Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Síða 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Síða 26
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 201022 Eins og hjúkrunarfræðingum er kunnugt var samþykkt á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sem haldinn var 12. maí sl., „að fela stjórn félagsins að ganga frá úrsögn félagsins úr Bandalagi háskólamanna (BHM)“. Með bréfi dag­ settu 21. september 2009 tilkynnti félagið formlega úrsögn úr BHM. Úrsögnin tók gildi um nýliðin áramót. Uppgjör við BHM Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafði nokkra sérstöðu innan BHM, ekki aðeins sem langfjölmennasta félagið og það félag sem greiddi margfalt á við önnur félög til bandalagsins, heldur einnig vegna þess að rekstrarreikningur FÍH er umtalsvert Úrsögn FÍH úr BHM Úrsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga úr BHM tók gildi um áramótin. Eftir er þó fjárhagslegt uppgjör og deilt er um aðild félagsins í styrktar­ og sjúkrasjóði. Hér er sagt frá stöðu mála í janúar 2010. Elsa B. Friðfinnsdóttir, elsa@hjukrun.is stærri en rekstrarreikningur BHM og FÍH hefur sinnt félagsmönnum sínum að öllu leyti utan þess að njóta ráðgjafar lögfræðings BHM. Þá skapaði það einnig FÍH mikla sérstöðu að félagið hefur rekið sjálfstæðan orlofssjóð og sjálfstæðan starfsmenntunarsjóð. Félagsmenn í FÍH hafa hins vegar átt rétt til styrkja úr styrktarsjóði BHM og sjúkrasjóði BHM. Nú í kjölfar úrsagnarinnar þarf að fara fram fjárhagslegt uppgjör en um það gildir 21. gr. laga BHM. Í greininni segir meðal annars: Félag sem hefur sagt sig löglega úr BHM getur gert kröfu um hlutdeild félagsins í eignamyndun BHM, að frátöldum eignum Vinnudeilusjóðs og Orlofssjóðs, þann tíma sem félagið var í BHM þó ekki lengra aftur í tímann en aftur til áramótanna 1987/1988. Sömu kröfu getur BHM gert á aðildarfélagið ef miðstjórn ákveður slíkt. Báðir aðilar skulu gera slíka kröfu fyrir áramótin sem úrsögn miðast við. Þegar slík krafa kemur fram frá aðildarfélagi eða BHM skal fela löggiltum endurskoðanda BHM að reikna hlutdeild hlutaðeigandi félags í hreinni eignamyndun hvers starfsárs sem félagið var innan BHM. Sá aðili sem kröfu gerir greiðir kostnað af útreikningi. Skal greiða félaginu verðtryggða hlutdeild þess í eignum innan þriggja ára. Verðtrygging miðast við áramótin sem gengið er úr BHM. Komi í ljós neikvæð eignamyndun skal félagið gera upp með sama hætti við BHM. Aðilar geta krafist gerðardóms í málinu og greiðist kostnaður af báðum aðilum að jöfnu. Allt frá aðalfundi FÍH hafa starfsmenn félagsins, endurskoðandi og lögfræðingur unnið ötullega að því að undirbúa úrsögnina og fjárhagsuppgjörið, og í samræmi við lög BHM lagði FÍH fram kröfu um slíkt fjárhagsuppgjör áður en úrsögnin tók gildi. Um fjárhagsuppgjörið er hins vegar ágreiningur milli FÍH og BHM og snýr hann að styrktarsjóði BHM og sjúkrasjóði BHM. Stjórn FÍH telur meðal annars að aðild félagsins að samkomulagi við fjármálaráðherra um stofnun Fjölskyldu­ og styrktarsjóðs frá 24. október 2000 tryggi félagsmönnum FÍH aðild að styrktarsjóðnum óháð aðild að BHM. Þeirri kröfu félagsins hefur verið hafnað og einnig því að FÍH eigi að öðrum kosti rétt til hlutdeildar í eignamyndun beggja sjóðanna. Ekki hefur verið fallist á þá kröfu FÍH að setja ágreininginn í gerðardóm í samræmi við 21. gr. og átti félagið því ekki annarra kosta völ en að óska eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur að dómurinn tilnefni þrjá menn í gerðardóm til lausnar ágreiningi um fjárhagsuppgjörið. Þar er málið statt nú. Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga telur að hér sé um mikið réttlætismál að Hjúkrunarfræðingar hafa áður gengið úr heildarsamtökum. Hér er kjörstjórn að telja atkvæði í júní 1983 þegar kosið var um úrsögn Hjúkrunarfélags Íslands úr BSRB. Á myndinni sjást Steinunn Einarsdóttir, Anna Stefánsdóttir, Ólafur K. Guðmundsson, fulltrúi BSRB, og Sigríður Skúladóttir.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.