á haustið. Stjórnvöld á Íslandi festu kaup á 300.000 skömmtum sem áttu að duga fyrir 150.000 manns þar sem í fyrstu var reiknað með að hver og einn þyrfti tvo skammta með nokkurra vikna millibili. Rannsóknir sýndu hins vegar að með einum skammti náðist gott ónæmi og ákvað sóttvarnalæknir á grundvelli þessara rannsókna að einn skammtur bóluefnis veitti nægilega vörn. Ákveðið var að bólusetja fyrst heilbrigðisstarfsmenn, þá sem gegna umönnunarstörfum á hjúkrunarheimilum og sambýlum, sjúklinga með tiltekna sjúkdóma, þungaðar konur og skilgreinda öryggishópa. Bólusetning þessara hópa hófst í október en bólusetning almennings hófst 23. nóvember 2009. Framkvæmdin, sem hjúkrunarfræðingar hafa að mestu leyti annast, hefur gengið ótrúlega vel þrátt fyrir að nokkrar tafir hafi orðið á afgreiðslu bóluefnisins til landsins. Í janúar 2010 höfðu rúmlega 125.000 einstaklingar á öllum aldri verið bólusettir gegn svínainflúensu. Áfram verður haldið með að bólusetja sem flesta hér á landi til að koma í veg fyrir að svínainflúensan breiðist aftur út hér á landi síðar í vetur eða næsta vetur. Samantekt Svínainflúensufaraldurinn stendur enn þó verulega hafi dregið úr útbreiðslu hans og hefur viðbúnaðarstigið ekki verið lækkað. Fyrstu tvær vikur janúar 2010 hafa verið skráð 28 tilfelli inflúensulíkra einkenna. Í ljósi fyrri reynslu af heimsfaröldrum inflúensu má gera ráð fyrir að önnur smitbylgja geti komið seinna í vetur eða næsta vetur og því er hvatt til að sem flestir láti bólusetja sig. Áður en faraldurinn brast á var það mat sóttvarnalæknis að allt að 30­50% þjóðarinnar myndu sýkjast á 12 vikna tímabili. Samkvæmt tölum frá heilsugæslunni má ætla að 15­20% þjóðarinnar hafi sýkst. Líkleg skýring á að faraldurinn varð ekki útbreiddari en raun ber vitni er að mótvægisaðgerðirnar: ráðleggingar um handþvott og sprittun, smitgát við veikindi og varúð við hósta og hnerra, veirulyf, bólusetning og notkun hlífðarbúnaðar, hafi skilað þessum árangri. Í faraldrinum kom í ljós að sú vinna, sem lögð hefur verið í gerð viðbragðsáætlana, innkaup á hlífðarbúnaði, skipulagningu sóttvarnasvæða og kynningarfundi, skilaði sér margfalt. Fram til þessa hefur ekki verið til viðbragðsáætlun fyrir þjóð­ félagið vegna smitandi sjúkdóma sem staðið getur í margar vikur. Þó þessi nýja viðbragðsáætlun sé helguð heims­ faröldrum inflúensu mun hún geta nýst okkur vegna margra annarra sjúkdóma sem gætu breiðst út í faröldrum. Ása St. Atladóttir er hjúkrunarfræðingur og verkefnisstjóri á sóttvarnasviði landlæknisembættisins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.