Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Page 17

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Page 17
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 2010 13 Höfðar til mín Hjúkrunarfræðingar fara ýmsar leiðir í stjórnunarnámi. Margir hafa til dæmis farið í MBA­nám þar sem áhersla er lögð á viðskiptagreinar og stjórnun. Anna Sigríður valdi hins vegar EMPH­námið. „Þetta var kynnt sem nám fyrir framsækna stjórnendur í heilbrigðisþjónustu og þar vil ég starfa. Guðjóni heitnum Magnússyni, sem hafði umsjón með þessu námi, hafði ég kynnst í gegnum námið Stjórnun og rekstur heilbrigðisstofnana og þar sem ég er stjórnandi og starfandi í heilbrigðiskerfinu þá höfðaði þetta nám mjög vel til mín. Ég fór á kynninguna sem var haldin í Háskólanum í Reykjavík. Eftir umhugsun hvað varðar peninga og tíma ákvað ég að sækja um og eftir að hafa komist inn varð ekki aftur snúið. Þeir sem ég þekki til og hafa farið í MBA­ námið hafa talað um það hversu gott sé að horfa út fyrir heilbrigðiskerfið og það er auðvitað hin hliðin á teningnum. Ég ákvað hins vegar að fara þessa leið og sé ekki eftir því,“ segir Anna Sigríður sem finnst námið vera í góðum tengslum við daglegan veruleika og störf á heilbrigðisstofnunum. Í tengslum við raunveruleikann „Mér finnst námið vera mjög raunveru­ leikatengt en þau tengsl byggjast til dæmis á verkefnum sem við gerum en þau eru ýmist valin fyrir okkur eða við veljum sjálf, til dæmis vann hópurinn, sem ég var í á síðustu önn, verkefni sem snérist um sameiningu Lýðheilsustöðvar og landlæknisembættisins, í breytinga­ stjórnun tók ég fyrir lokun einnar deildar á Kleppi og í mannauðsstjórnun tóku hóparnir fyrir starfagreiningu, minn hópur tók fyrir starfagreiningu hjúkrunarfræðings á geðsviði Landspítalans, svo einhver dæmi séu nefnd. Hópurinn er í sjálfu sér mikill áhrifavaldur á námið þar sem samvinna einstaklinga er rauði þráðurinn í gegnum allt námsefnið, og við lærum einnig mikið hvert af öðru. Slíkt er líka lykilatriði í öllu því sem snýr að daglegu starfi: samstarf og teymisvinna.“ „Þegar maður sest á skólabekk leiðir það ósjálfrátt til sjálfsskoðunar. Margt breytist þegar námið hefst og fyrst í stað er heildarmyndin óljós. En hún glöggvast með tímanum. Í náminu er fylgst með námsframvindu hvers og eins og lögð fyrir verkefni sem tengjast sjálfsskoðun. Því verður maður að skoða sín eigin gildi og væntingar og það eykur aftur sjálfstraustið,“ segir Sigríður Bryndís Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og MBA­nemi við Háskólann í Reykjavík. LANGAÐI AÐ SKAPA MÉR NÝ TÆKIFÆRI segir Sigríður Bryndís Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og MBA-nemi „... að maður sjálfur taki þátt og þroski hæfileika sína sem stjórnandi.“ Sigríður Bryndís er meðal þeirra fjölmörgu hjúkrunarfræðinga sem á seinni árum hafa farið út í frekara nám. „Hjúkrun er mjög krefjandi og skapandi starf og viðfangsefnin margvísleg. Sérhæfingin er hins vegar mjög mikil og kannski fann ég fyrir þekkingarskorti og vöntun á sjálfstrausti sem ýtti mér út í það að ráðast í frekara nám,“ segir hún. Mig langaði að læra meira Tólf ár eru liðin síðan Sigríður Bryndís útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands. „Það sama vor, 1998, hóf ég störf á gjörgæsludeildinni í Fossvogi. „Mér leið mjög vel í því starfi en á gjörgæsludeildunum báðum vinnur frábært fólk sem er alltaf tilbúið að miðla af þekkingu sinni og reynslu. Ég er stolt af því að hafa tilheyrt þeim metnaðarfulla hópi. Ég lauk diplómanámi í gjörgæsluhjúkrun jólin 2005. Ég vann á gjörgæslunni í 10 ár en ákvað þá að Sigríður Bryndís hefur starfað sem hjúkrunar­ fræðingur í tólf ár. MBA­náminu, sem er tvö ár, lýkur hún í vor.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.