Félagsbréf - 01.07.1962, Síða 45

Félagsbréf - 01.07.1962, Síða 45
FÉLAGSBRÉF 41 „Fyrir mér.“ „Hvernig gazt þú bannað það?“ „Ég á kotið.“ „Þú meinar þú eigir alla jörðina?“ Hún bandaði út frá sér. „Já.“ „Ég hef alltaf haldið að frændi ætti hana, hann hefur hana alveg eins og sína jörð.“ „Já, hann hefur fengið að nytja jörðina, en ég á kotið.“ „Hann liefur þá leigt það af þér.“ „Já, svo má það víst heita.“ „Ekki vissi ég þetta.“ Hann skrúfaði stubbinn niður í rótina, jafnaði yfir með vísifingrinum. Orléttur blærinn bar að vitum hans þægilega lykt af stúlkunni, blandaða tóbakseimi og veikum sólarsmyrslailmi. „Það er sennilega ýmislegt, sem þú ekki veizt,“ sagði hann og starði út í bláinn. Hún hnykkti til höfðinu. „Sei, sei, nú þykistu vera agalega neyðarlegur.“ „Af hverju segirðu það?“ „Ég þekki í ykkur tóninn.“ „Ykkur hverjum?“ „Nú, feðrunum, mæðrunum, kennurunum, spekingunum.“ „Þá tek ég þetta ekki til mín, ég er ekkert af þessu.“ „Ætli skáld slagi nú ekki eitthvað upp í speking.“ „Hafðu það bara eins og þú vilt.“

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.