Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Síða 47

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Síða 47
47 20. mál. Þingsályktun um staðfestingu á breytingu á „Samþykktum um innri málefni þjóðkirkjunnar“. Kirkjuþing 2010 staðfesti breytingar á „Samþykktum um innri málefni þjóðkirkj- unnar“, sem upphaflega voru staðfestar á kirkjuþingi 2009. Breytingin varðaði kaflann um hjónavígslu. 21. mál. Viðaukasamningur við samkomulag íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997. Kirkjuþing 2010 samþykkti viðaukasamning við kirkjujarðasamkomulagið vegna niðurskurðarkröfu ríkisins á hendur þjóðkirkjunni. Um er að ræða tímabundna breytingu á fjárframlögum frá ríkinu samkvæmt kirkjujarðasamkomulaginu vegna kröfu ríkisins á hendur kirkjunni um hagræðingu í fjármálum. Í viðaukanum fellst þjóðkirkjan á að leggja sitt af mörkum og hreyfir ekki andmælum við að samningsbundin framlög ríkisins verði lækkuð tímabundið til samræmis við almennan niðurskurð á flestum sviðum ríkisins. Viðaukasamningur sá sem samþykktur var á kirkjuþingi 2010 fellur úr gildi um næstu áramót. Nú liggur fyrir þessu kirkjuþingi nýr viðaukasamningur. 22. mál. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 78/1997 um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. Kirkjuþing 2010 samþykkti frumvarp dómsmála- og mannréttindaráðherra til laga um breytingu á lögum nr. 78/1997 um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, sem lögfesti viðaukasamninginn. 23. mál. Þingsályktun um kynningu á starfi, starfsháttum og skipulagi þjóðkirkjunnar Kirkjuþing 2010 samþykkti að fela kirkjuráði að efla kynningu á starfi og skipulagi þjóðkirkjunnar. Kirkjuráð samþykkti að óska eftir að biskup Íslands tæki mál þetta til athugunar og vinni tillögur um framkvæmd. 24. mál. Þingsályktun um kirkju, þjóð og framtíð. (Þingmannamál). Kirkjuþing 2010 samþykkti að skipa þriggja manna starfshóp er meti nýlega þróun samfylgdar og tengsla ríkis og kirkju. Starfshópurinn skoði aukna fjölbreytni í menningar- og trúarlífi Íslendinga og hvernig þjóðkirkjan taki með skapandi hætti þátt í samfélagsþróuninni. Starfshópurinn skili áfangaskýrslu til kirkjuþings 2011. Í starfs- hópnum sitja kirkjuþingsmennirnir Birna G. Konráðsdóttir, dr. Hjalti Hugason og dr. Sigurður Árni Þórðarson. Skýrsla framtíðarhópsins verður kynnt í sérstöku þingmáli á þessu kirkjuþingi. 25. mál. Þingsályktun um kærleiksþjónustu þjóðkirkjunnar. (Þingmannamál). Málið var sameinað 7. máli kirkjuþings 2010 um þjónustu kirkjunnar. 26. mál. Þingsályktun um breytingu á sóknarskráningu og sóknargjöldum. (Þingmannamál). Kirkjuþing 2010 vísaði tillögunni til kirkjuráðs sem vísaði henni til milliþinganefndar kirkjuþings 2010.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.