Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2013, Síða 44

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2013, Síða 44
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 89. árg. 201340 spítalinn hækka laun hjúkrunarfræðinga einhliða og eftir eigin geðþótta. Eftir kynningu fulltrúa hjúkrunarfræðinga í sam starfsnefndinni tóku fjölmargir þátt í umræðum. Að umræðum og fyrirspurnum loknum fór fram ráðgefandi skoðanakönnun þar sem spurt var: „Vilt þú að fulltrúar hjúkrunar fræðinga í samstarfsnefnd Land spítala vegna endurskoðunar stofnanasamnings samþykki fyrirliggjandi tilboð frá Land- spítala?“ Alls tóku 497 þátt í könnuninni. Já sögðu 39 og nei sögðu 452 eða 91%. Á fundi í samstarfsnefndinni daginn eftir var fulltrúum Landspítala tilkynnt að FÍH hafnaði tilboðinu. Framhaldið er óljóst en Landspítalamenn hafa sagt að hjúkrunarfræðingar, sem hafa sagt upp störfum, þurfi að draga uppsagnirnar til baka fyrir 12. febrúar til þess að fá launahækkun. Endurskoðun á stofnanasamningi var því komin í pattstöðu sem sá ekki fyrir endann á þegar þetta tölublað fór í prentun. Hvað segja hjúkrunarfræðingar? Tímarit hjúkrunarfræðinga heyrði í nokkrum hjúkrunarf ræðingum en svo virðist sem fáir hjúkrunarfræðingar muni draga uppsagnir til baka. Heyrst hefur að enn fleiri hafi sagt upp störfum í vikunni eftir að tilboð Landspítalans var lagt fram og svo hafnað af hjúkrunarfræðingum. Mikil ókyrrð er einnig í öðrum stéttum og hafa tæplega 50 geislafræðingar sagt starfi sínu lausu. Lífeindafræðingar hafa talað á svipuðum nótum. Á bæklunardeild ákváðu síðustu deildarlæknarnir að segja upp þar sem þeir sáu fram á að þurfa að bera óbærilega vaktabyrði eftir að aðrir deildarlæknar höfðu hætt. Nokkrum dögum eftir fund hjúkrunarfræðinga funduðu almennir læknar á Landspítala og var þungt hljóðið í mönnum. Eva Hjörtína Ólafsdóttir, aðaltrúnaðar- maður hjúkrunarfræðinga á Landspítala, segir það vera sína tilfinningu að uppsagnir hjúkrunarfræðinga stafi bæði af launakjörum og af vinnuálagi og vinnuskipulagi. Allt árið 2012 var mikið álag á starfsfólkinu og ekki hefur það batnað í janúar. Hjúkrunarfræðingar hafi misst trúna á að vinnuaðstæður muni batna og þeim finnist ástandið frekar fara versnandi. Stjórnendur virðist bregðast við þegar vandi er á höndum en skipulag og framtíðarsýn vanti. Til dæmis er vitað að álagið er meira í janúar og febrúar en ekki hafi verið gert ráð fyrir því í mönnunaráætlunum. Varðandi launamálin segir Eva Hjörtína það vera ljóst að röðun hjúkrunarfræðinga í stofnanasamningi sé ekki í samræmi við menntun og vinnuframlag þeirra. „Við hjúkrunarfræðingar erum þreyttir á að heyra að við séum of mörg til þess að geta fengið sæmileg laun. Það er einfaldlega dýrt að hafa þrettán hundruð manns í vinnu,“ segir hún. Uppsagnir hjúkrunarfræðinga byrjuðu sem mótmæli við hægagangi í stofnana- samningaviðræðunum en er nú orðnar að alvarlegu vandamáli fyrir Landspítala. Eva Hjörtína hefur sjálf ekki sagt upp. Hún er ein af fulltrúum hjúkrunarfræðinga í samstarfsnefndinni en þeirra markmið er að ná fram endurskoðun og viðbótum á stofnanasamningi fyrir alla hjúkrunar- fræðinga á Landspítala. Að hennar mati hefur vinnuumhverfi spítalans breyst það mikið sl. ár að endurskoðun á stofnanasamningi er löngu tímabær. „Uppsagnirnar eru eitthvað fyrir Landspítala að kljást við og ekkert sem kemur samningaviðræðunum beint við,“ segir hún. Á næstu mánuðum mun svo koma í ljós hvort niðurstaðan, sem næst við endurskoðun stofnanasamningsins, verður þannig að þeir sem hafa sagt upp kjósi að draga uppsagnirnar til baka eða ráða sig aftur. „Hver og einn verður bara að taka ákvörðun fyrir sig,“ segir Eva Hjörtína. Tímarit hjúkrunarfræðinga náði tali af nokkrum hjúkrunarfræðingum sem hafa nú þegar ákveðið að snúa ekki aftur. Aðrir hafa ekki ákveðið sig og enn aðrir eru að velta fyrir sér að bætast í hóp þeirra sem hafa sagt upp. Sólhildur Svava Ottesen starfar á blóð- l ækningadeild Landspítala. Fjölskyldan ákvað í fyrra að flytjast til Danmerkur í sumar og gerði Sólhildur ráð fyrir að vinna á Landspítala þangað til. Hún er hins vegar ein af þeim sem sögðu upp í lok nóvember og mun því hætta 1. mars nk. „Tilboð ríkisstjórnarinnar kemur of seint, hún hefur dregið það allt of lengi,“ segir Sólhildur. Hún hefur þegar fengið vinnu í Noregi og mun að líkindum vinna þar fram að hausti. „Í Noregi er vinnuvikan styttri og ég mun fá um helmingi hærri laun,“ segir hún. Á meðan mun hún leita sér að vinnu í Kaupmannahöfn þar sem fjölskyldan ætlar að setjast að. Maðurinn hennar er Dani og eftir fjármálahrunið finnst þeim þau ekki geta framfleytt sér á Íslandi og hafa því ákveðið að fara utan. Sólhildur hefur áður unnið í Noregi og Danmörku og segist bara vera brött og ánægð með þessa ákvörðun þó að hún taki á. „Það er gefandi að starfa erlendis og sjá hvernig aðrir vinna en nú fer ég út vegna þess að ég neyðist til þess.“ Anna Gyða Gunnlaugsdóttir, hjúkrunar- fræðingur á krabbameinslegu deild á Landspítalanum, skrifaði nýlega pistil á vefinn undir fyrirsögninni ÉG SEGI UPP! Hún hafði þá fyrir stuttu ráðið sig á Landspítala og er því einungis með mánaðar uppsagnarfrest. Hún segist ekki geta unnið áfram þar sem vinnuálagið er gífurlegt og þjónustan, sem hún og aðrir þurfa að láta nægja að veita sjúklingunum, ekki sæmandi. Þetta er í annað skiptið sem hún yfirgefur Landspítalann en fyrir nokkrum árum vann hún á öldrunardeild á Landakoti en gat ekki sætt sig við þjónustuna sem þar var í boði. „Það er með mikilli eftirsjá að ég segi upp. Ég get þó ekki annað, slíkt er vinnuálagið. Mér ofbauð á Landakoti og ætlaði ég að yfirgefa hjúkrun til framtíðar og fór í ljósmyndanám árin 2010-2012. Ég hef alltaf haft afar gaman af hjúkrun og finnst ég hafa mikið að gefa þar. Ég er með haldgóða menntun, víðtæka starfsreynslu og langan starfsaldur. Ég átti því mjög erfitt með að yfirgefa hjúkrun alveg, ákvað að prófa að sameina hjúkrun og ljósmyndun og réði mig því í 80% starfi. Eftir að ég byrjaði á deildinni hef ég varla snert myndavél, milli vinnutarna geri ég lítið annað en að hlaða upp fyrir næstu törn. Ég skríð heim úr vinnunni. Nú finnst mér þjónustan við sjúklingana á deildinni orðin slík að ekki er lengur við unað. Ég

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.