Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Síða 49
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 2010 45
Nefnd um opinbera stefnu er ráð
gefandi, annast eftirlit með og gerir
tillögur um viðbrögð við stefnu ESB.
Meginábyrgðarsvið nefndarinnar er vinna
við opinbera stefnu fyrir hönd aðalfundar
í samræmi við stefnu og starfsáætlun
EFN. Nefndin gerir verkefnisáætlanir til
lengri og skemmri tíma, fylgist með og
kannar hvaða áhrif athafnir ESB, svo
sem stefna, samþykktir og tilskipanir
tengdar opinberri stefnu, hafa á hjúkrun
og hjúkrunarfræðinga. Nefndinni er ætlað
að tryggja að vinna EFN á þessu sviði
sé alltaf í samræmi við þróun mála hjá
framkvæmdastjórn, Evrópuþingi og
ráðherraráði ESB. Nefndin á í stöðugum
samskiptum við framkvæmdanefnd
EFN og er henni og framkvæmdastjóra
samtakanna til ráðgjafar. Nefnd um
opinbera stefnu annast hagsmunagæslu
fyrir hönd aðalfundar samkvæmt umboði
framkvæmdanefndarinnar og er í samvinnu
við fjölda óopinberra félagasamtaka um
sameiginleg hagsmunamál.
Paul de Raeve, framkvæmdastjóri EFN, á
hafnarbakkanum í Nýhöfn í Kaupmannahöfn.
Skrifstofa hans er í Brussel nálægt Evrópuþinginu.
AÐALFUNDUR FÉLAGS ÍSLENSKRA
HJÚKRUNARFRÆÐINGA 27. MAÍ 2010
Árlegur aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunar
fræðinga verður haldinn 27. maí 2010 á Grand
hóteli í Reykjavík. Rétt til setu á fundinum eiga
félagsmenn með fulla aðild og fagaðild en þeir
einir hafa atkvæðisrétt sem hafa skráð sig á
fundinn með minnst viku fyrirvara. Síðasti dagur
skráningar á aðalfundinn er 20. maí 2010.
Til fundarins verður boðað skriflega með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara
eða í síðasta lagi 12. maí 2010.
Félagsmönnum er heimilt að senda inn tillögur til lagabreytinga en þær
verða að berast stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir 29. apríl
2010. Málefni, sem félagsmenn óska að tekin verði fyrir á fundinum,
þurfa einnig að berast stjórn félagsins fyrir 29. apríl 2010.
Fundargögn aðalfundar verða birt á vefsvæði félagsins eigi síðar en 20.
maí 2010.
Félagsmenn er hvattir til að kynna sér þessar dagsetningar og mæta á
aðalfundinn.
Mikilvægar dagsetningar fyrir aðalfund Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga 2010
25. mars Aðalfundur auglýstur
29. apríl Tillögur til lagabreytinga þurfa að hafa borist stjórn
29. apríl Málefni, sem óskast tekin fyrir á aðalfundinum, þurfa að hafa
borist stjórn
12. maí Skriflegt fundarboð skal hafa borist félagsmönnum
20. maí Fundargögn skulu komin á vefsvæði félagsins
20. maí Síðasti dagur skráningar félagsmanna á aðalfundinn
27. maí Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga á Grand hóteli
Reykjavík
Það er gaman á aðalfundi.