Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Blaðsíða 107
107
15. mál kirkjuþings 2011
Flutt af kirkjuráði
Samþykkt þannig að lokinni umfjöllun í löggjafarnefnd:
Starfsreglur um presta.
Almennt
1. gr.
Prestsembættið skiptist í starf sóknarprests, héraðsprests, sérþjónustuprests og prests.
Sú skipting er byggð á lögum og starfsreglum kirkjunnar og varðar starfssvið og
ábyrgð einungis.
2. gr.
Samkvæmt köllun, vígsluheiti og vígslubréfi skal sérhver prestur hennar
• boða Guðs orð í anda evangelisk lúterskrar kirkju
• hafa sakramentin um hönd
• veita sálgæslu og hlýða skriftum og veita leiðsögn í andlegum efnum og trúarlífi
• vera málsvari fátækra, boðberi réttlætis og kærleika Guðs
• fræða unga sem eldri í sannindum fagnaðarerindisins
• ferma, gifta, vitja sjúkra og nauðstaddra, jarðsyngja látna, styðja syrgjendur til
huggunar
• leggja sitt af mörkum í lífi og starfi þjóðkirkjunnar
• leitast við að breiða út Guðs ríki í samfélaginu, og með því að styðja kristniboð og
hjálparstarf
3. gr.
Presti er skylt að sinna embætti sínu samkvæmt þeirri köllun sem hann hefur hlotið og
vígslubréfi, svo og samkvæmt þeim lögum, reglum, siðareglum og samþykktum sem
um starf hans gilda á hverjum tíma. Enn fremur ber presti að fara að ákvæðum
ráðningarsamnings, ef því er að skipta og erindisbréfs.
Prestur sér til þess, svo sem honum er fært, að allt starf þjóðkirkjunnar í prestakallinu
eða á starfssviði hans að öðru leyti gangi vel og greiðlega fyrir sig. Presti ber að sýna
nauðsynlegt frumkvæði til að svo megi verða.
Presti ber að gæta ýtrustu hagkvæmni við embættisrekstur sinn.
Presti ber að hlýða löglegu boði biskups og fyrir hans hönd prófasts.
Presti ber að vera viðlátinn í prestakalli sínu eða starfsstöð á þeim tíma sem fyrirmæli,
samningar eða lög bjóða.
Presti ber við rækslu starfa sinna að hafa samráð og samstarf við kirkjustjórnina, aðra
presta, sóknarnefndir, starfsmenn safnaða og aðra þá aðila sem tengjast starfi hans
eftir eðli málsins og því sem við getur átt.
Presti er skylt að færa embættisbækur, skýrslur og skrár og sinna skjalagerð,
skjalavistun og skýrsluskilum vegna embættisins samkvæmt nánari fyrirmælum
biskups. Biskup getur ákveðið að skil á gögnum skuli vera rafræn.
Presti ber að viðhalda þekkingu sinni og menntun eftir föngum til að geta ávallt sem
best sinnt starfi sínu.
Presti ber að láta í té þá aukaþjónustu eða afleysingaþjónustu sem óskað er eftir enda
sé hún á starfssviði hans skv. starfsreglum þessum eða erindisbréfi.