Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 18

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 18
18 Setningarræða forseta kirkjuþings, Péturs Kr. Hafstein Kirkjuþing 2011 er sett, 46. kirkjuþing hinnar íslensku þjóðkirkju. Verið öll hjartanlega velkomin hingað í dag, þingheimur og góðir gestir. Við heilsum sérstaklega nýjum vígslubiskupi í Skálholti, séra Kristjáni Val Ingólfssyni. Við bjóðum hann velkominn á kirkjuþing og væntum mikils af samvistum og samvinnu við hann á þessum vettvangi og endranær á akri þjóðkirkjunnar. Við minntumst for- vera hans, séra Sigurðar Sigurðarsonar, á aukakirkjuþingi í sumar og þökkum sérstak- lega framlag hins fallna vígslubiskups til málefna kirkjuþings. Við biðjum þess í einlægni að starfið í Skálholti megi styrkjast og dafna til eflingar trúarlífi og þjónustu þjóðkirkjunnar í landinu. Fyrir ári síðan, þegar fyrir dyrum stóð að setja á laggirnar rannsóknarnefnd um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot, sagði ég við setningu kirkjuþings að verkefni kirkjunnar í þessu efni væri nákvæmlega meitlað í ljóði Njarðar P. Njarðvík, Án þess að líta undan. Þar kemur fram að sérhver manneskja verði að læra að horfast svo fast í augu við sjálfa sig að hún neyðist til að líta undan. Og hvað gerist svo? Til þess að rísa undir því að vera manneskja og lifa af í hörðum heimi er ekki nema einn kostur í boði. Hann er sá að horfast að nýju í augu við sjálfan sig – án þess að líta undan. Nákvæmlega þetta er þjóðkirkjan að gera nú um stundir og þetta verður hún að gera af fullri alvöru á næstu vikum, mánuðum og árum: Að horfast í augu við sjálfa sig án þess að líta undan. Á því mun framtíð hennar velta hvort hún er fær um að takast á við þann vanda sem felst í slíkri sjálfsskoðun um leið og hún færir yfirbragð sitt allt, boðun og verklag til þeirra hátta sem hæfa betur nútíð og framtíð. Rannsóknarnefnd kirkjuþings skilaði ítarlegri skýrslu 10. júní síðastliðinn. Auka- kirkjuþing var kvatt saman fjórum dögum síðar til þess að marka fyrstu viðbrögð kirkjunnar við henni og setja þau í málefnalegan farveg. Í mínum huga kom aldrei annað til greina en að kalla þingið saman svo fljótt sem verða mátti. Það var annars vegar vegna stöðu kirkjuþings sem æðsta stjórnvalds kirkjunnar og hins vegar vegna þeirrar ríku ábyrgðar sem þingið ber á framkvæmd þessa sérstæða og mikilvæga máls með því að hafa samþykkt einróma starfsreglur um rannsóknarnefnd kirkjuþings. Aukakirkjuþingið 14. júní gat hins vegar ekki og átti ekki að vera annað en fyrsta skrefið á langri vegferð til að ná tökum á þeim vanda sem við kirkjunni blasir í þessum efnum. Um slíkt gat engum ábyrgum manni í forystu kirkjunnar blandast hugur. Í ályktun aukakirkjuþingsins var harmað að viðbrögð og starfshættir þjóðkirkjunnar vegna ásakana um kynferðisbrot innan hennar hefðu ekki alltaf verið sem skyldi. Kirkjuþing bað í einlægni þá þolendur kynferðisbrota fyrirgefningar sem hefðu verið órétti beittir í samskiptum við þjóna kirkjunnar og lykilstofnanir hennar. Í þessum fyrstu viðbrögðum kirkjuþings fólst að sjálfsögðu full viðurkenning á því að alvarleg mistök hefðu átt sér stað af hálfu kirkjunnar manna á undangengnum árum. Sú viðurkenning hefur síðan verið áréttuð, meðal annars af biskupi Íslands. Aukakirkjuþingið kaus úr sínum hópi fimm manna nefnd til að undirbúa frekari úrbætur á þessu sviði. Markmiðið með starfi nefndarinnar var fyrst og fremst að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.