Félagsbréf - 01.07.1962, Blaðsíða 11
FÉLAGSBRÉF
7
stingur mjög í stúf við ummæli, sem birtust fyrir nokkru í einu
dagblaðanna. Þar komst hinn vígreifi höfundur svo að orði, að
meðal menningarþjóða væri „áreiðanlega engin öllu fjær því að
vera bókmenntaþjóð en vér íslendingar". Reyndar var tekið fram,
að átt væri við „svokallaðar fagrar bókmenntir eða listrænar", en
engu að síður er þetta slíkur sleggjudómur, að honum má ekki
vera ómótmælt. Það skiptir engu í þessu sambandi, þó að vitna
megi til lélegra bóka, sem stundum gerast allfyrirferðarmiklar,
einkum fyrir jól. Þetta er vitanlega staðreynd, en hitt er jafn-
satt, að sárfáir lesendur afla slíkra bóka handa sjálfum sér. Þær
eru flestar keyptar til gjafa, og mundi þá ekki sala þeirra byggjast
öðru fremur á þeim mannlega veikleika, sem flestir okkar eru
haldnir, að ætla öðrum lakari smekk, en við höfum sjálfir? Ef
litið er til þeirrar reynslu, sem Almenna bókafélagið hefur öðlazt,
verður að minnsta kosti ekki betur séð en að það séu undan-
tekningarlítið beztu útgáfubækurnar, sem notið hafa almennastra
vinsælda og verið mest keyptar. Vegna þeirra, sem boða þá trú,
að íslendingar gerist nú óðum fráhverfir fornum menningarerfð-
um, mætti einnig benda á það, að þjóðlegar bókmenntir í fræð-
um og skáldskap hafa síður en svo glatað hylli sinni á síðari ár-
um, heldur eru stöðugt að sækja á. Reynsla bókafélagsins ber fé-
lagsmönnum vissulega vel söguna.
* * *
Almenna bókafélagið hélt aðalfund sinn hinn 27. júní s.l. For-
maður félagsins, dr. Bjarni Benediktsson ráðherra flutti skýrslu
stjórnarinnar um rekstur félagsins á síðastliðnu ári. Kom þar
fram, að mikil gróska hafði verið í starfi félagsins og hefði það
gefið út margt úrvalsbóka, sem hefðu selzt vel og sumar langt fyrir
ofan meðallag. Nefndi formaður í því sambandi bækurnar Svo
kvað Tómas, Ævisögu Hannesar Hafsteins, Hafið og Náttúru
íslands. Þá minnti hann á, að árið 1961 hefði verið hafin útgáfa
bókaflokksins Lönd og pjóðir, en sá bókaflokkur væri þegar orð-
inn mjög vinsæll. Loks minntist hann á Skáldverk Gunnars Gunn-
arssonar og kvað félaginu mikið ánægjuefni að eiga hlut að enn
frekari útbreiðslu á verkum þessa öndvegishöfundar.
Framkvæmdastjóri félagsins, Baldvin Tryggvason, lögfræðingur,
flutti ýtarlega skýrslu. Sýndi hún berlega, að starfsemi félagsins