Félagsbréf - 01.07.1962, Side 13

Félagsbréf - 01.07.1962, Side 13
SIGURÐUR NORDAL: í UPPHAFI VAR ORÐIÐ Krindi flutt á 50 ára afmælishátíð Háskóla islands, 7. október 1961. i. 'C'yrir 127 árum, síðla sumars 1834, steig ungur guðfræðingur að nafni Tómas Sæmundsson á land í Reykjavík eftir sjö ára dvöl erlendis. Hann hafði lokið prófi frá Kaupmannahafnar háskóla og síðan tekið peningalán til þess að ferðast tvö ár um höfuðlönd Norðurálfu, hafði meðal annars dvalizt lengi í Berlín, Róm og París. Þetta var á þeim tímum alveg einstakt framtak af íslendingi. Þeir, sem ætluðu sér mestan hlut, þóttust góðu bættir, ef þeir kæmust til Hafnar, — og fæstir hefðu jafnvel ráðizt í þá utanför, nema Garðstyrksins hefði notið við. Tómas Sæmundsson hefur sjálfur lýst heimferð sinni og heim- komu í Bréfi frá íslandi, sem prentað er í fyrsta ári Fjölnis, 1835. Þar víkur hann að því, hvernig honum hafi verið innan brjósts, þegar hann var að hverfa frá Höfn til þess að verða sveitaprestur heima. Hann vissi, að hann mundi sakna margs, sem hann væri nú að skiljast við fyrir fullt og allt. En ríkastur var honum í huga fögnuðurinn að vitja aftur ættjarðar sinnar, vilji hans og vonir að verða henni að sem mestu gagni. Til þess hafði hann reynt að afla sér allrar þeirrar menntunar og víðsýni, sem kostur var á. Hvernig var nú aðkoman á íslandi og í höfuðstað þess fyrir þennan unga fullhuga? II. Undanfarin ár höfðu verið íslendingum hagstæð, eftir því sem þeir áttu að venjast. Mannfjölgunin var, eins og jafnan, öruggasta merkið. Fyrstu tuttugu ár aldarinnar hafði fólkinu ekki fjölgað

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.