Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2013, Blaðsíða 50

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2013, Blaðsíða 50
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 89. árg. 201346 Rannsóknarsnið og þátttakendur Gerð var könnun með þverskurðarsniði þar sem lagðir voru fyrir spurningalistar. Úrtakið var þægindaúrtak. Í því voru nemendur sem stunduðu nám í sex deildum innan Háskóla Íslands á tímabilinu janúar til maí árið 2005 (n=423). Þátttakendur tóku sjálfviljugir þátt í rannsókninni og gátu þeir tekið þátt sem skildu íslenskt tal- og ritmál. Rannsóknin var hluti af alþjóðlegu rannsóknarverkefni International Sexuality Description Project (2) (ISDP 2) sem Sóley S. Bender er þátttakandi í. Spurningalistar Spurningalistarnir, sem notaðir voru í þessari rannsókn, voru 5 af 21 spurningalista sem alþjóðlega rannsóknin byggðist á og hafa verið þýddur á 30 tungumál en upprunalega tungumálið er enska. Um þýðinguna sáu Sölvína Konráðsdóttir sálfræðingur í samráði við Sóleyju S. Bender en farið var eftir alþjóðlegum reglum um þýðingar. Eftirfarandi spurningalistar voru lagðir til grundvallar þessari rannsókn. Persónulegar upplýsingar og fjölskyldusaga þar sem notaðar voru upplýsingar um kyn og aldur. Sjálfsvirðing (self-esteem inventory). Með spurningalistanum var skoðað heildarmat einstaklingsins á því hversu mikils virði hann eða hún er sem manneskja (Pullman og Allik, 2000). Spurningalistinn inniheldur tíu atriði þar sem fram koma fullyrðingar um mat þátttakenda á sjálfum sér og merkja þeir við á fjögurra gilda Likert-kvarða frá 1 (afar sammála) til 4 (afar ósammála). Dæmi: „Stundum finnst mér ég vissulega vera einskis nýt(ur).“ Innri áreiðanleiki (internal reliability) mælitækisins var mældur með Chronbach-alfa, α=0,84, og er hann sá sami og hefur áður komið fram [α=0,84] (Pullman og Allik, 2000). Vingjarnleiki (agreeableness inventory). Þessi spurningalisti var notaður til að kanna hvort einstaklingar hafa tilhneigingu til að vera þægilegir og greiðviknir við félagslegar aðstæður og hvort þeir líti á aðra sem heiðarlega, trausta og áreiðanlega (Benet-Martínez og John, 1998). Spurningalistinn inniheldur níu atriði þar sem fram koma fullyrðingar um mat þátttakenda á sjálfum sér og merkja þeir við á fimm gilda Likert-kvarða frá 1 (afar ósammála) upp í 5 (afar sammála). Dæmi: „Er hjálpleg og óeigingjörn gagnvart öðrum.“ Innri áreiðanleiki spurningalistans var kannaður með Chronbach-alfa, α=0,67, en hann er lægri en komið hefur fram í öðrum rannsóknum [α=0,80] (Paulhus, 1998). Spurningalistinn var notaður til að kanna hugsmíðaréttmæti tengslakvarðans og líkans Bartholomew (1990) um tengsl. Tengsl (relationship questionnaire). Með spurningalistanum var könnuð tengslagerð einstaklinga (Bartholomew og Horowitz, 1991). Tengsl eru náið tilfinningalegt samband tveggja einstaklinga sem einkennist af gagnkvæmri ást og löngun til að viðhalda þessari nánd (Shaffer, 2002). Spurningalistinn byggist á fjórum persónulýsingum og merkja þátttakendur við hversu vel þeir telja hverja lýsingu eiga við sig á sjö gilda Likert-kvarða sem nær frá 1 (lýsir mér ekki) til 7 (lýsir mér nákvæmlega). Því fleiri stig, sem þátttakandinn fær, því betur telur hann ákveðna tengslagerð eigi við sig. Dæmi um persónulýsingu er varðar trausta tengslagerð: „Ég verð auðveldlega tilfinningalega náin(n) öðru fólki. Mér finnst þægilegt að vera öðrum háð(ur) og að aðrir séu háðir mér. Ég hef ekki áhyggjur af því að vera ein(n) eða að aðrir samþykki mig ekki.“ Tengslakvarðinn var notaður til að finna út líkanið af sjálfinu og líkanið af öðrum og kvíða og hliðrun í tengslum. Það var gert á eftirfarandi hátt: Líkanið af sjálfinu = (traust + losaraleg) – (ýkt + óttablandin) og líkanið af öðrum = (traust + ýkt) – (losaraleg + óttablandin) (Schmitt Mynd 1. Fjögurra flokka líkan Bartholomew af tengslum fullorðinna einstaklinga. Jákvætt líkan af öðrum Neikvætt líkan af öðrum Jákvætt líkan af sjálfinu Traust Losaraleg Ýkt Óttablandin Neikvætt líkan af sjálfinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.