Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Qupperneq 59
59
Kirkjuráð samþykkti að skipa starfshóp til að fjalla um skýrsluna og gera tillögur til
kirkjuráðs um framhald málsins. Starfshópurinn var skipaður sr. Kristjáni Björnssyni,
Katrínu Ásgrímsdóttur, kirkjuráðsmanni, Magnúsi E. Kristjánssyni, varaforseta
kirkjuþings, sr. Leifi Ragnari Jónssyni, kirkjuþingsfulltrúa og Sigríði Dögg
Geirsdóttur, fjármálastjóra Biskupsstofu. Einnig var ákveðið að gerð yrði fjárhagsleg
greining og var Sigrúnu Hallgrímsdóttur, löggiltum endurskoðanda falið að vinna það
verk. Þar kemur m.a. fram að tap er á gistirekstri og veitingarekstri í Skálholti árið
2010.
Starfshópurinn hefur skilað kirkjuráði tillögum varðandi rekstur staðarins. Í þeim
tillögum er bent á eftirfarandi leiðir varðandi reksturinn.
1. Að bjóða út reksturinn
2. Að vinna að því að styrkja rekstrargrundvöllinn
3. Halda óbreyttum rekstri og setja þá meira fé til Skálholts
4. Að hætta veitinga- og gistirekstri
Ljóst er samkvæmt framansögðu að rekstrarkostnaður í Skálholti er hærri en framlög
og tekjur og nýting húsnæðis í því sambandi ekki nægileg. Er þar einkum um að ræða
kostnað af rekstri Skálholtsskóla þ.e. við sölu veitinga og gistingar en um viðvarandi
taprekstur hefur verið að ræða. Þótt gripið hafi verið til þeirra ráðstafana sem að
framan greinir varðandi flutning bókhalds og fasteignaumsýslu að fullu til
Biskupsstofu er ljóst að meira þarf til að koma.
Með hliðsjón af ofangreindu ákvað kirkjuráð í október að hætta almennum veitinga-
og gistirekstri á vegum kirkjunnar í Skálholtsskóla hið fyrsta. Megináhersla verði lögð
á kjarnastarfsemi Skálholtsskóla s.s. námskeið, kyrrðardaga o.fl. Með því móti verði
reksturinn einfaldaður verulega.
Af hálfu forsvarsmanna Skálholts var ákveðið að taka þátt í stofnun einkahlutafélags,
m.a. með hlutafjárframlagi, sem hafði þann tilgang að veita sérhæfða ferðaþjónustu og
nýta Skálholt í því sambandi. Kirkjuráð taldi óheppilegt að skuldbinda þjóðkirkjuna
við félög sem eru ótengd kirkjunni og óskaði eftir að Skálholt seldi hlutinn í félaginu
og drægi sig út úr rekstri þess.
Þorláksbúð.
Félag áhugafólks um Þorláksbúð fékk heimild kirkjuráðs, að undangenginni könnun á
fjármögnun verkefnisins og rekstrar, til að reisa tilgátuhús á rúst hinnar fornu Þorláks-
búðar. Unnið hefur verið að því á árinu að hlaða veggi hússins. Á haustmánuðum
komu fram athugasemdir við staðsetningu tilgátuhússins og leyfisveitingar. Kirkjuráð
ákvað af því tilefni að kanna málið betur, sérstaklega hvað varðar skipulagsmál,
höfundarréttindi sem kunna að vera fyrir hendi og byggingarleyfi. Því var ákveðið að
beina því til Þorláksbúðarfélagsins að stöðva framkvæmdir við Þorláksbúð meðan
framangreint er athugað.
Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar.
Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar var sett á fót á kirkjuþingi 2008 og starfar sam-
kvæmt stofnskrá sem þingið samþykkti.
Salvör Nordal, sem er í stjórn stofnunarinnar og tilnefnd af biskupi Íslands sem
varaformaður, óskaði eftir að víkja úr stjórninni, vegna anna. Kirkjuráð samþykkti að
skipa séra Kristján Björnsson í sæti hennar og skipaði hann jafnframt varaformann
stjórnar. Vísað er til umfjöllunar um 31. mál kirkjuþings 2011 hér að framan.