Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Side 85
85
Hversu sjálfstæð þorir kirkjan að vera? Hver á að setja innri kirkjuskipunina, Alþingi
eða kirkjuþing? Hvers embættismenn eiga prestarnir að vera, kirkjunnar eða ríkisins?
Hvaða máli skipta tengsl kirkju við ríki? Veldur kirkjan því að vera sjálfstæð?
5
Samskiptabyltingin og kirkjan – Árni Svanur Daníelsson.
Snjallsímar og snjallvefir eru hluti af samskiptabyltingu. Vefurinn verður aðgengi-
legur alltaf og allstaðar. Snjallvefirnir tengja fólk saman og auðvelda miðlun. Árni
Svanur ræddi um áhrif samskiptabreytinganna á kirkjuna og varpaði fram þremur
tesum um kirkju og samskipti: 1. Söfnuðurinn er grunneinning kirkjunnar á netinu. 2.
Heimilis- og nýkirkjuguðrækni einkennir trúarlífið á netinu. 3. Leikir og lærðir tala
við sama borð á netinu. Net-samtalið um kirkjuna og trúna stendur nú yfir. Okkar
áskorun og erindi er að taka þátt.
6
Hlutverk kirkjunnar í samfélagsþróuninni – Sigríður Guðmarsdóttir.
Fyrirlesarinn ræddi umbyltingu samfélagsins og áherslur guðfræði í samspili við
breytingar. Sigríður dró upp myndir af ólíkum gerðum af kirkjuguðfræði sem ríkja og
hafa ríkt í þjóðkirkjunni síðustu áratugi og hvernig þróunin getur orðið í nánustu
framtíð.
7
Þjóðkirkjan sem þátttökusamfélag – Kristín Þórunn Tómasdóttir.
Þjóðkirkjan er stærsta sjálfboðaliðahreyfing landsins. Hún er þátttökusamfélag, sem
margir koma að vegna áhuga og vilja til að láta gott af sér leiða. Kristín Þórunn sagði
frá grundvelli þátttökukirkjunnar og hún væri lykill að framtíð kirkjunnar. Breyta
þyrfti skilgreiningum á hlutverkum presta og leikmanna í kirkjunni. Prestar og launað
starfsfólk í kirkjunni þurfa í auknum mæli að sinna utanumhaldi sjálfboðaliða og vera
vakandi fyrir því hvað hvert og eitt hefur fram að færa í trúarsamfélaginu.
8
Kirkja og þjóð í framtíð – Birna G. Konráðsdóttir.
Fyrirlesarinn bar saman starf kirkjunnar í gamla daga og í nýja daga og dró í saman-
burðinum fram einhæfni fotíðar og fjölbreytni samtíðar. Þá bar Birna saman stofnun
kirkjunnar, apparatið, annars vegar og kirkjuna í grasrótinni, nærkirkjuna, hins vegar.
Kirkjan hefur átt „bátt“ en nú þarf að nudda „báttið“. Kirkjan á ekki að hörfa heldur
opna, tala mannamál, starfa í anda jafnréttis, sækja fram í samfélagi fjölbreytni, t.d.
með fræðslu um trúarbrögð.
9
Kirkjan og framtíðin – Sigurður Árni Þórðarson.
Hver er nútímavandi kirkjunnar og hvað mun hafa áhrif á þróun hennar. Sigurður Árni
ræddi um álagspróf kirkjunnar, átök um ein hjúskaparlög og úrvinnslu kynferðisbrota-
mála. Prófin sýndu sprungur í leiðsögn og þjónustu kirkjunnar. Breytingar í samfélagi
og menningu væru þó ekki aðeins ógnanir gagnvart kirkjunni heldur tækifæri.
Fyrirlesarinn nefndi ýmsar samfélagsbreytingar, sem kirkjan ætti að svara, mæta og
með góðri guðfræði.
10
Framsögur og umræður voru hljóðritaðar. Þeim var miðlað á kirkjan.is ásamt stuttri
5
http://kirkjan.is/2011/09/kirkja-vs-riki/
6
http://kirkjan.is/2011/09/samskiptabylting-og-samtalid-um-kirkjuna/
7
http://kirkjan.is/2011/10/kruttkirkjan-og-samfelagsbyltingin/
8
http://kirkjan.is/2011/09/thjodkirkjan-er-thatttokusamfelag/
9
http://kirkjan.is/2011/10/kirkja-og-thjod-i-framtid/
10
http://db.tt/yk9CvKyl