Félagsbréf - 01.07.1962, Blaðsíða 12

Félagsbréf - 01.07.1962, Blaðsíða 12
8 FÉLAGSBRÉF er komin á traustan grundvöll, og að hagur þess má nú teljast góður. Kvað framkvæmdastjórinn félagið í örum vexti, og félags- mönnurn fjölgaði stöðugt, einkum hefði sala á bókum aukizt mikið það sem af er þessu ári. Á aðalfundinum var stjórn bókafélagsins öll endurkjörin, en hana skipa: Bjarni Benediktsson, formaður, Alexander Jóhannes- son, Gylfi Þ. Gíslason, Jóhann Hafstein, Karl Kristjánsson og varamenn: Davíð Ólafsson og Geir Hallgrímsson. — í bókmennta- ráð voru kjörnir: Tómas Guðmundsson, fonnaður, Birgir Kjaran, Davíð Stefánsson, Guðmundur Gíslason Hagalín, Höskuldur Ól- afsson, Jóhannes Nordal, Kristján Albertsson, Matthías Johannes- sen og Þórarinn Björnsson. * * * í skýrslu sinni lét framkvæmdastjórinn, Baldvin Tryggvason, m.a. svo um mælt: „Almenna bókafélagið hefur aðeins starfað í sjö ár. Það er ekki langur tími, en samt mun félagið hafa haft rneiri áhrif í menning- armálum þjóðarinnar, en stofnendur þess gat órað fyrir i upphafi. Það hefur nú gefið út um 80 bækur og meðal þeirra margar hin- ar merkustu, sem út hafa komið á íslandi á þessu tímabili. F'élagið hlaut miklar vinsældir hjá almenningi strax við stofnun þess og þeim vinsældum hefur það haldið síðan, en eins og ég gat um áðan hafa því bætzt um 300 nýir félagsmenn aðeins hér í Reykja- vík frá því í desember sl. Þessar góðu viðtökur almennings eiga að vera okkur hvöt til að halda áfram á þeirri braut, sem félagið markaði sér í upphafi og hefur farið æ síðan, að efla menningar- þroska þjóðarinnar og sjálfsvirðingu með útgáfu úrvalsrita í fræð- um og skáldskap og veita mönnum kost á að eignast þau með eins vægum kjörum og unnt er. . . . Fátt mun því þjóðinni mikilvægara en að gera sér sem sannasta grein fyrir eigin hag og menningu. Hún verður að glæða með sér áhuga og virðingu fyrir menningarerfðum sínum, sögu, þjóðerni og bókmenntum, og á þann hátt að efla með sér þann menningar- þroska og sjálfsvirðingu, sem dugi henni á ókomnum tímum. Að þessu hefur Almenna bókafélagið unnið og vill vinna, og enn sem fyrr treystir það á stuðning allra þjóðhollra íslendinga, svo að vel takist til um farsæla lausn á þessu virðulega verkefni.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.