Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Side 52

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Side 52
52 Prestssetur Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalls, Vestfjarðaprófastsdæmi Kirkjuráð fjallaði um prestssetur í Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli, Vest- fjarðaprófastsdæmi. Þörf var á miklum viðhaldsframkvæmdum við núverandi bústað á Bíldudal og var því ákveðið að láta reyna á að auglýsa eftir húsi til kaups eða leigu í prestakallinu. Ekki komu fram hús sem þóttu henta nægilega vel og varð því úr að fasteignanefnd ákvað, með heimild kirkjuráðs, að ráðast í endurbætur á núverandi bústað. Var gengið til samstarfs við sóknarnefnd Bíldudalssóknar um þátttöku sóknar- innar í verkefninu og er litið svo á að verkefnið sé unnið á ábyrgð sóknarnefndar undir eftirliti fasteignanefndar. Leigusamningur um Kapellu ljóssins Kirkjuráð hefur undanfarin ár leigt út Kapellu ljóssins, sem er í eigu sjóðsins til háskólans Keilis ehf. í Ásbrú, Reykjanesbæ. Kirkjumálasjóður á einnig þrjár íbúðir í raðhúsi skammt frá skólanum. Að ósk skólans samþykkti kirkjuráð að heimila háskólanum að stytta leigutíma um hálft ár frá því sem upphaflega hafði verið samið um. Unnið hefur verið að því að finna nýjan leigjanda svo og að athugun um hagkvæmni þess að stofna eignarhaldsfélag um eignirnar og rekstur þeirra. Þar sem ekki hefur fundist leigutaki að kapellunni var ákveðið að auglýsa fasteignina til sölu. Þá var rætt við Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar um kaup félagsins á tveimur af þremur raðhúsaíbúðum í tíu íbúða raðhúsalengju við Breiðbraut en þær umræður hafa ekki skilað árangri. Stafholt Kirkjuráð ákvað að reistur yrði nýr prestsbústaður á prestssetursjörðinni Stafholti sakir laklegs ástands núverandi bústaðar. Auglýst var eftir áhugasömum þátttakendum til þátttöku í lokuðu alútboði en 21 aðili óskaði eftir að taka þátt. Settar voru fram tilteknar skriflegar kröfur um fyrirkomulag og aðra þætti varðandi prestsbústaðinn. Sex tillögur bárust. Fasteignanefnd hafði ákveðið að kveða arkitekt til ráðgjafar við mat á tillögum og hvernig þær samrýmast fram settum kröfum kirkjumálasjóðs í útboðsgögnum. Tillögurnar voru kynntar formönnum sóknarnefnda Stafholtspresta- kalls, sóknarpresti prestakallsins og prófasti Vesturlandsprófastsdæmis. Kirkjuráð samþykkti að ganga að lægsta tilboði um byggingu prestsbústaðarins og samþykkti að tekið yrði lán til að kosta framkvæmdina en reiknað er með að hluti af tekjum vegna veiðihlunninda Stafholts og sparnaður vegna núverandi húsnæðis- og aksturskostnaðar sóknarprests standi undir töluverðum hluta afborgana af því. Unnin hefur verið tillaga að deiliskipulagi fyrir Stafholt af framangreindu tilefni og var tillagan samþykkt til auglýsingar. Meðferð greiðslumarks á jörðum kirkjumálasjóðs Samkvæmt starfsreglum um prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar nr. 950/2009 ber fasteignanefnd að semja vinnureglur, sem kirkjuráð staðfestir, um úthlutun á greiðslumarki og meðferð þess. Kirkjuráð taldi að ef um niðurlagt prestssetur er að ræða sem heimilað er að selja verði greiðslumark sem kann að fylgja því selt á almennum markaði. Fasteignanefnd vann tillögur að vinnureglum um úthlutun á greiðslumarki og meðferð þess og voru þær vinnureglur staðfestar af kirkjuráði með vísan til 21. gr. starfsreglna nr. 950/2009. Húsnæðismál Fjölskylduþjónustu kirkjunnar Unnið hefur verið að því að finna Fjölskylduþjónustu kirkjunnar annað húsnæði en það sem nú er leigt að Klapparstíg 25-27, Reykjavík, í því skyni að lækka húsnæðis-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.