Félagsbréf - 01.07.1962, Blaðsíða 42

Félagsbréf - 01.07.1962, Blaðsíða 42
38 FÉLAGSBRÉF spurði fyrst,“ kallaði hún á móti. „En þú þarft sosum ekki að svara mér, þú hlýtur að vera skáldið. Mér sýnist þú vera talsvert klikkaður.“ „Gott, þá er það útkljáð. Kannski gætirðu þá svarað mér.“ Hún sneri sér á sitjandanum með snöggu átaki, eins og skopparakringlu væri snarlega snúið; vissi nú heint að honum. „Kannski,“ kallaði hún. „Langar þig afskaplega til að vita það?“ „Ekki veit ég nú það. Ég gæti sjálfsagt lifað án þess.“ „Jæja, þá skaltu bara lifa án þess.“ „Fyndist þér ekki kurteislegra, jungfrú góð, að þú kynntir þig eftir það, sem á undan er gengið?“ „0, það var sosum ekkert. Ég sá þig bara busla dáldið í tjörninni. Þú varst ægilega skringilegur, skal ég segja þér.“ Hún hló við storkandi. „Það er gott þú skemmtir þér. Annars átti þetta ekki að vera nein sýn- ing. Ég bjóst við ég fengi að vera hér í fnði.“ „Þau voru eitthvað að þvæla um að þú vildir vera einn. Ég hélt það væru bara dillur.“ „Þau hver?“ „Nú, þau heima á hænum auðvitað. Hélztu ég kæmi af fjöllum?“ „Þú hefur þá komið frá Aðalbóli.“ „Já, annars vissi ég ekkert um þessa tjörn. Hún var ekki hér síðast þegar ég kom hingað.“ „Hvenær var það?“ „I fyrrasumar, og sumarið þar áður, og þar áður og þar áður, ef þú vilt endilega vita það, alveg síðan ég man eftir mér.“ „Þú ert svona kunnug hér. Mætti þá ekki bjóða þér nær einbúanum?“ „Ertu þá ekki vondur?“ „Þú gætir hætt á að komast að raun um það.“ Hún hikaði við andartak, spratt svo snöggt á fætur, tiplaði lipurlega niður hólinn; hoppaði langleggjuð yfir lækinn í tveimur áföngum, þar sem hann klofnaði við stóra steininn ofan við fossinn, var í sama vetfangi komin til hans. Hann hafði risið á fætur, hélt annarri hendi um hnút á handklæðinu, sem hann hafði bundið á mjöðm sér; var í þann mund að rétta henni hina, þegar hann hopaði ósjálfrátt aftur á bak og þreif af sér sólgleraugun. Hann starði á stúlkuna. Hún var kornung, allhá vexti, grann- holda og útlimalöng, en þó var gelgjuskeiðið að hverfa að mestu fyrir kvenlegum líkamslínum. Hún var klædd gulbrúnum stuttbuxum og þunnum, hvítum bol og bert á milli laga, harmurinn hvelfdur og hálsinn í lengra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.