Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Side 53

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Side 53
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 2010 49 um það hvernig verja á fjármunum sem renna eiga til málaflokksins. Undanfarna mánuði hefur starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins farið kerfisbundið yfir þá þjónustu sem sjúkrahúsin á suðvesturhorni landsins veita og samið tillögur um það hvernig ná megi meiri rekstrarhagkvæmni með endurskipulagningu (Heilbrigðis­ ráðuneytið, 2009). Þau sjúkrahús, sem skýrslan fjallar um, eru Landspítali auk Kragasjúkrahúsanna fjögurra en þau eru Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Reykjanesbæ, Heilbrigðisstofnun Suður lands á Selfossi, Sjúkrahúsið á Akra nesi og St. Jósefsspítali í Hafnar­ firði. Starfshópurinn hafði það að leiðarljósi að tryggja örugga og góða heilbrigðisþjónustu en jafnframt að styrkja nærþjónustu þar sem slíkt væri faglega og fjárhagslega hagkvæmt. Meginniðurstaða starfshópsins er sú að hægt sé að spara um 1.400 milljónir króna árlega með breyttri verkaskiptingu sjúkrahúsa á suðvesturhorni landsins. Tillögurnar fela í sér að þjónusta út af fæðingum og skurðaðgerðum verði flutt til Landspítalans en einnig að sjúklingar flytjist fljótlega eftir fyrstu meðferð á þann spítala sem næst er heimabyggð hvers og eins. Ekki verður annað séð en að þær tillögur, sem fram eru settar af starfshópi heilbrigðisráðuneytisins, séu vel unnar og skynsamlegar. Við þær þjóðfélagsaðstæður, sem hér ríkja, verður að huga að rekstrarlegri hagkvæmni í heilbrigðiskerfinu og oftast er betra að reka fáar og vel nýttar einingar en margar illa nýttar. Þetta á sérstaklega við um einingar með háan fastan rekstrarkostnað eins og skurðstofur. Ráðherra heilbrigðismála hefur, þegar þetta er skrifað, ekki enn tekið ákvörðun um það hvort farið verði eftir þessum hagræðingartillögum. Öllum er ljóst að draga þarf úr útgjöldum ríkisins á þessum erfiðu tímum. Mikilvægt er að tímabundnir erfiðleikar í íslensku efnahagslífi verði ekki til þess að stoðunum sé kippt undan heilbrigðiskerfinu til lengri tíma. Leiðarljósið þarf að vera að tryggja gæði og öryggi þjónustunnar. Bylgja Kærnested er hjúkrunarfræðingur á hjartadeild og formaður hjúkrunarráðs Landspítala. Heimildir Aiken, L.H., Clarke, S.P., Sloane, D.M., Sochalski, J., og Silber, J.H. (2002). Hospital nurse staff­ ing and patient mortality, nurse burnout, and job dissatisfaction. Journal of the American Medical Association, 288, 1987­1993. Heilbrigðisráðuneytið (2009). Endurskipulagning sjúkrahúsþjónustu á suðvesturhorninu: Greining á kostnaði og ábata af tilfærslu verk- efna. Reykjavík: Heilbrigðisráðuneytið. Needleman, J., Buerhaus, P., Mattke, S., Stewart, M., og Zelevinsky, K. (2002). Nurse staffing levels and quality of care in hospitals. New England Journal of Medicine, 346, 1715­1722. Person, S.D., Allison, J.J., Kiefe, C.I., og Weaver, M.T. (2004). Nurse staffing and mortality for Medicare patients with acute myocardial infarction. Medical Care, 42 (1), 4­12.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.