Félagsbréf - 01.07.1962, Side 59

Félagsbréf - 01.07.1962, Side 59
BLAÐAÐ I BÓKUM Mesti maSur Bretlands. „Charles Dickens er langmesti maður, sem England hefur alið, síðan Shake- speare leið.“ Þessi ummæli Bernhards Shaw rifjuðust uj)p fyrir mér á dögun- um, þegar mér barst uj>p í hendur mjög skemmtileg ævisaga Dickens í inyndum og máli eftir brezka rithöl'- undinn J. B. Priestley (Charlcs Dick- cns: A pictorial Biography. The Vik- ing press, $ 6.50). — Var bókin geíin ut á 150 ára afmæli meistaráns, hinn 7. febrúar s.l., en þá var æðimargt um nann skrifað víðsvegar um lieim eins og að líkum lætur. Hér var afmælisins niinnzt af hálfu ríkisútvarpsins með flutningi í leikritsformi á einni af skáldsþgum hans, Glœstum vonum — (Great Expectations), en ekki rekur niig minm til, að íslenzk blöð eða tíma- rit hal'i sýnt af sér áþekka framtakssemi lil kynningar þessa afburðahöfundar. Ueyndar má segja, að allur almenningur hér á landi kunni nokkur skil á Dick- ens og fáar erlendar skáldsögur hafa orðið hér vinsælli en Olive.r Twist, sem Páll Eggert Ólason þýddi á sínum tíma. Önnur skáldsaga hans, Davíð Copperjield, sem er eiginlega uppvaxt- arsaga höfundarins sjálfs, kom út all- mikið stytt í þýðingu Sigurðar Skúla- sonar 1933, og eru þá enn ótaldar nokkrar smærri sögur, scm snúið hef- ur verið á íslenzku. Fáir munu gela gerl sér í hugar- lund þau hryllilegu kjör, sem verka- lýður, börn og munaðarleysingjar í iðnaðarborgum Bretlands áttu við að búa á öndverðri 19. öld. Hefur Charles Dickens sótt efnivið margra bóka sinna í þetta umhverfi eins og kunnugt er, enda þekkti hann þar til af eign raun. Tólf ára gömlum var honum komið fyrir til þrælavinnu í einni af þeim verkstofum Lundúnaborgar, sem versl höfðu orð á sér, en um sömu mundir hafði faðir hans verið hnepptur í skuldafangelsi. 1 þess liáttar vinnu- stofum þótti ekki tiltökumál, þó að börn liryndu niður vegna vinnuhörku, barsmíða og hungurs, en Charles litla var ekki fisjað saman og fimmtán ár-

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.