Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Side 32
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 201028
Hugræn atferlismeðferð (HAM) er
skipulögð, vandamálamiðuð aðferð
til meðferðar á einstaklingum með
sálfélagsleg vandamál og fellur vel
að vinnu hjúkrunarfræðinga. Aaron T.
Beck geðlæknir setti fram þá kenningu
að á bak við þunglyndi liggi grunntrú
(cognitive schemes) sem verður til
snemma á lífsleiðinni. Þar sé um að ræða
skýringar sem barnið reynir að finna
vegna atburða sem það verður fyrir. Af
grunntrúnni koma síðan upp ósjálfráðar
neikvæðar hugsanir (automatic thoughts)
sem valda tilfinningalegri vanlíðan. Sem
dæmi má nefna að ef einstaklingur hefur
grunntrúna að engum sé treystandi,
þá kemur hann fram og bregst við
samkvæmt því. Viðbrögðin, sem hann
fær til baka, eru oft neikvæð og styrkja
hann enn frekar í grunntrúnni þannig að
vítahringur skapast (Hawton o.fl., 2000;
Beck o.fl., 1979).
Meðferðin, sem byggð er á kenningum
Becks, hefur skilað árangri hjá sjúklingum
með margvísleg geðræn vandamál,
svo sem þunglyndi, kvíða, geðklofa og
persónuleikaröskun. Unnið er með atferli
eins og nafnið bendir til, en einnig er unnið
með hugsanir sem stuðla að vanlíðan.
Sjúklingnum er kennt að bera kennsl á
hugsanirnar og skoða réttmæti þeirra,
ásamt samspili hugsana, tilfinninga og
hegðunar. Meðferðarárangur hefur mikið
verið rannsakaður síðustu ár og almennt
er álitið að meðferðin sé gagnreynd.
Meðferðin skilar árangri og er hún
hagkvæm.
Hér á eftir fer umfjöllun um sex rann
sóknir á árangri af HAM þar sem
meðferðaraðilar eru hjúkrunarfræðingar. Í
þremur rannsóknanna eru bornar saman
ólíkar fagstéttir eða meðferðaraðilar með
ólíka menntun og kunnáttu. Einnig verður
fjallað um íslenska rannsókn þar sem
skoðaður var árangur sjúklinga þar sem
hjúkrunarfræðingar veittu meðferðina
annars vegar og aðrir fagaðilar hins
vegar, en rannsóknin var lokaverkefni
mitt í meistaranámi við HÍ. Þá er fjallað um
stöðu náms í hugrænni atferlismeðferð
fyrir hjúkrunarfræðinga nú um stundir og
það sem er á döfinni varðandi hugræna
atferlismeðferð á Landspítalanum.
Hjúkrunarfræðingar og HAM-nám
á Íslandi
Mikilvægt er fyrir hjúkrunarfræðinga,
sem sinna sálrænum þáttum veikinda,
að efla klíníska færni og tileinka sér
viðurkennd meðferðarform. Hér á
landi hafa hjúkrunarfræðingar haft
takmörkuð tækifæri til að læra og
tileinka sér sértæk meðferðarform eins
og hugræna atferlismeðferð. Þessu er
mikilvægt að breyta, en hér á landi
höfðu hjúkrunarfræðingar ekki lært
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR OG ÁRANGUR
HUGRÆNNAR ATFERLISMEÐFERÐAR
Margir íslenskir hjúkrunarfræðingar hafa lært hugræna atferlismeðferð og veitt
hana í meira en tíu ár. Sylvía Ingibergsdóttir skrifar hér um árangur af meðferðinni
hjá hjúkrunarfræðingum hérlendis og erlendis.
Sylvía Ingibergsdóttir, sylviai@landspitali.is
Sylvía Ingibergsdóttir er hjúkrunarfræðingur,
BS, MS, og starfar sem sérfræðingur í
geðhjúkrun á Landspítala.