Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2013, Side 15

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2013, Side 15
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 89. árg. 2013 11 „Því miður er heilsugæslan alls ekki alltaf fyrsta val fólks heldur sérfræðilæknar, slysa- og bráðadeild og svo læknavaktin. Það er kominn tími til að ráðamenn sjái þann þjóðhagslega ávinning sem liggur í öflugri heilsugæslu.“ „Nauðsynlegt er að gera góða könnun á viðhorfi og skoðun almennings til starfsemi heilsugæslustöðva og samskipta við heilbrigðisstarfsmenn. Þær niðurstöður yrði að nota í stefnumótunarvinnu. Ég er að tala um almennilega könnun en ekki þjónustukönnunina sem er gerð á vegum Embættis landlæknis,“ bætir hún við. Brynja telur að setja þurfi miklu meiri fjármuni í grunnstoðir heilbrigðiskerfisins. „Ef vel er fylgst með lífsstílseinkennum og grunnur lagður að virkilega heilsteyptri forvarnaþjónustu má koma í veg fyrir dýrar innlagnir á sjúkrahús og meðferðarstofnanir. Það er kominn tími til að ráðamenn sjái þann þjóðhags- lega ávinning sem liggur í öflugri heilsugæslu. Það vita allir að það borgar sig ekki að byrgja brunninn eftir að barnið er dottið í hann. Við horfum líka fram á hlutfallslega fjölgun aldraðra. Heimahjúkrun á eftir að verða stærri og stærri hluti heilsugæslunnar,“ segir hún með áhersluþunga. „Það þarf líka að efla störf skóla- hjúkrunar fræðinga því í raun er hlutverk þeirra gríðarlega mikilvægt. Skóla- hjúkrunarfræðingar geta komið auga á krakka í áhættuhóp og ef þeirra starf væri styrkt betur væri hægt að grípa inn í miklu fyrr og það myndu sparast miklir peningar í framtíðinni,“ segir hún og heldur svo áfram: „Ég tala mjög mikið við notendur heilbrigðiskerfisins og fæstir vita hvað hjúkrunarfræðingar gera á heilsugæslustöðvum annað en að vera í ung- og smábarnavernd og kannski í heimahjúkrun. Flestir líta á heilsugæslu sem læknamóttöku og of margir eru óánægðir með þjónustuna því þeir fá ekki tíma strax og eftirfylgnin mætti vera betri.“ „Það slær mig líka þegar ég fer á heimasíðu heilsugæslunnar hvernig þjónustan er skilgreind í yfirflokkum. Þar er læknisþjónusta, mæðravernd, ung- og smábarnavernd, heilsuvernd skóla- barna og hjúkrunarþjónusta. Undir aðra þjónustu kemur meðal annars geðheilsa sem ég skil ekki af hverju er flokkuð undir aðra þjónustu. Ég leitaði að forvörnum og fann þær undir fræðslu en þær náðu að mig minnir aðeins til níunda bekkjar. Að vísu er fjallað um að hætta að reykja. Hér þarf að stokka upp og flokka þjónustu eftir vandamálum skjólstæðinga sem leita til heilsugæslunnar en ekki eftir innra skipulagi stofnana. Í fyrstu atrennu detta mér í hug yfirflokkar eins og: Sjúkdómar og meðferð; skyndimóttaka smáslysa og sýkinga; heilsuvernd og forvarnaþjónusta; fjölskylduþjónusta og þroskagreining; heimahjúkrun og heimaþjónusta; aðhlynning og sprautur; mælingar og prufur“ og svo framvegis, segir Brynja. „Við þurfum að vera duglegri að finna sláttinn í þjóðfélaginu – skoða hvaða tæki og tól virka til að koma boðskap heilbrigðis á framfæri. Það væri athyglisvert að gera markhópagreiningu á skjólstæðingum heilsugæslunnar og fá þannig yfirsýn yfir hvernig þeir nota heilsugæsluna og hvaða leiðir þeir nota til að afla sér þekkingar. Sumir vilja helst nota netið, aðrir bein samskipti og svo framvegis,“ bætir hún við. „Við þurfum að vera meiri talsmenn heilbrigðis og tala fyrir lífsstílsbreytingum. Heilsugæslan þarf að taka forystu og vera faglegi fyrirliðinn í stað þess að vera alltaf að bregðast við því sem gerist – snúast frekar um að móta heilbrigðan lífsstíl og leggja minni áherslu á veikindi og sjúklinga,“ segir hún með þunga. Brynja nefnir máli sínu til stuðnings nýlegan forvarnadag þar sem margir aðilar tóku höndum saman en hjúkrunarfræðingar eða heilsugæslustöðvar voru ekki þar á meðal. Eins nefnir hún hvernig bankar hafa eignað sér maraþonshlaup og tengja þannig ímynd heilbrigðis við starfsemi sína. „Af hverju standa heilsugæslustöðvarnar ekki fyrir heilsudögum, hlaupum, setja upp matarblogg og heilsusamlegar uppskriftir? Heilsugæslan þarf að byggja upp ímynd sem fyrirmynd heilsuverndar og þjóna því hlutverki af festu,“ segir hún. „Heilsugæslan þarf að taka forystu og vera faglegi fyrirliðinn í stað þess að vera alltaf að bregðast við því sem gerist – snúast frekar um að móta heilbrigðan lífsstíl og leggja minni áherslu á veikindi og sjúklinga.“ Hvað þarf að hafa í huga ef heilsugæslan vill auglýsa þjónustu sína? „Þjónusta byggist á samskiptum við viðskiptavininn og hann er drifkraftur starfseminnar. Hann notar eðlilega ekki þjónustu sem hann veit ekki að er til staðar og því er spurning hvort heilsugæslan þurfi hreinlega að auglýsa starfsemi sína og kenna fólki hvernig það getur nýtt sér þjónustu hennar,“ segir Brynja. „Kannski væri hægt að setja á stofn Heilsustofu Íslands sem hefði það hlutverk að halda utan um ýmislegt tengt heilsugæslu og lífsstíl,“ segir Brynja og fer á flug. „Stofan gæti haldið úti miðlægri heimasíðu og gagnabanka með fræðsluefni, haldið utan um ráðstefnur og námskeið í faginu, verið með viðburðasíðu og svo framvegis. Þarna væru myndskeið og myndbönd og gagnvirk heilsu- matstæki. Stofan myndi líka sjá um Facebook og senda út fréttatilkynningar. Hún myndi enn fremur vinna að íslensku smáforriti um heilsuvernd og sjúkdóma, eins og til dæmis iTriad. Þá myndi hún halda utan um klúbba og sjúklingahópa og framkvæma kannanir. Þar yrði unnið af festu í „hagsmunagæslu“ fyrir heilsugæsluna, ekki veitir af. Ég veit að Lýðheilsustöð hefur sinnt þessu að hluta en ég sé fyrir mér stofu sem er greypt í grasrótina og notar miklu fleiri miðla en prent og netið til að ná eyrum skjólstæðinga sinna.“ Með þessum kraftmiklu orðum Brynju lýkur svo viðtalinu.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.