Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 27

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 27
27 Ávarp biskups Íslands, Karls Sigurbjörnssonar Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, forseti Kirkjuþings, Pétur Kr. Hafstein, vígslubiskupar, kirkjuþingsfulltrúar, góðir gestir. Í Harmljóðunum segir: En þetta vil ég hugfesta og þess vegna vona ég: Náð Drottins er ekki þrotin, miskunn hans ekki á enda, hún er ný á hverjum morgni, mikil er trúfesti þín. (Harm.3.22-23) Þessi orð eru mér hugstæð nú er við göngum til Kirkjuþings. Það er alltaf freistandi að ímynda sér nú sé framtíðin tryggð og allt í föstum skorðum. Nei Kirkjan er alltaf að tapa, missa fótanna, falla – og rísa upp! Því náð Guðs er ný á hverjum morgni! Umliðið ár hefur verið sársaukafullt og átakamikið í kirkjunni vegna svonefnds biskupsmáls. Hvernig sem á það er litið þá er mál Ólafs Skúlasonar hörmulegt. Sárar og erfiðar tilfinningar andspænis ólýsanlegum fjölskylduharmleik hafa snortið þjóðarsálina djúpt. Farið hefur verið vandlega gegnum viðbrögð þjóna og stofnana kirkjunnar við þeim málum í skýrslu Rannsóknarnefndar kirkjuþings. Kirkjuþing mun nú ræða álit úrbótanefndar um það hvernig brugðist er við ábendingum skýrslunnar. Þegar ég tók við biskupsembætti einsetti ég mér að koma á umbótum í meðferð kynferðisbrotamála innan kirkjunnar. Margt hefur áunnist og ég treysti því að þau mál séu nú í þeim farvegi að viðbrögð og úrvinnsla og eftirfylgd kirkjunnar í þeim efnum verði til fyrirmyndar. Það er kirkjunnar að vera leiðandi afl í þeirri siðferðisuppbyggingu sem þjóðin þarf svo á að halda. Við berum þar ríkar skyldur. Í þeirri siðferðislegu upplausn sem mótar samtíðina, þar sem vonleysið og úrræðaleysið er svo áberandi, svo margir finna sig í skuldaviðjum og fátæktargildru, einelti og annað ofbeldi er útbreitt vandamál svo víða, þarna hefur kirkjan verk að vinna. Siðferði verður ekki stýrt með lögum og regluverki, hversu vel sem er vandað til. Það þarf meira til! Hin andlegu verðmæti og viðmið sem rækta og næra virðingu og trúfesti og umhyggju fyrir lífinu, og þar brýst vonin fram gegnum vonlausar aðstæður. Þarna er hlutverk kirkjunnar. Þjóðin þarfnast þess að hatur og hefndarhugur víki og að hún endurheimti von og framtíðarsýn. Ég hvet presta og leikmenn, hvar sem er á vettvangi kirkjunnar, að leggja sitt að mörkum til þess að svo megi verða. Alþingi Íslendinga, ríkisstjórn, sveitastjórnir og aðrir opinberir aðilar eru að glíma við erfið úrlausnarefni til að leysa vanda og leggja grundvöll að framtíðaruppbyggingu í landinu. Hlutverk kirkjunnar er að koma góðu fréttinni á framfæri við manneskjuna, hver sem hún er, hvaða sporum sem hún er í átökum lífsins og hamförum náttúru og samfélags, við megum aldrei gleyma lífi og líðan einstaklingsins og sýna það í verki. Þegar gaus í Grímsvötnum með miklu öskufalli og ósköpum kom lítil frétt á vef Morgunblaðsins:„Presturinn var sá eini sem mundi eftir okkur!“ Viðbragðskerfið stóðst aðdáunarlega að flestu leyti og ótal margir komu þar að, þar á meðal prestarnir. En einn bærinn hafði gleymst í sortanum, enginn vitjaði um fólkið þar nema presturinn. Þessi frétt gladdi mitt gamla hjarta. Eins og margar ámóta fréttir fyrr og síðar af því þegar presturinn stendur með fólki sínu í áföllum og ógn, heldur utanum samfélagið, þjóðkirkjupresturinn, sem hefur aðgengi að stofnunum, heimilum, félaga- samtökum með svo sérstökum hætti. Af því að hann er hluti þess stóra og víða, opna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.