Félagsbréf - 01.07.1962, Page 47

Félagsbréf - 01.07.1962, Page 47
Skáldsagan Brauðið og ástin og höfundurinn Eins og um getur á bls. 3 í þessu riti, verður ágúst-bók AB í ár ný skáld- saga eftir Gísla J. Ástþórsson, er hann nefnir Brauðið og ástina. í tilefni af því birtum vér hér ör- stutt yfirlit yfir ævi höfundar og störf og auk þess svör hans við spurningum vorum um bókina. Gísli J. Ástþórsson er fæddur 5 Reykjavík 5. apríi 1923, sonur Ástþórs Matthíassonar, forstjóra í Vestmanna- eyjum og SigríSar Gísladóttur. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavik, en hætti í 4 bekk, fór til Bandaríkj- anna, hóf þar nám í blaðamennsku og lauk BA prófi í þeirri grein við University of North Carolina haustiS 1945. SíSan var hann blaöamaður hjá Morgunblaðinu í 5 ár, ritstjóri Vik- unnar í 5 ár og loks ritstjóri AlþýSu- blaðsins frá 1958. Hann er kvæntur Guðnýju Sigurgísladóttur. Gísli J. Ástþórsson hefur gefiS út tvær bækur, Uglur og pújugauka, 1946, og Iilýjar lijartarœtur, 1958. Auk þess hafa smásögur eftir hann birzt á víð og dreif. í blaða- mannsstarfi sínu hefur hann ferðazt víða um heim. Spurningum vorum um bókina, efni hennar, sjónarmið og tilgang, svarar Gísli J. Ástþórsson á þessa leið: BrauðiS og ástin er skáldsaga eins og það heitir í daglegu tali. Hún er skrifuð út frá þvi sjónarmiði að það sé ekki dauðasynd þótt höfundur leitist við að stytta mönn- um stundir; og jafnvel að honurn leyfist að vera í góðu skapi; og það sé ekki endilega skylda hans að þylja mönnum bölbænir og hrópa að veröldin sé aS fara til and- skotans. Þó er vitanlega áróðursþráður í bókinni, skoðun. En ég. er að vona hún sé ekki sett fram í sæluvímu hins alvitra, nó með geislabaugsumbúðum ellegar þyrni- kórónutilburðum. BrauðiS og ástin er kunningjabók; ég hef þekkt þetta fólk upp til liópa. Það er reyndar ekki nýtt um skáldsögu. Ég las um daginn þá tilgátu ensks rithöfundar, aS það væri meiri sannleikur i einni skáldsögu en til dæmis í einni ævisögu. Menn hug- Gísli J. Astþórsson.

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.